Þuríður í Delhí – Besti dagurinn enn sem komið er
Verð bara að deila því með ykkur að dagurinn í dag var sá besti hingað til. Allar hreyfingar voru mun sterkari en í gær og Shivanni og mamma sögðu mér báðar að greinilega hefði tá á vinstri fæti hreyfst og sama tá á hægri fæti hefði flikrað örlítið.
Vona svo sannarlega að þetta hafi ekki verið eitthvað tilfallandi – en allavega örlítil ökklahreyfing er komin og henni get ég ekki neitað. Mér gekk þokkalega vel á boltanum og held að ég ráði orðið betur við að hreyfa mig í litla hringi á honum heldur en áður, var samt í smá basli með að lyfta höndunum en ég gerði það samt þó kannski jafnvægið hafi aðeins liðið fyrir þær hreyfingar. Dýnuæfingin gekk líka vel, og mamma sem í fyrsta skipti var aðstoðarmaður þ.e. átti að hjálpa til með hreyfa hægri fótinn var svo aldeilis undrandi þegar hún komst að því að hún gerði í raun ekki neitt annað en að halda undir fótinn sem ég svo hreyfði áfram eða aftur á bak, sem sagt var að skríða á fjórum fótum. Eftir hádegið var svo gangan mikla, og þar var sömu sögu að segja mér gengur mun betur að færa fæturna hvorn fram fyrir annan og sá hægri er farin að hlýða mér mikið betur, ég er hætt að svindla með því að styðja vinstri mjöðminni við grindina ;0). Svo fór ég á tvískiptu spelkurnar, þær sem ég er svo fáránlega í, ég keyrð inn í göngubrautina og hoppaði á gúmíleggina mína. Þetta var allsekki jafn erfitt og í gær og sporin komu miklu betur hjá mér bæði áfram og aftur á bak, ég verð að viðurkenna að ég var svoldið montin. Það lá við að ég vonaði að ég fengi frí frá meiri sprautum svo ég gæti æft mig meira, en sem betur fer verður mér ekki að þeirri ósk því ég fékk boð um að á morgun fari ég í síðustu sprautuna og hún verði framkvæmd hér eins og síðast. Ég þarf að vísu að liggja í fjóra tíma eftir hana þannig að það verða bara rólegheit hjá mér eftir hádegið á morgun. Ég verð að segja ykkur aðeins af samferðafólki mínu. Hr. Molli safnaði alskeggi í vetur, miss Mollý til mikillar armæðu og engin dagur hefur liðið í þessari ferð án þess að hún kommentaði á skeggið, benti á klippistofur og hótaði öllu illu ef skeggið yrði ekki rakað, hr. Molli hefur verið alveg þversum og fundist bara ljótt af miss Mollý að setja út á skeggið, það sé jú hluti af honum. Í dag brá svo við að hr. Molli týndist í 3 klukkutíma, miss Mollý var farin að ókyrrast og orðin hrædd um að hann hefði villst þar sem hann er afskaplega áttavilltur hér í borg. Við Mollý vorum á leið niður í æfingar og biðum eftir lyftunni, lyftan opnaðist og hr. Molli blasti við okkur, ég rak upp stór augu þar sem maðurinn var gjörbreyttur, búin að láta klippa sig og raka allt skegg, hafði bara yngst um 20 ár. Hann heilsaði okkur og rétti miss Mollý bréfpoka, sem ég hélt að innihéldi skeggið en það var þá kaffi. Hún tók við pokanum og sagðist koma á eftir okkur niður, ég gapti, hún hafði ekki sagt neitt! Hr. Molli brosti og sagði uss, hún tók ekki eftir þessu, nauhhh sagði ég, það getur ekki verið, júbb hún sá þetta ekki sagði Molli. Við fórum niður og svo kom miss Mollý hún spjallaði við hr. Molla eins og ekkert hefði gerst, á endanum gaf hann henni hint og allt í einu tók hún eftir að skeggið var farið, augun glenntust upp og svo kom svona innsogshljóð, henni brá. En vitið þið bara hvað hún tók ekkert eftir að hann hafði farið í klippingu, vissi það ekki fyrr en ég sagði henni það í kvöld, ótrúlegt )

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















