Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Þriðja árið í röð sem enginn lax veiðist á opnunardegi í Blöndu
Veiði hófst í Blöndu síðastliðinn föstudag og líkt og veiðisumrin tvö á undan þá náðu veiðimenn ekki að landa neinum laxi á opnunardaginn. Húnahornið greinir frá því að veiðimenn, sem sáu laxa á Breiðunni, hafi kvartað yfir kulda og roki og sögðu ána vera ískalda, en þeir höfðu þó nokkra sjóbirtinga upp úr krafsinu, sem er örlítil sárabót.
-
Malbikunarframkvæmdir á Króknum í vikunni
Sveitarfélagið Skagafjörður vekur athygli á því að nú í vikunni, dagana 8-12. júní, verður farið í malbikanir og viðgerðir á götum á Sauðárkróki. Búast má við tímabundnum truflunum á umferð víða í bænum meðan á framkvæmdum stendur. -
Húnaþing auglýsir starf umsjónarmanns fasteigna
Húnaþing vestra auglýsir eftir að ráða öflugan og framsækinn einstakling í fjölbreytt starf umsjónarmanns fasteigna sveitarfélagsins. Um er að ræða 100% starf. Umsóknafrestur er til og með 14. júní. -
-
-
Fulltrúar sjö stórra skipafélaga heimsóttu Skagafjörð
Cruise Iceland hefur undanfarna daga ferðast um landið með sérstökum ráðgjafahópi sem samanstendur af fulltrúum frá sjö stórum skemmtiferðaskipafélögum. Skagafjarðarhafnir tóku á móti hópnum og kynntu fyrir gestunum það fjölbreytta framboð sem samfélagið í Skagafirði hefur upp á að bjóða. -
Hringheimar vígðir á Skagaströnd
Á föstudaginn var opið hús hjá Hestamannafélaginu Snafara á Skagaströnd en þá var hringgerði félagsins formlega vígt. Um 70 manns voru mættir þegar Katrín Sara Reynisdóttir afhjúpaði nafn hringgerðisins sem hlaut nafið Hringheimar.
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Sjómannadagur 2026 | Högni Elfar Gylfason skrifar
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni. -
Stólarnir sterkir á KR-vellinum
Tindastólsmenn skelltu sér suður í gær og mættu galvaskir á KR-völlinn í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar beið þeirra lið KV eða Knattspyrnufélag Vesturbæjar. Stólarnir voru á toppi 3. deildar fyrir leik en heimamenn höfðu unnið þrjá en tapað tveimur og hafa eflaust ætlað að bæta einum sigurleik í sarpinn. Þeim varð ekki kápan úr því klæðinu því gestirnir voru sprækir og höfðu sigur 1-4 eftir að hafa nýtt uppbótartímann vel. -
Húnvetningar prjónuðu yfir Magnamenn
Það var spilað í 2. deildinni á Blönduósi á föstudagskvöldið en þá tók lið Kormáks/Hvatar á móti Grenvíkingum. Það hefur verið óvanalegt óstuð á Magnamönnum þetta sumarið og voru þeir á botni deildarinnar fyrir leik og engin breyting varð þar á því Húnvetningar hreinlega prjónuðu yfir gestina sem máttu þola 7-1 tap. Lið Húnvetninga er nú í fjórða sæti 2. deildar og til alls líklegt í sumar. -
SSNV lýsir áhyggjum af yfirlýstum breytingum á skipulagi lögreglu
Nú nýverið kynnt Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir domsmálaráðherra fyrirhugaða breytingu á skipulagi lögreglu sem lúta m.a.að því að fækka lögregluembættum úr níu í fjögur eða fimm. Breytingarnar munu eiga að miða að því að styrkja lögreglu á landsvísu. Á fundi stjórnar SSNV þann 3. júní sl. lýsti stjórn samtakanna áhyggjum af þeim áhrifum sem mögulegar breytingar á skipulagi lögregluembætta kunna að hafa á þjónustu, störf og stjórnsýslu í landshlutanum. -
Fornverkaskólinn tók við Europa Nostra-verðlaunum á Kýpur
Föruneyti Fornverkaskólans hélt fyrir skemmstu til Kýpur til að taka á móti Evrópsku menningarminjaverðlaununum / Europa Nostra-verðlaununum, virtustu menningararfsverðlaunum Evrópu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 28. maí sl. í bæjarleikhúsi Nikósíu á Kýpur. Fornverkaskólinn var í hópi 30 sigurvegara sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningararfsverkefni í Evrópu. Samkvæmt Europa Nostra sóttu um 500 sérfræðingar, sjálfboðaliðar, áhugafólk og stuðningsaðilar verðlaunaafhendinguna. -
Skagstrendingar á skotskónum
Donni þjálfari U19 landsliðs Íslands í kvennaboltanum leiddi sínar stúlkur til sigurs gegn liði Noregs í vináttulandsleik í dag en leikurinn endaði 2-3. Skagstrendingarnir Birgitta Rún og Elísa Bríet voru báðar í byrjunarliðinu og gerðu sér lítið fyrir og skoruðu báðar sín fyrstu mörk fyrir U19 landsliðið á fjögurra mínútna kafla um miðjan fyrri hálfleik.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Sjómannadagur 2026 | Högni Elfar Gylfason skrifar
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.Meira -
Fornverkaskólinn tók við Europa Nostra-verðlaunum á Kýpur
Föruneyti Fornverkaskólans hélt fyrir skemmstu til Kýpur til að taka á móti Evrópsku menningarminjaverðlaununum / Europa Nostra-verðlaununum, virtustu menningararfsverðlaunum Evrópu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 28. maí sl. í bæjarleikhúsi Nikósíu á Kýpur. Fornverkaskólinn var í hópi 30 sigurvegara sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningararfsverkefni í Evrópu. Samkvæmt Europa Nostra sóttu um 500 sérfræðingar, sjálfboðaliðar, áhugafólk og stuðningsaðilar verðlaunaafhendinguna.Meira -
Aukið frelsi og sanngjarnt verð | Sigurjón Þórðarson skrifar
Þegar fyrst var haldið upp á sjómannadaginn fyrir miðja síðustu öld eða árið 1938 var tilgangur hátíðarhaldanna ekki hvað síst að vekja athygli þjóðarinnar á störfum sjómanna. Gildi starfa þeirra til verðmætasköpunar fyrir þjóðarbúið.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
Ég var í tónlistarlegu uppeldi hjá frændum mínum / SIBBI
Lesa meiraAð þessu sinni er það Sigurbjörn Björnsson, sem svarar spurningum varðandi tón-lyst. Sibbi er fæddur 1963 og alinn upp á Króknum þar sem hann býr enn. Hann segist vera hljóðfæraeigandi en helstu afrek hans á tónlistarsviðinu er þátttaka í Lúðrasveit Tónlistaskóla Sauðárkróks og Lúðrasveit Sauðárkróks auk þess sem hann var rótari hjá Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar og hjá Magnúsi Kjartanssyni.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
Rabb-a-babb
-
Rabb-a-babb 118: Auðunn Sig
Lesa meiraNafn: Auðunn Steinn Sigurðsson.
Árgangur: 1966.
Fjölskylduhagir: Eiginkona Magdalena Berglind Björnsdóttir, sonur Kristófer Skúli 18 áraog dætur Margret Rún 15 ára og Jóhanna Björk 11 ára.
Búseta: Bý á Blönduósi.
Hverra manna ertu og hvar upp alin/n: Foreldrar mínir eru Sigurður Kr. Jónsson og Guðrún Ingimarsdóttir og ég er fæddur og uppalinn á Blönduósi.
