Humar með ostabráð
Ásdís Arinbjörnsdóttir og Þórður Pálsson á Blönduósi áttu uppskriftir vikunnar í Feyki í júlí 2008. Þau buðu upp á Humar með ostabráð í forrétt, heitt kjúklingasalatí aðalrétt og marengs með ávöxtum og rjóma í eftirrétt.
Humar með ostabráð
- 1,2 kg. stór humar í skel
- 150 gr. hvítlaukssmurostur
- 200 gr. smjör
- 4 stk. hvítlauksgeirar fínt saxaðir
- 1/2 búnt söxuð steinselja
- Safi úr 1 sítrónu
- Salt og pipar
Kljúfa skelina í tvennt og hreinsa görnina úr. Bræða saman ost og smjör, bæta hvítlauk, steinselju, kryddi og sítrónusafa saman við. Smurt á humarinn og sett undir grill í ofni i 4-5 mín. Borið fram með ristuðu brauði með hvítlaukssmjöri.
Heitt kjúklingasalat
- 800 gr. Kjúklingabringur, skornar í bita.
- 3 msk. sojasósa
- 2 msk. olía
- 1/2 tsk. hvítur pipar
- Slatti af sveppum
Blandið saman í eldfast form og látið standa í 30 mín. og síðan í ofn í 20-30 mín. Beikon skorið í bita, steikt og þurrkað. Hrísgrjón soðin í 6 dl. kjúklingasoði (ca. 2 teningar í 200 g af hrísgrjónum). Beikoni og hrísgrjónum blandað saman við kjúklinginn áður en borið er á borð.
- Meðlæti:
- Salat úr iceberg, blaðlauk og gúrkum.
- Dressing:
- 2-3msk. hvítvínsedik
- 2 msk. vatn
- 2 msk. sinnep (dijon)
- 1 1/2 dl. olía
- 4 marin hvítlauksrif, eða eftir smekk
- 1/2 dl. söxuð steinselja
Öllu blandað saman, ekki verra að láta standa í ísskáp í dálítinn tíma áður en sett er yfir salatið.
- Marengs með ávöxtum og rjóma
- Marengsbotn:
- 3 eggjahvítur
- 1 1/2 dl. púðursykur
- 1 dl. sykur
- 2 stórir bollar Rice crispies
Eggjahvítur, púðursykur og sykur þeytt saman og síðan Rice crispies bætt út í. Sett á bökunarplötu og bakað við 150 ° C í 1 klst.
- Súkkulaði sósa:
- 200 gr. Síríus suðusúkkul.
- 1 dl. Rjómi
- Sett í pott og hitað þar til súkkulaðið er bráðnað, kælið.
- Rjómakrem:
- 1/2 l rjómi
- 3 eggjarauður
- 5 msk. flórsykur
- 2 msk. koníak eða Bailys
Eggjarauður og flórsykur þeytt saman. Rjóminn þeyttur sér og síðan öllu blandað saman. Marengsbotninn brotinn í stykki og settur í mót. Súkkulaðisósunni hellt yfir, síðan rjómakremið og að lokum ferskir ávextir að vild, t.d. jarðaber, kiwi, bláber.
Verði ykkur að góðu

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















