Sigurjón tekur slaginn vill Guðjón Arnar sem sjávarútvegsráðherra efni

Sigurjón Þórðarson
Sigurjón Þórðarson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Frjálslynda flokksins en Landsþing flokksins fer fram í Reykjavík helgina 19. – 20. mars. Áður hafði Guðjón Arnar Kristjánsson, sem verið hefur formaður í 7 ár, gefið það út að hann gefi ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku.
-Ég hef starfað með Frjálslynda flokknum frá upphafi og hef djúpa sannfæringu fyrir því að baráttumál flokksins gegnum tíðina hefðu betur náð fram að ganga. Svo sem viðspyrna gegn einkavinavæðingu, skuldsetningu og sanngjörnu og árangursríku fiskveiðistjórnunarkerfi, segir Sigurjón. –Ég er líka vissum að besta leið þjóðarinnar út úr kreppunni sé að fara leið Frjálslynda flokksins og horfa til þess hvar hægt sé að skapa raunveruleg verðmæti og gjaldeyri sem þjóðin þarfnast sárlega. Eins er það vaxtastig sem þjóðin býr við í dag óviðunandi og þarf að snarlækka og má segja að á þessum málum sé hálfgert Bakkabræðralag þar sem er verið að rukka hæstu vexti á byggðu bóli með annarri hendinni en með hinni er verið að afskrifa sömu lán.
Nú á flokkurinn ekki lengur rödd á alþingi er til einhvers að halda áfram? -Við eigum sveitarstjórnarfulltrúa og ég er vissum að í komandi sveitastjórnarkosningum þá muni þeim fjölga. En það er alveg satt sem fram kemur í spurningunni að við eigum ekki fulltrúa nú á þingi og það eru margir sem sakna þeirra radda hef ég orðið var við að það á sértaklega við um þá umræðu sem snýr að undirstöðu atvinnu þjóðarinnar, sjávarútvegsmálum, og kjörum eldri borgara og lífeyrisþega.
Áttu von á mótframboðum? –Alveg eins, ekkert sem ég hef heyrt um.
Aðspurður segist Sigurjón ekki vera kominn með fasta tölu um fjölda fulltrúa á þinginu en hvetur fólk til þess að skrá sig. -Það er mikilvægt fyrir flokkinn að Guðjón Arnar Kristjánsson skuli ætla að starfa áfram að fullum krafti með okkur og mér finnst vel koma til greina ef að flokkurinn nær að komast í ríkisstjórn þegar fram líða stundir að Guðjón Arnar taki að sér embætti sjávarútvegsráðherra.

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















