Elvar og Fjóla hrepptu Dúddabeinið á Mjúkísmótinu « Feykir.is
fasteignasalanjpg
vinnumidlun1jpg
lettitaeknijpg
sahafurdirjpg
stettarfelagjpg
threksportjpg
ssnvbordijpg
folkidiblokinnijpg
skcomjpg
phverkkassijpg
feykir.is | Hestar, Skagafjörður | 16.2.10 | 9:49

Elvar og Fjóla hrepptu Dúddabeinið á Mjúkísmótinu

Elvar og Laufi svífa á svellinu

Mjúkísmótið fór fram laugardaginn 13. febrúar s.l. en það er keppni  sem fram fer á Holtstjörninni í Seyluhreppi hinum forna og hafa þeir einir keppnisrétt sem eiga land að tjörninni. Fjöldi manns fylgdist með spennandi keppni í rjómablíðu.

Keppnin er bæði einstaklings- og liðakeppni og fjölgaði um eitt lið frá því í fyrra þar sem Sigurjón í Holtskoti mætti með keppnislið í fyrsta sinn í ár.

Lið Elvars og Fjólu hreppti hið glæsilega Dúddabein

  • Úrslit dagsins urðu þessi.
  • Í liðakeppninni:
  • 1.sæti: Syðra-Skörðugil (Elvar& Fjóla)
  • 2.sæti: Ytra-Skörðugil Ingimar Ingimarsson
  • 3.sæti: Halldórsstaðir
  • 4.sæti: Syðra-Skörðugil (Einar & Sólborg)
  • 5.sæti: Syðra-Skörðugil (Eyþór & Dísa)
  • 6.sæti: Holtskot

 

Sigurvegarar í einstaklingskeppninni: Magnús Bragi, Katarina og Elvar.

  • Í einstaklingskeppninni:
  • 1.sæti:  Magnús Bragi Magnússon á Vafa frá Ysta-Mói
  • 2.sæti:  Katharina á Kóng frá Lækjamóti
  • 3.sæti:  Elvar Einarsson á Laufa frá Syðra-Skörðugili

Fjöldi manns mætti til að taka þátt í gleðinni

Einnig var keppt í gerð vísubotna en þar tókust liðin á í orðasnilld en lið Ingimars Ingimarssonar vann þessa keppni með glæsibrag og var það Páll Dagbjartsson sem átti báða botnana sem beðið var um.

Halldór í Brimnesi tilgreinir úrslit mótsins.

Veitingar voru í boði húsmæðra á bæjunum bæði fyrir og eftir keppni í Sundahöllinni þar sem verðlaunaafhendingin fór fram. Þulur mótsins var Gunnar Rögnvaldsson og dómarar voru þeir Halldór Steingrímsson og Bjarni Maronsson.

Nánar verður sagt frá mótinu í næsta Feyki.

Aldeilis góður félagsskapur hér á ferðinni. Elisabeth Jansen, Þórarinn Eymundsson, Magnús B. Magnússon og Guðmundur Valtýsson

 

Lið Elvars og Fjólu

 

Lið Ingimars Ingimarssonar

 

Lið Bjarna Bragasonar

 

Lið Einars Einarssonar

 

Lið Sigurjóns Ingimarssonar

 

Eyþór Einarsson skýtur hér af teygjubyssu í bráðabana en þannig fengust úrslit ef menn stóðu jafnir eftir útreikninga dómara.


styrkirjpg
fatamarkadurjpg
          
Kári Gunnarsson skrifar

Biskup og barnaníð

Níels A. Ársælsson skrifar

Þöggun Hafró og LÍÚ

Jón Magnússon skrifar

Fyrsta fótmál

Sjá fleiri pistla