Bæjarhátíðin Hofsós heim mun standa yfir dagana 18.- 22. júní næstkomandi og hægt er að segja að nóg verði um að vera. Dagskráin er stútfull en í ár verður hægt að kíkja á markað í Höfðaborg, sjá sýningu hjá Brúðubílnum og skella sér í gusu í sánuvagni svo eitthvað sé nefnt. Hátíðin eins og hún er í dag hefur verið haldin síðan árið 2018 en bæjarhátíðir á Hofsósi er hægt að rekja til 1999 þegar haldið var upp á Jónsmessuhátíð.
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land um síðustu helgi. Hér á Norðurlandi vestra fóru sveitarfélögin misjafnar leiðir í hátíðarhöldin. Þannig hafa Skagstrendingar þann háttinn á að þar eru standandi hátíð í fjóra daga, á Hofsósi og á Hvammstanga fagna sjómenn á sjómannadeginum en á Sauðárkróki er fagnað degi fyrr – mögulega af praktískum ástæðum.
Eydís Ósk Indriðadóttir er með annan fótinn á Hvammstanga og hinn í Gröf á Vatnsnesi. Hún er kennari, bóndi, liðveitandi, ljósmyndari og björgunarsveitarkona í hjáverkum. Síðast en ekki síst er hún Arsenal-aðdáandi. Þar sem Nallarnir unnu sinn fyrsta Englandsmeistaratitil í 22 ár á dögunum þá var ekki úr vegi að plata Eydísi Ósk í að svara Liðinu mínu. Við byrjum á að fá hana til að grein fyrir sjálfri sér...
Fimm nemendur í áfanganum Frumkvöðlafræði í FNV stofnuðu fyrirtækið Brodd. Þeir hafa þróað fæðubótarefni úr frostþurrkuðum broddi. Fyrirtækið vakti athygli á Vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind og í kjölfarið var strákunum boðið að taka þátt í Arctic Youth Championship í Tromsø í Noregi.
Vegagerðin er þessa dagana að hefja framkvæmdir á Hvammstangavegi. Um er að ræða sementsfestun og klæðingu, frá gatnamótum við Hringveg og að Hvammstanga. Samkvæmt tilkynningu á vef Húnaþings vestra ná framkvæmdir yfir alls 4900 m. kafla auk 250 m. kafla á Hringvegi 1. Borgarverk annast verkið að undangengnu útboði og eru verklok áætluð 15. júlí.
Veiði hófst í Blöndu síðastliðinn föstudag og líkt og veiðisumrin tvö á undan þá náðu veiðimenn ekki að landa neinum laxi á opnunardaginn. Húnahornið greinir frá því að veiðimenn, sem sáu laxa á Breiðunni, hafi kvartað yfir kulda og roki og sögðu ána vera ískalda, en þeir höfðu þó nokkra sjóbirtinga upp úr krafsinu, sem er örlítil sárabót.
Sveitarfélagið Skagafjörður vekur athygli á því að nú í vikunni, dagana 8-12. júní, verður farið í malbikanir og viðgerðir á götum á Sauðárkróki. Búast má við tímabundnum truflunum á umferð víða í bænum meðan á framkvæmdum stendur.
Húnaþing vestra auglýsir eftir að ráða öflugan og framsækinn einstakling í fjölbreytt starf umsjónarmanns fasteigna sveitarfélagsins. Um er að ræða 100% starf. Umsóknafrestur er til og með 14. júní.
Cruise Iceland hefur undanfarna daga ferðast um landið með sérstökum ráðgjafahópi sem samanstendur af fulltrúum frá sjö stórum skemmtiferðaskipafélögum. Skagafjarðarhafnir tóku á móti hópnum og kynntu fyrir gestunum það fjölbreytta framboð sem samfélagið í Skagafirði hefur upp á að bjóða.
Á föstudaginn var opið hús hjá Hestamannafélaginu Snafara á Skagaströnd en þá var hringgerði félagsins formlega vígt. Um 70 manns voru mættir þegar Katrín Sara Reynisdóttir afhjúpaði nafn hringgerðisins sem hlaut nafið Hringheimar.
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.
Föruneyti Fornverkaskólans hélt fyrir skemmstu til Kýpur til að taka á móti Evrópsku menningarminjaverðlaununum / Europa Nostra-verðlaununum, virtustu menningararfsverðlaunum Evrópu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 28. maí sl. í bæjarleikhúsi Nikósíu á Kýpur. Fornverkaskólinn var í hópi 30 sigurvegara sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningararfsverkefni í Evrópu. Samkvæmt Europa Nostra sóttu um 500 sérfræðingar, sjálfboðaliðar, áhugafólk og stuðningsaðilar verðlaunaafhendinguna.
Þegar fyrst var haldið upp á sjómannadaginn fyrir miðja síðustu öld eða árið 1938 var tilgangur hátíðarhaldanna ekki hvað síst að vekja athygli þjóðarinnar á störfum sjómanna. Gildi starfa þeirra til verðmætasköpunar fyrir þjóðarbúið.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Sá er svarar Tón-lystinni að þessu sinni er kannski best þekktur fyrir að smyrja bókmenntaáhuga þjóðarinnar með smitandi lestrargleði í Kiljuþáttum Egils Helgasonar. Það er Þingeyingurinn Þorgeir Tryggvason, býr í reykvísku póstnúmeri, sem tókst að heilla Skagfirðinga á dögunum með því að gangast við því að geta rekið ættir sínar í Skagafjörðinn þegar hann var að tjá sig um nýjustu bók Kristmundar Bjarnasonar frá Sjávarborg.
Austan Vatna bjóða uppá hátíðarkaffi í tilefni þjóðhátíðardagsins, í mötuneyti Háskólans á Hólum frá kl 14-18
Allir velkomnir - hlökkum til að sjá ykkur
Opinn dagur og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum þann 19. júní!
Þann 19. júní ætlum við að gleðjast saman og halda opinn dag og uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum á Kjálka.
Í ár höfum við ýmsar ástæður til að fagna; Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Verðlaunahátíðin fer fram 28. maí í Nikosíu á Kýpur og á opnum degi ætlum við að fagna áfanganum með vinum og vandamönnum og afhjúpa viðurkenningarskjöld sem Europa Nostra samtökin veittu Fornverkaskólanum.
Í ár eru einnig að verða 20 ár síðan Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum. Á námskeiðum í sumar er stefnt að því að ljúka endurbyggingu síðasta hússins, en á opnum degi bjóðum við öll velkomin að aðstoða okkur við að reka smiðshöggið á verkið, tyrfa yfir húsið og fagna áfanganum með okkur.
Viðburðurinn er öllum opinn, hvort sem er til að veita hjálparhönd, rabba við okkur og fræðast um torf eða til að skoða húsin.
Kaffi, drykkjarföng og léttar veitingar verða í boði, stefnt er að því að lifandi tónlist létti okkur lundina og meðlimir í Pilsaþyt heiðri okkur með nærveru sinni.
Stefnt er að því að hefja dagskrá kl. 14.00 (með fyrirvara um breytingar) en nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Verið öll velkomin á opinn dag á Tyrfingsstöðum!