Fréttablað á Norðurlandi vestra, kemur út vikulega.
-
Stuð og stemning fram undan á Hofsósi
Bæjarhátíðin Hofsós heim mun standa yfir dagana 18.- 22. júní næstkomandi og hægt er að segja að nóg verði um að vera. Dagskráin er stútfull en í ár verður hægt að kíkja á markað í Höfðaborg, sjá sýningu hjá Brúðubílnum og skella sér í gusu í sánuvagni svo eitthvað sé nefnt. Hátíðin eins og hún er í dag hefur verið haldin síðan árið 2018 en bæjarhátíðir á Hofsósi er hægt að rekja til 1999 þegar haldið var upp á Jónsmessuhátíð.
-
Sjómannadagsins var beðið með eftirvæntingu
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land um síðustu helgi. Hér á Norðurlandi vestra fóru sveitarfélögin misjafnar leiðir í hátíðarhöldin. Þannig hafa Skagstrendingar þann háttinn á að þar eru standandi hátíð í fjóra daga, á Hofsósi og á Hvammstanga fagna sjómenn á sjómannadeginum en á Sauðárkróki er fagnað degi fyrr – mögulega af praktískum ástæðum. -
Arséne Wenger er mitt uppáhald | Eydís Ósk segir frá liðinu sínu
Eydís Ósk Indriðadóttir er með annan fótinn á Hvammstanga og hinn í Gröf á Vatnsnesi. Hún er kennari, bóndi, liðveitandi, ljósmyndari og björgunarsveitarkona í hjáverkum. Síðast en ekki síst er hún Arsenal-aðdáandi. Þar sem Nallarnir unnu sinn fyrsta Englandsmeistaratitil í 22 ár á dögunum þá var ekki úr vegi að plata Eydísi Ósk í að svara Liðinu mínu. Við byrjum á að fá hana til að grein fyrir sjálfri sér... -
-
-
Nemendur FNV vöktu athygli með næringarríkri vöru
Fimm nemendur í áfanganum Frumkvöðlafræði í FNV stofnuðu fyrirtækið Brodd. Þeir hafa þróað fæðubótarefni úr frostþurrkuðum broddi. Fyrirtækið vakti athygli á Vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind og í kjölfarið var strákunum boðið að taka þátt í Arctic Youth Championship í Tromsø í Noregi. -
Framkvæmdir á Hvammstangavegi
Vegagerðin er þessa dagana að hefja framkvæmdir á Hvammstangavegi. Um er að ræða sementsfestun og klæðingu, frá gatnamótum við Hringveg og að Hvammstanga. Samkvæmt tilkynningu á vef Húnaþings vestra ná framkvæmdir yfir alls 4900 m. kafla auk 250 m. kafla á Hringvegi 1. Borgarverk annast verkið að undangengnu útboði og eru verklok áætluð 15. júlí.
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Þriðja árið í röð sem enginn lax veiðist á opnunardegi í Blöndu
Veiði hófst í Blöndu síðastliðinn föstudag og líkt og veiðisumrin tvö á undan þá náðu veiðimenn ekki að landa neinum laxi á opnunardaginn. Húnahornið greinir frá því að veiðimenn, sem sáu laxa á Breiðunni, hafi kvartað yfir kulda og roki og sögðu ána vera ískalda, en þeir höfðu þó nokkra sjóbirtinga upp úr krafsinu, sem er örlítil sárabót. -
Malbikunarframkvæmdir á Króknum í vikunni
Sveitarfélagið Skagafjörður vekur athygli á því að nú í vikunni, dagana 8-12. júní, verður farið í malbikanir og viðgerðir á götum á Sauðárkróki. Búast má við tímabundnum truflunum á umferð víða í bænum meðan á framkvæmdum stendur. -
Húnaþing auglýsir starf umsjónarmanns fasteigna
Húnaþing vestra auglýsir eftir að ráða öflugan og framsækinn einstakling í fjölbreytt starf umsjónarmanns fasteigna sveitarfélagsins. Um er að ræða 100% starf. Umsóknafrestur er til og með 14. júní. -
Fulltrúar sjö stórra skipafélaga heimsóttu Skagafjörð
Cruise Iceland hefur undanfarna daga ferðast um landið með sérstökum ráðgjafahópi sem samanstendur af fulltrúum frá sjö stórum skemmtiferðaskipafélögum. Skagafjarðarhafnir tóku á móti hópnum og kynntu fyrir gestunum það fjölbreytta framboð sem samfélagið í Skagafirði hefur upp á að bjóða. -
Hringheimar vígðir á Skagaströnd
Á föstudaginn var opið hús hjá Hestamannafélaginu Snafara á Skagaströnd en þá var hringgerði félagsins formlega vígt. Um 70 manns voru mættir þegar Katrín Sara Reynisdóttir afhjúpaði nafn hringgerðisins sem hlaut nafið Hringheimar. -
Sjómannadagur 2026 | Högni Elfar Gylfason skrifar
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.
