Enginn Presley í Miðgarði
Tónleikarnir “ELVIS PRESLEY Í 75 ÁR” sem áttu að vera í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði fimmtudaginn 11. mars nk. falla niður vegna dræmrar þátttöku.
Þeim gestum sem áttu miða í Miðgarði gefst kostur á að sjá tónleikana í Sjallanum á Akureyri föstudagskvöldið 12. mars kl. 20:00.
Þeir sem hafa ekki tök á því að mæta þangað fá að fullu endurgreitt en midi.is setur sig í samband við fólk sem hafði tryggt sér miða.
“Ég vonast til þess að sem flestir sem áttu miða í Miðgarð komi til Akureyrar. Það er leitt að
geta ekki haldið tónleikana í Miðgarði en umfang þeirra er það mikið að það þurfti lágmark 200 gesti til
að láta dæmið ganga upp. Ég er mjög þakklátur þeim sem voru búnir að kaupa sér miða en um leið hryggir það mig að þurfa að hætta við tónleikana. Það er samt mikilvægt að horfa á björtu hliðarnar en nú hafa
Skagfirðingar og nærsveitarmenn góða og gilda ástæðu til að fara í Sjallann á Akureyri!” segir Friðrik Ómar.
Föstudagskvöldið 12. mars verða tónleikarnir “ELVIS Í 75 ÁR” haldnir kl. 20:00
Miðasala er á midi.is

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















