Aðalskipulag Skagafjarðar staðfest með fyrirvörum
Skipulagsstofnun hefur staðfest aðalskipulag sveitarfélagsins Skagafjarðar með frestun á þeim svæðum sem sveitarstjórn leggur til og á því svæði sem Vegagerðin leggur til að hringvegur 1 fari um í nýrri legu frá Arnarstapa að Sólheimagerði. Á fundi Skipulags- og byggingarnefnd fagnar ráðið að skipulagið sé staðfest en harmar þá afstöðu Skipulagsstofnunar að leggja til við Umhverfisráðherra að fresta skipulagi á því svæði sem Vegagerðin leggur til að Hringvegur 1 fari í nýrri legu um Skagafjörð.
Fyrir þeirri afgreiðslu Skipulagsstofnunar telur Skipulags- og byggingarnefnd hæpin rök. Sveitarstjórn fer með stjórn skipulagsmála í héraði og telur að Skipulagsstofnun eigi að samþykkja þá tillögu Sveitastjórnar Skagafjarðar að fara í samstarf við Vegagerðina um skipulag á umræddu svæði. Sveitastjórn Skagafjarðar hefur lýst yfir vilja sínum til að vinna að lausn þessa máls í samráði við Vegagerðina og hlutaðeigandi aðila eins og lög gera ráð fyrir. Það teljum við vera góð vinnubrögð og líkleg til farsællar lausnar.
Í bréfi dagsettu 18.12.2009 til Vegagerðarinnar sem einnig var sent Skipulagsstofnun er eftirfarandi rökstuðningur Sveitarstjórnar settur fram.
“Með breytingu á legu Hringvegar, fellur Varmahlíð úr leið, en hún er mikilvæg þjónustumiðstöð fyrir íbúa í framhluta sveitarfélagsins. Leiða má líkur að því að ef hún fellur úr alfaraleið verði ekki rekstrargrundvöllur fyrir þeirri þjónustu og verslun sem er í dag. Slíkt gengur þvert á stefnu sveitarfélagsins. Á meðan ekki liggja fyrir áætlanir um hvernig þá verði unnt að tryggja þjónustu og verslun í þessum hluta sveitarfélagsins og samanburður á lagfæringu Hringvegarins um Varmahlíð og fyrirliggjandi tillögu Vegagerðarinnar m.t.t. umferðaröryggis, mun Sveitarfélagið Skagafjörður ekki breyta legu Hringvegarins. Það er hins vegar vilji sveitarfélagsins að leita samráðs við Vegagerðina um undirbúning að endurskoðun á stofnvegakerfi sveitarfélagsins í kjölfar staðfestingar á aðalskipulaginu. Til marks um það hefur verið gerð grein fyrir tillögum Vegagerðarinnar á skýringaruppdrætti í Aðalskipulagi Skagafjarðar og sveitarfélagið hyggst ekki gera ráð fyrir mannvirkjum á eða í nágrenni veglína sem Vegagerðin leggur til vegna styttingar Hringvegar. ”
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við Sveitarstjórn að Umhverfisráðherra verði gerð grein fyrir sjónarmiðum Sveitarstjórnar og óski eftir að staðfestingu Aðalskipulags Skagafjarðar 2009-2021 verði hraðað sem mögulegt er

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