Mest skoðað
Uppskriftir frá lesendum
Pistlar
-
Sjómannadagur 2026 | Högni Elfar Gylfason skrifar
Íslenskur sjávarútvegur er einn þeirra grunnþátta sem haldið hafa lífi í íslendingum frá landnámi til dagsins í dag ásamt því að auka hag og velsæld þjóðarinnar. Þar að baki er mikill fjöldi fólks sem lagt hefur á sig mikla og óeigingjarna vinnu við hættulegar aðstæður, en það vill stundum gleymast í þjóðfélagsumræðunni og pólitíkinni.Meira -
Fornverkaskólinn tók við Europa Nostra-verðlaunum á Kýpur
Föruneyti Fornverkaskólans hélt fyrir skemmstu til Kýpur til að taka á móti Evrópsku menningarminjaverðlaununum / Europa Nostra-verðlaununum, virtustu menningararfsverðlaunum Evrópu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 28. maí sl. í bæjarleikhúsi Nikósíu á Kýpur. Fornverkaskólinn var í hópi 30 sigurvegara sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningararfsverkefni í Evrópu. Samkvæmt Europa Nostra sóttu um 500 sérfræðingar, sjálfboðaliðar, áhugafólk og stuðningsaðilar verðlaunaafhendinguna.Meira -
Aukið frelsi og sanngjarnt verð | Sigurjón Þórðarson skrifar
Þegar fyrst var haldið upp á sjómannadaginn fyrir miðja síðustu öld eða árið 1938 var tilgangur hátíðarhaldanna ekki hvað síst að vekja athygli þjóðarinnar á störfum sjómanna. Gildi starfa þeirra til verðmætasköpunar fyrir þjóðarbúið.Meira
Hr. Hundfúll
-
Miðvikudagur 15. apríl 2026
Áfram Vísnakeppni
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Tón-Lystin
-
„Pabba að kenna hversu gamaldags minn tónlistarsmekkur er“ / RANNVEIG STEFÁNS
Lesa meiraÞað virðast nánast allir í dag geta stigið á stokk og sungið, dansað og leikið eins og ekkert sé sjálfsagðara. Árshátíðir grunnskóla og skemmtanir framhaldsskóla snúast mikið um að setja upp ákaflega metnaðarfullar sýningar og oftar en ekki komast færri á svið en vilja – eitthvað annað en á síðustu öld þegar það þurfti nánast að draga flest ungmenni upp á svið, skjálfandi af sviðsskrekk. Að þessu sinni er það hún Rannveig Sigrún Stefánsdóttir sem svarar Tón-lystinni og hún er ein af þeim sem getur þetta allt og þrátt fyrir ungan aldur má segja að hún sé orðin reynslubolti.
Feykir á Facebook
Viðburðir á Norðurlandi vestra
Rabb-a-babb
-
rabb-a-babb 7: Gísli Einars
Lesa meiraNafn: Gísli Einarsson .
Árgangur: 1967.
Fjölskylduhagir: Í sambúð með Guðrúnu Huldu Pálmadóttur frá Hofsósi og í sameiningu höfum við búið til þrjú börn, Rakel Bryndísi 14 ára, Rúnar 8 ára og Kára 5 ára.
Starf / ná...
