Þú ert algjör rúða!
Hver er maðurinn? Valgerður Friðriksdóttir
Hverra manna ertu? Dóttir Friðriks Margeirssonar skólastjóra og Öldu Ellertsdóttur
Árgangur? 1962
Hvar elur þú manninn í dag? í Garðabæ
Fjölskylduhagir? Er einstök kona
Afkomendur? Heiðar Örn og Silja Rut. Svo er það Hákon Árni litli ömmuprinsinn minn.
Helstu áhugamál? Þetta týpíska, fjölskyldan, ferðlög, fjallgöngur og sund.
Við hvað starfar þú? Ég er bankastarfsmaður, vinn í MP banka.
Hraðaspurningar, þær virka þannig að þú botnar upphaf setninga með því fyrsta sem þér dettur í hug.
Heima er ………………..best.
Það er gaman…………………….að vera orðin amma.
Ég man þá daga er……………………Blueberry jam var aðal hljómsveitin á Króknum
Ein gömul og góð sönn saga………………
Ein lítil saga af okkur systkinum, ég var 7 ára, Margeir 9 ára og Palli 2 ára.
Ég og Margeir pössuðum Palla litla bróður okkar ansi oft í bernsku, en okkur fannst við vera búin að passa hann nóg og vorum orðin hundþreytt á honum.
Einn daginn tókum við okkur til og löbbuðum út Freyjugötu með Palla á milli okkar. Á leiðinni hittum við Matta Jóns sem spurði okkur hvert við værum að fara. “Við erum á leiðinni á fornbókasöluna” sögðum við með stolti. “Hvað ætlið þið að gera þar?” spurði hann okkur þá. “Við ætlum að selja Palla, hann er alltaf svo óþekkur!” sögðum við í kór.
Matta þótti þetta ágætt hjá okkur en sennilega hefur hann snúið okkur við heim aftur því Palli er enn í Hólavegsfjölskyldunni og við öll mestu mátar.
Spurning til þín……………….. Hver eru skemmtilegustu mismælin sem þú hefur látið út úr þér?
Svar………… Ég held að það hafi verið þegar Heiðar sonur minn var að fara á kjólfataball í Versló. Hann kallaði í mig til að spyrja mig hvort hann væri ekki fínn í fötunum. Ég svaraði að bragði “þú ert algjör rúða” (en ég ætlaði að segja “þú ert alveg glerfínn”)
Hvern vilt þú sjá svara þessum spurningum og hvaða spurningu myndir þú leggja fyrir viðkomandi?
Nafn…………. Hjördís Stefánsdóttir
Spurningin er………………Hvað varð um sameiginlega frímerkjasafnið okkar?

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















