feykir.is | Hinir brottflognu | 22.5.10 | 8:49

Hljóp beint í flasið á rabbabarakónginum

Hver er maðurinn? Hjördís Stefánsdóttir

Hverra manna ertu? Dóttir Stebba Dýllu (Stefáns Guðmundssonar) og Lillu (Hrafnhildar Stefánsdóttur), alin upp í Suðurgötunni.

Árgangur? 1962 

Hvar elur þú manninn í dag? Bý í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd

Fjölskylduhagir? Er gift Kristni Jens Sigurþórssyni og eigum við tvær dætur

Afkomendur?  Marta Mirjam fædd 1987 og Hrafnhildur fædd 1992.

Helstu áhugamál?     Vera með fjölskyldu og vinum, lesa góðar bækur, skoða og uppgötva heiminn, rækta garðinn minn, dútla við ýmsa handavinnu og horfa á breska eðal-sakamálaþætti. Svo finnst mér voða gaman að viða að mér upplýsingum um matargerð og gera tilraunir í eldhúsinu og svo auðvitað að vera í sumarbústað stórfjölskyldunnar í Steinahlíð í gamla Lýdó. Svo nýtur maður þess bara sem lífið hefur upp á bjóða í það og það skiptið og þakkar fyrir að fá að vera til!

Við hvað starfar þú?  Er lögfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

Hraðaspurningar, þær virka þannig að þú botnar upphaf setninga með því fyrsta sem þér dettur í hug.

Heima er ………………..alltaf best.

Það er gaman…………………….að koma í Skagafjörðinn !

Ég man þá daga er…………………… hápunktur sumarsins var að fara á hið árlega Stuðmanna-ball  í Miðgarði, æskan var eilíf og engar voru áhyggjur morgundagsins.

Ein gömul og góð sönn saga………………

Ýmsar sögur koma upp í hugann, en ég held þó að ég deili þessari með ykkur, en hún er mér algjörlega ógleymanleg, ég ætla þó að sleppa því að nefna nöfn að mestu leyti.

Einn fagran sumardag vorum við Anna Jóna vinkona mín staddar í ytri bænum á Króknum en við höfum varla verð meira en svona 8 ára. Þá fékk Anna Jóna þá snildarhugmynd að við skyldum stela rabbabara úr garði sem þarna var. Ég féllst að sjálfsögðu á hugmyndina og sá ekkert að slíku, enda virtist enginn skortur á rabbabara í þessum garði. Nú Anna Jóna klifraði yfir girðinguna og ég stóð á verði. Hún kom svo fagnandi með eina 3 eða 4 rabbabaraleggi og þar sem við ætluðum að fara að gæða okkur á þessum forboðnu ávöxtum þá birtist eigandi garðsins eins og þrumuský með formælingar og blótsyrði á vörum svo eina útgönguleið okkar var að hlaupa af stað. Við hlupum og hlupum hringinn í kringum hús sem þarna var, en ég sleppti ekki rabbabaraleggjunum sem mér höfðu áskotnast. Einhverra hluta vegna tókst Önnu Jónu að stökkva ofan í kjallaratröppur sem þarna voru og fela sig þar, en ég hélt áfram að hlaupa, minnug þess að pabbi átti enn héraðsmetið í 3000 metrunum og ég var viss um að ég myndi slá það í þessu kapphlaupi við rabbabaraeigandann.  Nú það tók ekki betra við en svo að þar sem hleyp á miklum hraða fyrir hornið á húsinu, þá kallar til mín kona, sem þarna var á göngu að karlinn fari öfugan hring, þ.e. komi á móti mér. Ég trúði konunni (man enn hver þetta var og hef oft hugsa henni þegjandi þörfina) og snéri við á punktinum og hljóp í hina áttina. Þá tók ekki betra við en svo að ég hljóp auðvitað beint í flasið á rabbabarakónginum, en hann hafði þá fengið konuna til þess að ganga í lið með sér og ljúga að mér, barninu. Nú ég var handsömuð og hrist til og karlinn hrifsaði þessa tvo rabbabaraleggi sem ég hélt dauðahaldi í til sín. Síðan hélt hann yfir mér mikla skammarræðu þar sem mér voru ekki vandaðar kveðjurnar. Hann sagði að ég væri þjófóttur krakki sem væri stórhættuleg samfélaginu á Króknum og ynni því allt hið versta, ég væri manneskja sem þyrfti að losa sig við og hann myndi sjá til þess að lögreglan næði í mig og sendi eitthvað í burtu. Svo sleppti hann mér og ég lippaðist niður og hljóp heim, hef þá sennileg sett héraðsmet í spretthlaupi. Afleiðingar alls þessa voru þær að ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að segja nokkrum heima frá þessu ævintýri mínu og hélt mig að mestu innan dyra það sem eftir lifði sumri. Ég held ég hafi verið orðin fullorðin þegar ég sagði mömmu loks frá þessari uppákomu. Ég var svo auðvitað alveg logandi hrædd við þennan rabbabarakarl fram eftir öllum aldri og fór ávallt í skjól í mörg ár á eftir ef ég sá hann á förnum vegi.

Spurning Völu Friðriks……………….. Hvað varð um sameiginlega frímerkjasafnið okkar?

Svar………… Já frímerkjasafnið, geri ráð fyrir að það sé í vörslu yfirlögregluþjónsins á Sauðárkróki, en hann fékk í arf eftir mína barnæsku flest allt af slíku dót, þó ekki Barbie.

Hvern vilt þú sjá svara þessum spurningum og hvaða spurningu myndir þú leggja fyrir viðkomandi?

Nafn………….  Guðríði Ólafsdóttur (dóttur Ástu og Ólafs læknis)

Sem sumarstarfsmenn í gamla Búnaðarbankanum upplifðum við það að kaffitímanum var skipt upp eftir kynjum…. Komdu með eina góða kenningu sem gæti útskýrt af hverju?


Feykir.is | 3.2.12 | 18:03

Hrossarekstur í Vatnsdal

Hrossarekstur á Þjóðvegi 1, í Vatnsdal.

Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .


Feykir.is | 3.2.12 | 15:07

33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina

Fjölmennt þorrablót var haldið á Hofsósi um síðustu helgi sem tókst afskaplega vel. Mynd: Bylgja Finnsdóttir

Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 13:32

Fundu kannabisplöntur á eyðibýli

kanabis

Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:50

Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima

Félagsheimilið Ljósheimar í Skagafirði.

Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:18

Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum

Maurice Miller í baráttunni í gærkvöldi. Mynd: Björn Ingvarsson

Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 8:51

Skúli rektor á N4

n4-1

Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 16:01

Kvenfélagskonan á Feykir TV

feykirTV-200x147[1]

Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 14:49

Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi

Munur á þróun hornsíla í ferskvatni og í sjó. Mynd: C. B. Kummel

Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira