feykir.is | Skagafjörður | 24.10.08 | 10:07

Seldu rúmlega fimm og hálft tonn af kjöti á einum degi

Kælarnir hreinlega tæmdust í gær

Kælarnir hreinlega tæmdust í gær

Bændadagar hófust í Skagfirðingabúð og er óhætt að fullyrða að Skagfirðingar hafi tekið vel við sér en alls seldist um fimm og hálft tonn af kjöti í gær. Búið að að fylla á alla kæla á nýjan leik og búast menn við öðru eins í dag.

Er Feykir.is hafði samband við Árna Kristinsson sagði hann að þar á bæ væri verið að fylla á alla kæla og að vona væri á meira nautakjöti á eftir. Árni segir að hann hafi selt um 3 tonn af lambalærum. tonn af hryggjun og 1,6 tonn af nauta- og kindahakki. Er þá ótalið allt annað kjöt sem í boði var og seldist líkt og heitu lummurnar hennar ömmu forðum. Þá tók menn vel við sér með ostinn og seldist tonn af osti í gær.


Feykir.is | 17.5.12 | 13:29

Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni

Axel Kárason. Mynd: ungurbondi.is

Skagfirðingurinn Axel Kárason hefur verið að leika í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik við mjög góðan orðstýr en hann var kjörinn bosman leikmaður ársins á dögunum af hinum þekkta körfuboltamiðli Eurobasket.com.  Þá er átt við besta erlenda leikmanninn, að frátöldum bandarískum leikmönnum … lesa meira


Feykir.is | 17.5.12 | 12:56

Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina

Hannes Bjarnason.

Allir frambjóðendur til embættis forseta Íslands, nema Hannes Bjarnason, skiluðu undirskriftalistum til yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi í gær en Rúv greinir frá því að kjörstjórnir þar og í Suðurkjördæmi höfðu auglýst að frestur var gefinn til klukkan 15. Hannes sagði í … lesa meira


Feykir.is | 16.5.12 | 13:57

FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók

FeykirTV - Tímavélin sem trekkir

Veðrið hefur ekki verið að leika við Skagfirðinga upp á síðkastið. En þó að veðrið hafi verið leiðinlegt fylgir því oft mikil fegurð. FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók og tók nokkrar myndir af ,,vetrinum”.


Feykir.is | 16.5.12 | 13:43

Kormákshlaup á uppstigningardag

kormakur_logo

Á morgun, uppstigningardag 17. maí, fer fram fjórða og síðasta Kormákshlaupið og verður verðlaunaafhending að því loknu. „Mætið tímanlega til skráningar,  allir með ungir sem aldnir,“ segir í auglýsingu sem birt var í nýjasta Sjónaukanum. Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku … lesa meira


Feykir.is | 16.5.12 | 13:19

Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu

skidi_snjoblasari (8)

Á síðasta fundi félags og tómstundanefndar Svf. Skagafjarðar var lagður fram samningur um rekstur skíðasvæðis í Tindastóli milli sveitarfélagsins og skíðadeildar UMF. Tindastóls. Þar skuldbindur sveitarfélagið sig til að greiða skíðadeild 8.000.000.- króna til uppbyggingar á skíðasvæðinu í ár, auk … lesa meira


Feykir.is | 16.5.12 | 12:00

Vorsýning nemenda Blönduskóla

Mynd: blonduskoli.is

Í dag, miðvikudaginn 16. maí, verður haldin sýning á munum sem nemendur Blönduskóla hafa búið til í textíl- og myndmennt, listasmiðju og fatasaumi. Einnig verður sýnishorn af verkum nemenda í heimilisfræði, „en þau gætu horfið fljótlega eftir að sýning hefst … lesa meira


Feykir.is | 16.5.12 | 11:45

Þátttökuskráning á Íþróttamóti Þyts lýkur nk. þriðjudag

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Frá Íþróttamóti Þyts, ágúst 2011. Mynd: thytur.123.is

Íþróttamót Þyts verður haldið laugardaginn 26. maí nk. Skráning til þátttöku stendur yfir til miðnættis þriðjudaginn 22. maí. Á heimasíðu hestamannafélagsins segir að mótanefnd áskilur sér rétt til þess að fella niður greinar ef þátttaka er ekki næg, þær eru … lesa meira


Feykir.is | 16.5.12 | 8:54

Fellur ríkisstjórnin vegna málþófs?

Lýður Árnason,læknir og liðsmaður Dögunar.

-Stjórnarandstaðan stefnir að því að kjafta nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í kaf á næstu dögum og endurtaka leikinn frá páskum. Komist stjórnarskráin ekki í þjóðaratkvæði í haust er ljóst að lítið stendur eftir langan feril sem byrjaði með þjóðfundinum 2010, segir … lesa meira