Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Ragnheiður Erla er nýr oddviti Skagastrandar
Fundur var haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar í gær en þar var meðal annars kosning oddvita og varaoddvita sveitarfélagsins nú að loknum sveitarstjórnarkosningum. Lagt var til að Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, sem er efst á lista Samfylkingar og óháðra, yrði kjörin oddviti og var það samþykkt með fimm atkvæðum. Alls sitja fimm í sveitarstjórn Skagastrandar.
-
Gallery Trefill verður með sveitamarkað 20. júní
Sigurlaug Guðmundsdóttir opnaði Gallery Trefill á seinasta ári og starfsemi þess gekk vel. Þar eru handprjónaðar vörur eftir hana, fleiri á Hofsósi og í nágrenninu. Galleríið er í litlu húsi við hliðina á gömlu skemmunum á Óslandi en hugmyndin er sú að hafa makaði í þeim samhliða galleríinu. Einnig er kominn söluvagn við hlið gallerísins svo hægt er að bjóða fólki upp á kaffi og meðlæti á pallinum fyrir utan á góðviðris dögum. -
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins. -
-
-
Stuð og stemning fram undan á Hofsósi
Bæjarhátíðin Hofsós heim mun standa yfir dagana 18.- 22. júní næstkomandi og hægt er að segja að nóg verði um að vera. Dagskráin er stútfull en í ár verður hægt að kíkja á markað í Höfðaborg, sjá sýningu hjá Brúðubílnum og skella sér í gusu í sánuvagni svo eitthvað sé nefnt. Hátíðin eins og hún er í dag hefur verið haldin síðan árið 2018 en bæjarhátíðir á Hofsósi er hægt að rekja til 1999 þegar haldið var upp á Jónsmessuhátíð. -
Sjómannadagsins var beðið með eftirvæntingu
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land um síðustu helgi. Hér á Norðurlandi vestra fóru sveitarfélögin misjafnar leiðir í hátíðarhöldin. Þannig hafa Skagstrendingar þann háttinn á að þar eru standandi hátíð í fjóra daga, á Hofsósi og á Hvammstanga fagna sjómenn á sjómannadeginum en á Sauðárkróki er fagnað degi fyrr – mögulega af praktískum ástæðum.
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Arséne Wenger er mitt uppáhald | Eydís Ósk segir frá liðinu sínu
Eydís Ósk Indriðadóttir er með annan fótinn á Hvammstanga og hinn í Gröf á Vatnsnesi. Hún er kennari, bóndi, liðveitandi, ljósmyndari og björgunarsveitarkona í hjáverkum. Síðast en ekki síst er hún Arsenal-aðdáandi. Þar sem Nallarnir unnu sinn fyrsta Englandsmeistaratitil í 22 ár á dögunum þá var ekki úr vegi að plata Eydísi Ósk í að svara Liðinu mínu. Við byrjum á að fá hana til að grein fyrir sjálfri sér... -
Nemendur FNV vöktu athygli með næringarríkri vöru
Fimm nemendur í áfanganum Frumkvöðlafræði í FNV stofnuðu fyrirtækið Brodd. Þeir hafa þróað fæðubótarefni úr frostþurrkuðum broddi. Fyrirtækið vakti athygli á Vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind og í kjölfarið var strákunum boðið að taka þátt í Arctic Youth Championship í Tromsø í Noregi. -
Framkvæmdir á Hvammstangavegi
Vegagerðin er þessa dagana að hefja framkvæmdir á Hvammstangavegi. Um er að ræða sementsfestun og klæðingu, frá gatnamótum við Hringveg og að Hvammstanga. Samkvæmt tilkynningu á vef Húnaþings vestra ná framkvæmdir yfir alls 4900 m. kafla auk 250 m. kafla á Hringvegi 1. Borgarverk annast verkið að undangengnu útboði og eru verklok áætluð 15. júlí. -
Þriðja árið í röð sem enginn lax veiðist á opnunardegi í Blöndu
