Málþing um Guðrúnu frá Lundi
Guðrún Árnadóttir skáldkona kenndi sig ávallt við fæðingarbæ sinn Lund, sem er í Austur Fljótum í svokallaðri Stíflu. Fljótin eru í nyrsta byggðarlagi Skagafjarðar.
Hugur er í Fljótamönnum sem ætla að heiðra minningu skáldkonunnar í sumar með því að halda málþing undir heitinu Er enn líf í Hrútadal? og verður það laugardaginn 14. ágúst að Ketilási í Fljótum. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra mun opna málþingið.
- Erindi flytja:
- Guðjón Ragnar Jónasson MA. í íslenskum fræðum: Hrútadalur og Fljótin.
- Marín Guðrún Hrafnsdóttir, bókmenntafræðingur og langömmubarn Guðrúnar: Er Guðrún frá Lundi langamma þín?
- Ármann Jakobsson dósent: Er Katla að gjósa? Illu komið til leiðar í Dalalífi.
- Ásta Kristín Benediktsdóttir MA. í íslenskum bókmenntum: Er líf eftir Dalalíf? Hugleiðingar um bækur Guðrúnar frá Lundi.
- Bjarni Harðarson bóksali á Selfossi: Hvernig getur menningin orðið stóriðja sveitanna?
- Í kaffihléi les Ingunn Snædal ljóð þar sem leiðarstefið er hin fagra sveit.
Aðgangseyrir er 1000 krónur fyrir málþing og kaffi. Síðan verður slegið upp harmonikkuballi um kvöldið þar sem andblær hins liðna fær að njóta sín. Félagar úr harmonikkufélagi Skagafjarðar leika fyrir dansi og byrjar ballið kl. 22:00 og stendur til 02:00, eins og var siður hér á árum áður.
Frítt er á tjaldstæðið við Ketilás. Aðrir gistimöguleikar eru á Sólgörðum s. 4671054 og á Bjarnagili s. 4671030.
- Upplýsingar veita:
- Guðjón Ragnar Jónasson í síma: 8600414 gudjonr@mr.is
- Hjördís Leifsdóttir í síma: 8691024 bruna@simnet.is
- Marín Guðrún Hrafnsdóttir í síma: 6645776 marin@hafnarfjordur.is

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















