Jakob og Sesselja kokka
Jakob Sigurjónsson og Sesselja Sturludóttir bændur á Hóli í Svartárdal voru matgæðingar Feykis árið 2008 og buðu upp á villbráð, grafna gæs í forrétt, hreindýrasteik í aðalrétt og ís í restina.
Grafin gæs
Mjög einfaldur og góður forréttur, grafin gæs borin fram með snittu-brauði og melónu ef vill.
- 1 gæsabringa
- Gróft salt
Bringan er hulin með grófu salti og látin bíða í þrjá klukkutíma. Saltið er skolað af, bringan sett í kryddblönduna og látin vera þar í sólahring. Síðan er hún skorin í fallegar sneiðar og raðað á fat.
Kryddblanda:
- 1 msk. basil
- 1 msk. timían
- 1 msk. dillfræ
- 1 msk. grænn pipar
- 1 msk. salt
- 1 msk. sykur
- 1 msk. svartur pipar (mulinn)
- 1 msk. óreganó
- 1 msk. sinnepsfræ
Sósa:
- 2 msk. púðursykur
- 1 msk. Worchestershire sósa
- 2 msk. rauðvínsedik
- 1 tsk. Dijon sinnep
- 1 dl. valhnetuolía
- salt og pipar eftir smekk
Hreindýrasteik
Þessi réttur er eins og forrétturinn mjög einfaldur. Mjög góð hrein-dýrasteik. fyrir c.a. 8 manns
- 1 kg. góður hreindýravöðvi
- 3 msk. villijurtir
- frá Pottagöldrum
- 3 dl. gott rauðvín
Blandið víninu og kryddinu saman og hellið yfir kjötið. Breiðið álpappír yfir og látið marinerast í u.þ.b. einn sólarhring. Snúið því öðru hverju í leginum. Hitið ofninn í 130-140 gráður, brúnið kjötið á pönnu, við háan hita, á báðum hliðum. Setjið það síðan í eldfast mót með loki eða breiðið álpappír yfir. Steikið í ofni í u.þ.b. 1 klst. Mjög mikilvægt er að hafa hitann þetta lágan og að elda kjötið ekki of lengi.
Hreindýrasósa:
- 1 msk. smjör
- 2 laukar
- 1 l rjómi
- Soð af hreindýri
- 2 msk. villikrydd frá Pottagöldrum
- 1 askja bláber
- Salt
Saxið laukana mjög smátt og mýkið í smjöri á pönnu. Bætið rjóma, soði og kryddi saman við og látið sjóða. Rétt áður en sósan er borin fram eru bláberin sett út í og látin sjóða vel niður, þannig að sósan verði fallega berjablá. Bragðbætt með salti og pipar ef þarf. Gott er að bera fram ferskt salat með þessari villibráð.
Góður ís
- Mjög einfaldur og góður ís.
- 6 stk. egg
- 1 bolli ljós púðusykur
Þeytt vel saman og 1 tsk. af vanilludropum eða Bailys er sett út í.
- ½ l þeyttur rjómi
- 100 gr. brytjað Toblerone
Rjómanum og Tobleroninu er bætt út í eggjablönduna. Þetta síðan fryst í skemmtilegum ílátum.
Verði ykkur að góðu.

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