Veiði hófst í Blöndu síðastliðinn föstudag og líkt og veiðisumrin tvö á undan þá náðu veiðimenn ekki að landa neinum laxi á opnunardaginn. Húnahornið greinir frá því að veiðimenn, sem sáu laxa á Breiðunni, hafi kvartað yfir kulda og roki og sögðu ána vera ískalda, en þeir höfðu þó nokkra sjóbirtinga upp úr krafsinu, sem er örlítil sárabót. -
Malbikunarframkvæmdir á Króknum í vikunni
Sveitarfélagið Skagafjörður vekur athygli á því að nú í vikunni, dagana 8-12. júní, verður farið í malbikanir og viðgerðir á götum á Sauðárkróki. Búast má við tímabundnum truflunum á umferð víða í bænum meðan á framkvæmdum stendur. -
Húnaþing auglýsir starf umsjónarmanns fasteigna
Húnaþing vestra auglýsir eftir að ráða öflugan og framsækinn einstakling í fjölbreytt starf umsjónarmanns fasteigna sveitarfélagsins. Um er að ræða 100% starf. Umsóknafrestur er til og með 14. júní.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Málið snýst um stjórnunarréttinn | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Kveðið er á um fullt vald Evrópusambandsins yfir vernd auðlinda sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess (d-liður, 3. greinar TFEU). Enn fremur að einungis sambandið geti sett lög um þær. Ríki Evrópusambandsins geti það ekki nema með leyfi sambandsins eða til þess að framfylgja löggjöf þess. Eina leiðin til að komast undan yfirstjórn Evrópusambandsins innan þess er varanleg undanþága (opt-out) frá henni. Slíkar undanþágur hafa hins vegar ekki verið í boði fyrir umsóknarríki. Aðeins tímabundnar undanþágur og „sérlausnir“ sem breyta engu um að valdið fer til sambandsins.Meira -
Sjómannadagur 2026 | Högni Elfar Gylfason skrifar
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.Meira -
Fornverkaskólinn tók við Europa Nostra-verðlaunum á Kýpur
Föruneyti Fornverkaskólans hélt fyrir skemmstu til Kýpur til að taka á móti Evrópsku menningarminjaverðlaununum / Europa Nostra-verðlaununum, virtustu menningararfsverðlaunum Evrópu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 28. maí sl. í bæjarleikhúsi Nikósíu á Kýpur. Fornverkaskólinn var í hópi 30 sigurvegara sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningararfsverkefni í Evrópu. Samkvæmt Europa Nostra sóttu um 500 sérfræðingar, sjálfboðaliðar, áhugafólk og stuðningsaðilar verðlaunaafhendinguna.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
Ekki hleypt nálægt græjunum í partýunum / JAKOBÍNA
Lesa meiraÞau leynast víða hæfileikabúntin og meira að segja á Kambastígnum á Króknum sem er nú ekki stærsti stígur í heimi! Þar hittir Tón-lystin fyrir Jakobínu Ragnhildi Valgarðsdóttur, rétt tæplega þrítuga söngkonu. Hún er alin upp á Sauðárkróki, dóttir Valla Valla og Valdísar Skarphéðinsdóttur. Jakobínu finnst kontrabassinn vera fallegasta hljóðfærið en sjálf getur hún spilað á píanó og ukulele. Hún segist ekki hafa unnið nein sérstök afrek á tónlistarsviðinu en hún lærði þó klassískan söng í Aachen í Þýskalandi.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
Rabb-a-babb
-
Rabb-a-babb 180: Sigga Garðars
Lesa meiraNafn: Sigríður Sigurbjörg Garðarsdóttir.
Hverra manna ertu og hvar upp alin/n: Foreldrar mínir voru hjónin Svanhildur Steinsdóttir bóndi og skólastjóri og Garðar Björnsson bóndi og rollusál Neðra-Ási og hjá þeim er ég alin upp, í dalnum sem Guð elskar.
Hvar og hvenær sástu núverandi maka þinn fyrst? Hann var að spila á balli á Hlíðarhúsinu, sennilega 1967 eða 8.
Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun? Sjaldan flýtir asinn.
