feykir.is | Listir og menning, Skagafjörður | 29.1.10 | 15:05
Ása Svanhildur syngur í kvöld

Ása Svanhildur Guðbrandsdóttir
Söngkeppni félagsmiðstöðva á Norðurlandi verður haldin á Akureyri í kvöld, Friður sendir að sjálfsögðu þátttakenda á keppnina en það er hún Ása Svanhildur sem tekur þátt fyrir Friðar hönd þetta árið.
Fríður flokkur unglinga mun fylgja Ásu til Akureyrar í kvöld en fyrir þá sem ekki komast með er hægt að hlusta á keppnina í beinni útsendingu á www.voice.is en Voice er útvarpsstöð á Akureyri.















