Dýllari með eina unnustu eða svo
- Hver er maðurinn? -Óskar Páll Sveinsson
- Hverra manna ertu ? - Dýllari
- Árgangur? -1967
- Hvar elur þú manninn í dag ? -Við Bugðuós í Kjós.
- Fjölskylduhagir? – Á eina unnustu eða svo.
- Afkomendur? - Bjarni, fæddur 92
- Helstu áhugamál? -Lax og silungsveiði með smá skytteríi inn á milli.
- Við hvað starfar þú? -Leiðsögn í laxi á sumrin og Tónlistarvinnslu að ýmsu tagi á vetrum.
- Hraðaspurningar, þær virka þannig að þú botnar upphaf setninga með því fyrsta sem þér dettur í hug.
- Heima er …………………mjög skemmtileg mynd frá Sigurrós
- Það er gaman…………………….þegar hann tekur !
- Ég man þá daga er……………………maður dorgaði á gömlu bryggjunni
- Ein gömul og góð sönn saga………………Þegar Björn skólastjóri tók af sér annan klossan, barði honum í kennaraborðið og þrumaði yfir bekkin “ég krefst þess af ykkur að mér sé hlýtt” ég svaraði strax, á ég að koma með lopapeysu handa þér ?
- Spurt frá síðasta viðmælanda
- Hvor er betri veiðimaður, þú eða Bubbi Morthens ?
-Af öllum þeim mörgu og frábæru kostum sem mig prýða þá tel ég nú hógværðina standa uppúr, og segi þess vegna að við séum sennilega nokkuð svipaðir, ég er þó sennilega aðeins þolinmóðari. - Hvern villt þú sjá svara þessum spurningum og hvaða spurningu myndir þú leggja fyrir
viðkomandi? - -Ég myndi vilja sjá Himma Valla svara þessu næst, og spurningin til hans er.
Heldur þú ennþá takti ?

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira
















