Vegleg gjöf í Hóla frá Magnúsi Sigurðssyni
Magnús Sigurðsson læknir og hestamaður færði Háskólanum á Hólum og Sögusetri íslenska hestsins veglega gjöf við athöfn í dag.
Magnús sem komin er yfir áttrætt hefur í gegnum tíðina safnað orðum og orðatiltækjum sem tengjast hestum og hestamennsku. Við starfslok hellti Magnús sér svo að fullu í verkefnið og vann ötullega og markvisst að gerð orðasafns á þessu sviði. Hann leitaði víða fanga m.a. í útkomnum orðabókum, fornritum, íslenskum bókmenntum, fagbókum um hestinn og í erlendum ritum. Tilgangurinn með orðabókinni var að safna sem flestu um hesta og notkun þeirra allt frá því fyrir Íslandsbyggð. Magnús hafði og í huga að gömul orð sem ný gætu komið til góða í framtíðinni þegar fjölbreytni verður meiri í hestaíþróttum og annarri hestamennsku. Magnús kallar orðasafn sitt Orðfák.
Auk þess að afhenda Háskólanum á Hólum og Sögusetri íslenska hestsins Orðfák til varðveislu og vinnslu færði hann skólanum og setrinu stórt og mikið safn gagna sem hér greinir:
- - Íslenskar bækur (fræðirit, bókmenntir á íslensku)
- - Erlendar bækur (fræðirit, bókmenntir á erlendum málum)
- - Tímarit (Hesturinn okkar, Eiðfaxi, Pony Post, á íslensku, þýsku og fleiri málum)
- - Blöð (íslensk og erlend)
- - Ljósrit (bækur, tímarit – á íslensku og erlendum málum)
- - Hestastyttur og fleira þess háttar (úr gibsi, gleri, málmi, plasti, leir og tré)
- - Myndir (málaðar, teiknaðar, ljósritaðar, prentaðar og saumaðar)
- - Blaðaúrklippur og fleira
Það skal undirstrikað að safnið er mikið og merkt og er það mikill fengur fyrir allt fræðastarf sem tengist hestum og hestamennsku á Hólum. Gjöfin eflir bókasafnið umtalsvert. Sögusetur íslenska hestsins og Háskólinn á Hólum eru þakklát Magnúsi fyrir mikilvægt starf í þágu íslenskrar tungu og menningar, höfðinglega gjöf og þann hug sem hann ber til Hóla í Hjaltadal og þess starfs sem þar er unnið.
/Fréttatilkynning

Jóhanna og Steingrímur – Svariði!
Byggðarráð Skagafjarðar fjallaði í dag á fundi sínum um bréfaskriftir Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra til forætisráðherra en eins og áður hefur komið fram á Feyki.is hefur bréfi frá 21. nóvember 2011 ekki verið svarað á fullnægjandi hátt að mati … lesa meira
Betur má ef duga skal – Ályktun frá Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki fagna því að velferðarráðherra hefur ákveðið að tryggja rekstur endurhæfingar við stofnunina, svo ekki þarf að koma til lokunar eins og í stefndi. Samtökin vilja minna á að þetta er aðeins einn áfangi í þeirri baráttu … lesa meira
Engar bollur á mánudaginn
Matreiðslukappinn Ólafur Jónsson eða Óli á Hellulandi hefur orð á sér fyrir að vera sérlega duglegur og ósérhlífinn og stundum á undan sinni ‚framtíð‘ eins og kallinn sagði. Það sannaðist í dag þegar hann auglýsti í Sjónhorninu matseðil næstu viku … lesa meira
112 dagurinn í Húnaþingi –vestra
Nk. laugardag 11.2 er 112 dagurinn. Af því tilefni ætla viðbragðsaðilar í Húnaþing-vestra að bjóða öllum með í hópakstur um Hvammstanga og allir fá að fara með meðan pláss leyfir, samkvæmt tilkynningu frá Björgunarsveitinni Húnum. Lagt verður af stað í … lesa meira
Lífsins blómasystur komin út
Bókin Lífsins blómasystur er komin út og fjallar hún um hannyrðakonur af Svaðastaðaætt í Skagafirði. Höfundur er Sigrún Ingibjörg Arnardóttir, eða Inga Arnar eins og hún er jafnan kölluð, þjóðfræðingur og fata- og textílkennari. Bókin byggir á rannsóknum hennar á sögu og handverki kvenna af Svaðastaðaætt … lesa meira
Ásbjörn og Einar á opnum stjórnmálafundum
Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður efnir til almenns stjórnmálafundar í Ljósheimum Skagafirði, í dag fimmtudaginn 9. febrúar. Fundurinn hefst klukkan 20. Jafnframt efnir Ásbjörn Óttarsson alþingismaður til fundar í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi á sama tíma. Fundirnir eru opnir öllum. Á undanförnum … lesa meira
Þórarinn Eymundsson í viðtali við Hestafréttir
Hestafréttir birti nýlega viðtal við Þórarinn Eymundsson tamningameistara og kennara við Hólaskóla. Viðtalið er hluti af í röð slíkra sem ganga fyrst og fremst út á að kalla eftir skoðunum kynbótaknapa á breytingunum á yfirlitssýningu Landsmóts. „Að mínu mati eigum … lesa meira
Strokupiltar fundnir
Drengirnir sem struku af meðferðarheimili í Skagafirði í dag og björgunarsveitir leituðu í kvöld eru fundnir. Drengirnir fundust í veiðihúsinu við Skeggstaði þar sem þeir höfðu brotist inn. Samkvæmt heimasíðu Landsbjargar voru björgunarsveitir í Skagafirði og Húnavatnssýslum kallaðar út til leitar … lesa meira














