Ekki gert ráð fyrir nýrri legu hringvegar í Skagafirði
Á vef Leiðar ehf. kemur fram að félagið hafi fengið svar frá Skipulagsstofnun varðandi athugasemda þess um að sveitarfélagið Skagafjörður hafi ekki tekið tillit til tillögu Leiðar vegna lagningar nýrrar veglínu Hringvegar 1 um Skagafjörð, sem upphaflega var kynnt sveitarfélaginu haustið 2008.
Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hafi afgreitt aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 til staðfestingar umhverfisráðherra og mæli með því að það verði staðfest samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga, með frestun skipulags á þeim fimm svæðum sem sveitarstjórn leggur til og á því svæði sem Vegagerðin leggur til að þjóðvegur 1 (Hringvegur) fari um, sem er á svipuðum slóðum og tillaga Leiðar ehf. hljóðar um.
Kemur fram í bréfi Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra, dags. 15. janúar 2009, sem fylgdi að …”Vegna óskar Vegagerðarinnar um nýja legu Hringvegar 1 á 15 km kafla um Skagafjörð og hlutverks þeirrar stofnunar samkvæmt 2. mgr. 28. gr. vegalaga nr. 80/2007, þar sem segir m.a.: “Ákveða skal legu þjóðvega í skipulagi að fenginni tillögu Vegagerðarinnar að höfðu samráði Vegagerðarinnar og skipulagsyfirvalda”, leggur Skipulagsstofnun til við umhverfisráðherra að skipulagi verði frestað á því landsvæði sem tillaga Vegagerðarinnar um nýja legu Hringvegarins nær yfir, sbr. erindi Vegagerðarinnar dags. 21. október 2009 og erindi Vegagerðarinnar til Sveitarfélagsins Skagafjarðar dags. 1. desember 2009. …”
Sjá nánar HÉR

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















