@ur reynt við Hornfirðinga í kvöld « Feykir.is
fasteignasalanjpg
vinnumidlun1jpg
lettitaeknijpg
sahafurdirjpg
stettarfelagjpg
threksportjpg
ssnvbordijpg
folkidiblokinnijpg
skcomjpg
phverkkassijpg
feykir.is | Skagafjörður | 29.1.10 | 14:04

@ur reynt við Hornfirðinga í kvöld

Útsvarslið Skagafjarðar fær möguleika á að hefna fyrri ófara gegn Hornfirðingum.

Útsvarslið Skagafjarðar gerir í kvöld aðra tilraun til að sigra sprækt lið Hornfirðinga í spurningaþættinum góða, Útsvari. Lið Skagafjarðar haltraði áfram í aðra umferð eftir að hafa tapað með nógu miklum tilþrifum til að komast áfram því liðið stóð sig hvað best þeirra liða sem máttu þola tap í fyrstu umferð.

Svo skemmtilega vildi til þegar dregið var í aðra umferð að Skagfirðingar drógust gegn Hornfirðingum sem höfðu einmitt betur  í fyrstu umferð.

Lið Skagfirðinga skipa sem fyrr Ólafur Sigurgeirsson líffræðingur úr Hjaltadal ásamt Króksurunum Ingu Maríu Baldursdóttur nema og Kristjáni B. Jónassyni útgefanda.

Skagfirðingar fá því lítil frí frá æsispennunni þessa vikuna; handboltalandsliðið á útopnu í Austurríki og Útsvarsliðið milli steins og sleggju á skjánum í kvöld.


styrkirjpg
          
Níels Ársælsson skrifar

Sannleiksnefnd um kvótakerfið

Níels A. Ársælsson skrifar

Þjóðaratkvæði um aflamark eða sóknarstýringu

Kári Gunnarsson skrifar

Biskup og barnaníð

Sjá fleiri pistla