feykir.is | Aðsendar greinar, Skagafjörður | 22.8.10 | 14:07

Fyrsta fótmál

Jón Magnússon oddviti sjálfstæðismanna.

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna sagði ég í ræðu, að ég gleddist yfir því að Lísa væri ekki ein í Undralandi, því Stefán Vagn væri þar greinilega einnig. Tilefni þessara orða var túlkun oddvita framsóknarmanna á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins, sem var algerlega úr takti við raunveruleikann. Nú hefur Stefáni Vagni  og meðreiðarsveini hans hins vegar tekist að draga alla Skagfirðinga með sér til Undralands, því atburðarásin við ráðningu nýs sveitarstjóra getur vart átt sér stað í Mannheimum, þvílík eru endemin.

Nýjasta töfrabragð þeirra félaga birtist á Feykir.is í gær, þar sem kom fram að öllum umsóknum um auglýst starf sveitarsjóra hafi verið hafnað. Hvað nú ?
Það kemur ef til vill spánskt fyrir sjónir að ég skuli vitna til upplýsinga úr fréttamiðli í þessu samhengi. Sannleikurinn er hins vegar sá, að við sem skipum minnihluta í sveitarstjórn höfum engar upplýsingar fengið frá oddvitum meirihlutans um hið stórbrotna ráðningaferli sveitarstjóra. Fyrirspurnum okkar í minnihlutanum um ráðningu nýs sveitarstjóra hefur ávallt verið svarað á þann veg, að málið sé í „öruggum farvegi“. Svari nú hver fyrir sig.
Í ljósi þessara vinnubragða og ráðaleysis, er hins vegar grafalvarlegt til þess að hugsa, að önnur og veigameiri mál bíða úrlausnar. Ekki hefur enn tekist að koma á dagskrá þessarar sveitarstjórnar umræðu um fjármál sveitarfélagsins, þrátt fyrir síendurteknar óskir minnihlutans og augljóst brýna þörf á að hefja markvissa vinnu í þeim efnum tafarlaust. Svar þeirra Undralandsmanna hefur verið á þá leið, að ekki sé fært að hefja þá vinnu nema í samvinnu við nýjan sveitarstjóra !!. 
Kæru Skagfirðingar, það vekur ugg að hinn nýskipaði meirihluti sveitarstjórnar okkar skuli hefja störf sín með þeim hætti, sem við höfum verið vitni að við ráðningu í starf sveitarstjóra. Það verkefni að ráða starfsmann til verkstjórnar er í eðli sínu einfalt mál, ef ekki búa annarleg sjónarmið að baki. Ef að núverandi meirihluti Framsóknar og VG ætlar að takast á við komandi verkefni með handarbökum og vandræðagangi, er hann ekki á vetur setjandi. Fyrsta fótmál lofar ekki góðu.

Jón Magnússon, sveitarstjórnarfulltrúi


Feykir.is | 3.2.12 | 18:03

Hrossarekstur í Vatnsdal

Hrossarekstur á Þjóðvegi 1, í Vatnsdal.

Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .


Feykir.is | 3.2.12 | 15:07

33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina

Fjölmennt þorrablót var haldið á Hofsósi um síðustu helgi sem tókst afskaplega vel. Mynd: Bylgja Finnsdóttir

Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 13:32

Fundu kannabisplöntur á eyðibýli

kanabis

Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:50

Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima

Félagsheimilið Ljósheimar í Skagafirði.

Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:18

Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum

Maurice Miller í baráttunni í gærkvöldi. Mynd: Björn Ingvarsson

Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 8:51

Skúli rektor á N4

n4-1

Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 16:01

Kvenfélagskonan á Feykir TV

feykirTV-200x147[1]

Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 14:49

Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi

Munur á þróun hornsíla í ferskvatni og í sjó. Mynd: C. B. Kummel

Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira