TVEIR GÓÐIR SAMAN
Laugardaginn 6. mars n.k. halda Karlakórinn Heimir og Karlakór Reykjavíkur tvenna tónleika á norðurlandi. Fyrri tónleikarnir verða í Glerárkirkju á Akureyri og hefjast þeir kl. 15.00 en hinir síðar fara fram í Miðgarði í Skagafirði kl. 20.30.
Viku síðar, 13. mars munu kórarnir endurtaka leikinn með tvennum tónleikum í Langholtskirkju í Reykjavík kl. 15.00 og 17.30.
Segja má að um sögulegan viðburð sé að ræða en þetta mun vera í fyrsta sinn sem þessir tveir fornfrægu karlakórar standa saman að tónleikahaldi. Hér gefst unnendum karlakórssöngs kostur á að hlýða á sígild og minna þekkt kórlög og ekki er síður á ferðinni tækifæri fyrir þá sem ekki hafa vanið komur sínar á slíka tónleika að kynnast þeim vönduðu og voldugu hljóðfærum sem góðir karlakórar sannarlega eru.
Stjórnandi Karlakórsins Heimis er Stefán R. Gíslason og Friðrik S. Kristinsson stýrir Karlakór Reykjavíkur.
Miðaverð er kr. 3000 og eru miðar seldir við innganginn. Hægt er að kaupa miða í forsölu í KS Varmahlíð Kompunni Sauðárkróki og á netinu á www.kkor.is.

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















