Engir strákar leyfðir hér…úúúps!!!
-
Hver er maðurinn
(Konur eru líka menn)? Birna Valgarðsd - Hverra manna ertu? Dóttir Valla Valla og Freyju Oddsteins
- Árgangur? Hinn frábæri árgangur´76
- Hvar elur þú manninn í dag? Í Keflavík city
- Fjölskylduhagir? Í sambúð með Sigurði Árna Gunnarssyni
- Afkomendur? Viktor Magni 2 ára og fóstursoninn Árni Steinn 12 ára
- Helstu áhugamál? Fjölskyldan, körfubolti og almenn heimilisstörf
- Við hvað starfar þú? Sem prentari hjá Margt Smátt
- Hraðaspurningar, þær virka þannig að þú botnar upphaf setninga með því fyrsta sem þér dettur í hug.
- Heima er:……………….. allt í drasli
- Það er gaman……………………. á balli með Geirmundi
- Ég man þá daga er…………………… ég og Ásta Magga vorum ungar
Ein gömul og góð sönn saga: Unglingaflokkur Tindastóls var að fara í keppnisferð til Keflavíkur eitt skiptið. Var gist í einum skóla í Keflavík sem er nú ekki frásögu færandi nema hvað að þegar við vorum loksins komnar á leiðarenda og búnar að koma okkur fyrir og byrjaðar að tala saman og hafa læti þá kom húsvörðurinn inn og bað okkur vinsamlega að hafa lægra því það væru fleiri lið hérna. Svo rauk hann inn í herbergið til okkar og sagði við mig og Ingu Dóru út með ykkur það eru engir strákar leyfðir hér…….. úúúps!!!
Spurt frá síðasta viðmælanda……………….. Í einum af okkar mörgu körfuboltaleikjum fyrir Tindastól skoraðir þú aðeins 1 stig (sem að sjálfsögðu var og er mjög óvenjulegt fyrir þig), þegar þú varst í símanum rétt eftir leik að tala um leikinn, hver voru þín viðbrögð þegar viðkomandi spurði: og skoraðirðu bara eitt stig?
Svar: Til að byrja með man ég ekki alveg eftir þessum leik, en ef ég þekki mig rétt hlýt ég að hafa komið með helvíti góða afsökun og orðið eldrauð í framan………..
Hvern vilt þú sjá svara þessum spurningum og hvaða spurningu myndir þú leggja fyrir viðkomandi?
Nafn…………. Atli Freyr Sveinsson
Spurningin er: Hvernig stendur á því að þú hættir að þjálfa í körfubolta, þar sem þú náðir þeim merka áfanga að koma mér á þann stað sem ég er í dag?

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira
















