Þorrablót þvers og kruss « Feykir.is
fasteignasalanjpg
vinnumidlun1jpg
lettitaeknijpg
kroksthrifjpg
sahafurdirjpg
stettarfelagjpg
threksportjpg
ssnvbordijpg
freemanskassijpg
skcomjpg
sjova2gif
svadastadirbordijpg
feykir.is | Listir og menning, Skagafjörður | 6.2.10 | 12:32

Þorrablót þvers og kruss

Frá gömlu og góðu þorrablóti á Króknum.

Það verður vart þverfótað fyrir hrútspungum og sviðasultu í Skagafirði. Þorrablót um fjörðinn þveran og endilangan og örugglega hægt að fullyrða, án þess að þurfa ýkja nokkuð, að vel á annað þúsund manns blóti þorra í Skagafirði þessa helgina.

Í gærkvöldi var sameiginlegt þorrablót Akra-, Lýtingsstaða- og Staðarhrepps haldið í Miðgarði og ekki annað að sjá á Fasbókinni en það hafi heppnast samkvæmt væntingum og jafnvel eitthvað umfram. Geirmundur spilaði þar fyrir dansi og hann heldur áfram í íþróttahúsinu á Króknum í kvöld þegar 57 árgangur Króksara stendur að Króksblóti en fréttir herma að þangað stefni vel á sjötta hundrað manns.

Eldri borgarar blóta sömuleiðis þorra í Ljósheimum í kvöld og ef blaðamanni skjátlast ekki verða á sama tíma þorrablót á Skaganum og á Hólum í Hjaltadal.

Það virðist því ekki kreppa verulega að á þorra þetta árið.


veridskokkhopurjpg
hollvinurjpg
auglysingar3jpg
oskasteinn260x115jpg
          
Einar Kristinn Guðfinnsson skrifar

Kjósum og segjum nei

Einar Kristinn Guðfinnsson skrifar

Lærum af dýrkeyptri reynslu

Gunnar Bragi Sveinsson skrifar

Og þá fór VG í vörn

Sjá fleiri pistla