feykir.is | Listir og menning, Skagafjörður | 11.3.10 | 9:03

Sungið fyrir Bólu-Hjálmar

 

Karlakór Reykjavíkur syngur fyrir Bólu-Hjálmar

Á leið sinni frá tónleikum á Akureyri og í Miðgarð um síðustu helgi gerði Karlakór Reykjavíkur stans á ferð sinni og söng við leiði Hjálmars Jónssonar, Bólu Hjálmars, sem staðsett er í kirkjugarðinum á Miklabæ.

  

-Við höfum gert þetta á ferðum okkar að stoppa við leiði látinna tónskálda og heiðrað minningu þeirra sem hafa sett mark sitt á tónlistarsöguna og tengst okkur með einhverjum hætti, segir Dagur Jónasson söngvari KR. -Eitt af þeim lögum sem við sungum á tónleikunum var við texta eftir Bólu Hjálmar „sjá nú hvað ég er beinaber“ lag Sigvalda Kaldalóns. Tónleikar Karlakórs Reykjavíkur og Heimis sem fram fóru um síðustu helgi tókust einkar vel þar sem þó fleiri hefðu mátt berja þessa mögnuðu kóra augum á seinni tónleikunum.

Árni Geir Sigurbjörnsson fékk góðar móttökur hjá heimamönnum

Einsöngvarar kóranna voru í banastuði og var þeim klappað lof í lófa en sérstaka eftirtekt og aðdáun vakti Árni Geir Sigurbjörnsson, hjá Reykjarvíkurkórnum en hann er Skagfirðingur í húð og hár, sonur Sigurbjörns Árnasonar húsvarðar í íþróttahúsinu á Króknum. Fékk hann að vonum sérstakar móttökur hjá heimamönnum fyrir fallegan einsöng í Íslandslagi Björgvins Guðmundssonar og Gríms Thomsen.

Samstarf kóranna heldur áfram því laugardaginn13. mars kl. 15:00 og kl. 17:30 verða tvennir tónleikar í Langholtskirkju í Reykjavík. Á leiðinni suður ætla Heimismenn að koma við í Borgarneskikju og halda tónleika fyrir Borgfirðinga og nærsveitamenn föstudagskvöldið 12. mars kl. 20:30. Nánar er fjallað um tónleikana í nýútkomnum Feyki.

 

Unglingarnir í Heimi


Feykir.is | 3.2.12 | 18:03

Hrossarekstur í Vatnsdal

Hrossarekstur á Þjóðvegi 1, í Vatnsdal.

Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .


Feykir.is | 3.2.12 | 15:07

33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina

Fjölmennt þorrablót var haldið á Hofsósi um síðustu helgi sem tókst afskaplega vel. Mynd: Bylgja Finnsdóttir

Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 13:32

Fundu kannabisplöntur á eyðibýli

kanabis

Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:50

Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima

Félagsheimilið Ljósheimar í Skagafirði.

Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:18

Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum

Maurice Miller í baráttunni í gærkvöldi. Mynd: Björn Ingvarsson

Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 8:51

Skúli rektor á N4

n4-1

Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 16:01

Kvenfélagskonan á Feykir TV

feykirTV-200x147[1]

Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 14:49

Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi

Munur á þróun hornsíla í ferskvatni og í sjó. Mynd: C. B. Kummel

Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira