feykir.is | Aðsendar greinar | 8.2.10 | 14:44

Villufáni LÍÚ

Ólína Þorvarðardóttir skrifar

  LÍÚ hefur blásið til áróðursherferðar gegn svokallaðri fyrningarleið í sjávarútvegi. Nú halda samtökin fund eftir fund, auglýsa í blöðum og skrifa greinar af miklum móð.

Í þessari viku hafa þeir boðað morgunverðarfund á Grand Hótel, þar sem raðað er á mælendaskrána hagsmunaaðilum úr þeirra eigin röðum auk forsvarsmanns matsfyrirtækisins Deloitte sem samtökin keyptu til þess að gera úttekt á áhrifum fyrningarleiðarinnar, fyrir um það bil ári. Afrakstur þeirra viðskipta er skýrsla – litprentuð á glanspappír – sem þeir veifa nú mjög til vitnis um það að íslenskur sjávarútvegur muni fara lóðbeint á hausinn ef fyrningarleiðin verði farin. Engum fulltrúa stjórnvalda eða fylgjenda svonefndrar fyrningarleiðar er boðið að tjá sig á fundinum. Segir það  sitt um það hversu „upplýsandi” umræðurnar muni verða.

Þetta er allt saman mjög skondið. Í fyrsta lagi vegna þess að Deloitte skýrslan sýnir alls ekki áhrif fyrningarleiðar á íslenskan  sjávarútveg. Til þess skortir skýrsluhöfundana forsendur – eins og kemur raunar fram í formálsorðum þeirra.

Í öðru lagi er þetta er skondið vegna þess að LÍÚ menn hafa sjálfir kallað mjög ákaft eftir nánari útfærsluhugmyndum stjórnvalda um framtíðarskipan fiskveiðistjórnunar - segjast ekkert vita hvað stjórnvöld séu yfirleitt að hugsa. Samt telja þeir (og matsfyrirtæki á þeirra vegum) sig geta spáð fyrir um afleiðingarnar af fyrningarleiðinni, þó þeir viðurkenni í hinu orðinu að þeir viti ekki hver útfærsla hennar verði.

Annars er það af margumræddri Deloitte-skýrslu að segja að ég hef borið hana undir hagfræðinga. Meðal annars bað ég Þórólf Matthíasson hagfræðiprófessor að fara yfir hana og gefa mér skriflegt álit á henni. Í álitsgerð sinni benti hann á að í skýrslunni sé notast við afar einfalda (og um leið takmarkaða) aðferðafræði.  Gengið sé út frá  því að með fyrningarleiðinni verði til nýr kostnaðarliður sem ekki hafi áhrif til hækkunar eða lækkunar á aðra kostnaðarliði.  Þar með verði að telja “að höfundum skýrslunnar séu ekki kunn þau áhrif sem inngrip á borð við nýja skattlagningu eða aðrar umgjarðarbreytingar hafa á markaðverð framleiðsluþátta og aðfanga.” Þetta eru grundvallar mistök, segir hann. Í sama streng taka aðrir hagfræðingar sem ég hef rætt við.

Í Deloitte skýrslunni er fullyrt að svokölluð fyrningarleið muni leiða af sér grundvallarbreytingu á skipulagi sjávarútvegsfyrirtækja og því muni þau fara í þrot ef leiðin verði farin. Engin haldbær rök eru þó sett fram fyrir þessu – enda af og frá að innköllun og endurúthlutun veiðiheimilda muni fela í sér grundvallarbreytingar á skipulagi greinarinnar.

Þórólfur segir: „Skipulag greinarinnar er jú nú það að einstakar útgerðir geta leigt til sín kvóta og gera það.  Fyrir þann kvóta greiða þær upphæð sem svarar allt að þeim viðbótarhagnaði sem þær geta fengið af þessum viðbótarkvóta.  Fyrningarleiðin breytir engu hvað þetta varðar, því  ekki getur skipt máli fyrir þann sem greiðir fé fyrir kvótaleigu hver móttakandi greiðslunnar er.”

Niðurstaða þeirra hagfræðinga sem ég hef rætt þetta við er á eina lund: Deloitte skýrslan gefur  ekki á nokkurn hátt mynd af áhrifum svonefndrar fyrningarleiðar á íslenskan sjávarútveg.

Hvað segir það okkur? Jú, það segir okkur meðal annars, að þessi skýrsla sem LÍÚ heldur nú sem mest á lofti, er einfaldlega litprentað áróðursrit á glanspappír: Villuflagg sem þeir veifa til þess að afvegaleiða umræðuna.

Höfundur er alþingismaður.


Feykir.is | 3.2.12 | 18:03

Hrossarekstur í Vatnsdal

Hrossarekstur á Þjóðvegi 1, í Vatnsdal.

Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .


Feykir.is | 3.2.12 | 15:07

33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina

Fjölmennt þorrablót var haldið á Hofsósi um síðustu helgi sem tókst afskaplega vel. Mynd: Bylgja Finnsdóttir

Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 13:32

Fundu kannabisplöntur á eyðibýli

kanabis

Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:50

Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima

Félagsheimilið Ljósheimar í Skagafirði.

Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:18

Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum

Maurice Miller í baráttunni í gærkvöldi. Mynd: Björn Ingvarsson

Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 8:51

Skúli rektor á N4

n4-1

Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 16:01

Kvenfélagskonan á Feykir TV

feykirTV-200x147[1]

Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 14:49

Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi

Munur á þróun hornsíla í ferskvatni og í sjó. Mynd: C. B. Kummel

Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira