Davíð Örn Þorsteinsson í úrslit í landskeppni í eðlisfræði

Forkeppni í eðlisfræði fór fram í febrúar þar sem framhaldsskólanemendur um land allt þreyttu sérstakt próf og komust þrettán manns áfram. Davíð Örn Þorsteinsson, nemandi FNV, var á meðal efstu manna í landskeppninni og vann sér þátttökurétt í úrslitakeppninni, sem fram fer í mars. Vert er að óska Davíð til hamingju með árangurinn.

Eftirfarandi nemendur komust í úrslit: 

  • Arnór Hákonarson, MR
  • Aron Öfjörð Jóhannesson
  • Auðunn Skúta Snæbjarnarson, MA
  • Áslaug Haraldsdóttir, VÍ
  • Brandur Þorgrímsson, MA
  • Davíð Örn Þorsteinsson, FNV
  • Guðmundur Kári Stefánsson, MR
  • Helga Kristín Ólafsdóttir, MR
  • Jón Hjalti Eiríksson, ML
  • Jón Arnar Tómasson, MR
  • Ólafur Páll Geirsson, Kvennó
  • Sigtryggur Hauksson, MH
  • Sigtryggur Kjartansson, FSS

Feykir.is | 9.2.12 | 15:09

Jóhanna og Steingrímur – Svariði!

johanna_steingrimur

Byggðarráð Skagafjarðar fjallaði í dag á fundi sínum um bréfaskriftir Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra til forætisráðherra en eins og áður hefur komið fram á Feyki.is hefur bréfi frá 21. nóvember 2011 ekki verið svarað á fullnægjandi hátt að mati … lesa meira


Feykir.is | 9.2.12 | 14:50

Betur má ef duga skal – Ályktun frá Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki

Nei ráðherra - mótmæli

Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki fagna því að velferðarráðherra hefur ákveðið að tryggja rekstur endurhæfingar við stofnunina, svo ekki þarf að koma til lokunar eins og í stefndi. Samtökin vilja  minna á að þetta er aðeins einn áfangi í þeirri baráttu … lesa meira


Feykir.is | 9.2.12 | 14:34

Engar bollur á mánudaginn

oli_kokkur

Matreiðslukappinn Ólafur Jónsson eða Óli á Hellulandi hefur orð á sér fyrir að vera sérlega duglegur og ósérhlífinn og stundum á undan sinni ‚framtíð‘ eins og kallinn sagði. Það sannaðist í dag þegar hann auglýsti í Sjónhorninu matseðil næstu viku … lesa meira


Feykir.is | 9.2.12 | 11:09

112 dagurinn í Húnaþingi –vestra

Logo_112dagurinn2010

Nk. laugardag 11.2 er 112 dagurinn. Af því tilefni ætla viðbragðsaðilar í Húnaþing-vestra að bjóða öllum með í hópakstur um Hvammstanga og allir fá að fara með meðan pláss leyfir, samkvæmt tilkynningu frá Björgunarsveitinni Húnum.  Lagt verður af stað í … lesa meira


Feykir.is | 9.2.12 | 10:12

Lífsins blómasystur komin út

lifsins_blomasystur

Bókin Lífsins blómasystur er komin út og fjallar hún um hannyrðakonur af Svaðastaðaætt í Skagafirði. Höfundur er Sigrún Ingibjörg Arnardóttir, eða Inga Arnar eins og hún er jafnan kölluð, þjóðfræðingur og fata- og textílkennari. Bókin byggir á rannsóknum hennar á sögu og handverki kvenna af Svaðastaðaætt … lesa meira


Feykir.is | 9.2.12 | 8:38

Ásbjörn og Einar á opnum stjórnmálafundum

Einar K Guðfinnsson og Ásbjörn Óttarsson

Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður efnir til almenns stjórnmálafundar í Ljósheimum Skagafirði, í dag  fimmtudaginn 9. febrúar. Fundurinn hefst klukkan 20. Jafnframt efnir Ásbjörn Óttarsson alþingismaður  til fundar í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi á sama tíma. Fundirnir eru opnir öllum. Á undanförnum … lesa meira


Feykir.is | 9.2.12 | 7:57

Þórarinn Eymundsson í viðtali við Hestafréttir

Þórarinn Eymundsson

Hestafréttir birti nýlega viðtal við Þórarinn Eymundsson tamningameistara og kennara við Hólaskóla. Viðtalið er hluti af í röð slíkra sem ganga fyrst og fremst út á að kalla eftir skoðunum kynbótaknapa á breytingunum á yfirlitssýningu Landsmóts.  „Að mínu mati eigum … lesa meira


Feykir.is | 9.2.12 | 0:31

Strokupiltar fundnir

Mynd úr gagnasafni frá æfingu skagfirskra björgunarsveita í leit og björgun árið 2009. Mynd: Sólrún, Hólar

Drengirnir sem struku af meðferðarheimili í Skagafirði í dag og björgunarsveitir leituðu í kvöld eru fundnir.  Drengirnir fundust í veiðihúsinu við Skeggstaði þar sem þeir höfðu brotist inn. Samkvæmt heimasíðu Landsbjargar voru björgunarsveitir í Skagafirði og Húnavatnssýslum kallaðar út til leitar … lesa meira