Nemandanum líklega vísað úr skóla
-Ekki fundust fíkniefni á heimavist við húsleit og er það eitt og sér mikið fagnaðarefni, segir Jón F. Hjartarson, skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í kjölfar fíkniefnaleitar lögreglu í húsnæði skólans í gærmorgun. Tæki til fíkniefnaneyslu fundust hjá einum nemanda.
Jón segir það alvarlegt fyrir alla ef tæki til fíkniefnaneyslu finnast á heimavistinni. En það sé meginatriði að koma megi í veg fyrir fíkniefnaneyslu innan veggja skólans. Tilefni leitarinnar segir Jón að hún sé fastur liður í forvarnarstarfi skólans og hann sé þaklátur lögreglunni fyrir þeirra framlag. Aðspurður sagði Jón að í þessu tilfelli sé um einn nemanda að ræða og samkvæmt reglum skólans sé óheimilt að hafa tæki til fíkniefnaneyslu í húsum skólans eða á lóð. Viðkomandi nemanda verður því hugsanlega vikið af heimavist svo og úr skólanum sé um ótvíræðan vitnisburð að ræða um að hann hafi neytt fíkniefna á umráðasvæði skólans.
Er vefurinn hafði samband við nokkra nemendur skólans bar þeim öllum saman um að innan veggja heimavistarinnar væri lítill hópur nemenda sem stundaði eiturlyfjaneyslu.
-það er erfitt fyrir foreldrafélagð að gera eitthvað í orðrómi. Það er hluti af forvörnum að fara með fíkniefnahund inni á vistina og við fögnum því samstarfi sem lögreglan á við skólayfirvöld í málinu, segir Ari Jóhann Sigurðsson, formaður foreldrafélags Fjölbrautaskólans aðspurður um aðkomu nýstofnaðs foreldrafélags að málinu.
Munið þið eitthvað beita ykkur í málinu? -Nei, þetta er alfarið á forræði skólameistara.

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira
















