feykir.is | Hestar, Skagafjörður | 24.8.10 | 8:16

Úrslit Félagsmóts Stíganda

Félagsmót Stíganda fór fram á sunnudag í norðangarra með rigningu á milli. En keppendur létu það ekki á sig fá heldur tóku þátt í fínu móti á Vindheimamelum. Eftir forkeppni í B-flokki sem var á hringvellinum þurfti að færa aðrar greinar á beinu brautina næst dómskúr vegna mikillar bleytu og leðju á hringvellinum. Tóku knapar þessu vel og öttu harða keppni.

A-flokkur                                                                

             Fork./ úrslit

  • 1. Þorsteinn Björnsson og Kylja frá Hólum    8,33 / 8.34
  • 2. Sveinn Brynjar Friðriksson og Gaumur frá Varmalæk  8,19 / 8,12
  • 3. Gestur Stefánsson og Sveipur frá Borgarhóli  8,09 / 8,01
  • 4. Helgi H.Jónsson og Snoppa frá Glæsibæ   7,94 / 7,83
  • 5. Sæmundur Sæmundsson og Baugur frá Tunguhálsi 2  8,10 / 7,43

 

  • B-flokkur
  • 1,Þorsteinn Björnsson og Ögri frá Hólum 8,45 / 8,37
  • 2. Elvar Einarsson og Lárus frá Syðra-Skörðugili  8,29 / 8,25
  • 3. Sæmundur Sæmundsson og Glæðir frá Tjarnarlandi    8,25 / 8,21
  • 4. Sæmundur (Líney Hjálmars í úrsl) og Drottning frá Tunguh 2  8,22 / 8,12
  • 5. Alma Gulla Mattíasdóttir og Tónn frá Tunguhálsi 2   8,19  / 8,03

 

  • Unglingaflokkur
  • 1. Jón Helgi Sigurgeirsson og Bjarmi frá Enni 8,22 / 8,20
  • 2, Katarína Ingimarsdóttir og Johnny Be Good frá Hala 8,20 / 8,18
  • 3. Rósanna Valdimarsdóttir og Vakning frá Krithóli  8,16 / 8,17
  • 4. Ingibjörg Lóa Hjaltadóttir og Bjálki frá Hjalla  8,02 / 8,00
  • 5. Kristófer F.Stefánssson og Kjarkur frá Stóru-Gröf ytri  7,75 / 7,89

 Rósanna var einnig með Spennu frá Krithóli sem var fjórða eftir forkeppni en hún reið Vakningu í úrslitunum. Einnig þurfti Katarína að velja á milli því hún var með Lóm sinn frá Flugumýri í sjötta sæti eftir forkeppni, þannig að Kristófer kom inn í úrslit úr sjöunda sæti.

  • Barnaflokkur
  • 1. Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Mön frá Lækjamóti 8,57 / 8.50
  • 2. Rakel Eir Ingimarsdóttir og Vera frá Fjalli  8,35 / 8,15
  • 3. Helga Benediktsdóttir og Þytur frá Hólum  7,99 / 8,14
  • 4.Viktoría Eik Elvarsdóttir og Taktur frá Hestasýn  7,66 / 8,05
  • 5. Helgi Fannar Gestsson og Njáll frá Höskuldsstöðum 7,95 / 7,85

 

Rakel Eir reið einnig Klakk frá Flugumýri og lenti í fimmta sæti eftir forkeppni en valdi hana Veru til að ríða úrslitin.


Feykir.is | 3.2.12 | 18:03

Hrossarekstur í Vatnsdal

Hrossarekstur á Þjóðvegi 1, í Vatnsdal.

Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .


Feykir.is | 3.2.12 | 15:07

33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina

Fjölmennt þorrablót var haldið á Hofsósi um síðustu helgi sem tókst afskaplega vel. Mynd: Bylgja Finnsdóttir

Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 13:32

Fundu kannabisplöntur á eyðibýli

kanabis

Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:50

Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima

Félagsheimilið Ljósheimar í Skagafirði.

Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:18

Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum

Maurice Miller í baráttunni í gærkvöldi. Mynd: Björn Ingvarsson

Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 8:51

Skúli rektor á N4

n4-1

Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 16:01

Kvenfélagskonan á Feykir TV

feykirTV-200x147[1]

Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 14:49

Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi

Munur á þróun hornsíla í ferskvatni og í sjó. Mynd: C. B. Kummel

Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira