Stefán Sturla fær góða dóma í Finnlandi
Skagfirðingurinn Stefán Sturla Sigurjónsson rithöfundur, leikari og leikstjóri sem nú býr og starfar í Finnlandi setti upp Græna landið eftir Ólaf Hauk Símonarsson í Wasa teater í vor í sænskumælandi leikhúsinu í Vasa í Finnlandi og fékk gríðarlega góða dóma.
Með aðalhlutverkið fór Borgar Garðarsson, leikmyndina gerði Vignir Jóhannsson og þýðinguna gerði Elín Petersdóttir en hún er dóttir Borgars svo það má segja að þetta hafi verið sannkölluð íslensk sýning.
-Með svona snillinga og bestu sænskumælandi leikara Finnlands, auk Borgars, Anna Grönblom og Gogo Idman, eru manni náttúrulega allir vegir færir, segir Stefán sem var mjög sáttur við útkomuna.
-Við fengum frábæra krítík en Bertel Nygård Vasabladet skrifar; „Texti Ólafs Hauks Símonarsonar er pottþéttur, með sterkar setningar, áhrifamiklar meiningar og tilvísanir sem leiða áhorfandan rétta leið. Hin fallega blanda milli sorgar og gleði er hrífandi… Ég hef hugsað um hvort það var eitthvað sem ekki virkaði í leikstjórn Stefáns Sturlu Sigurjónssonar og finn ekkert sem ég get nefnt.“
Og Maria Sandin HBL skrifar; „Fyrir augum okkar varð til mjög sérstakur vinskapur.“

Anna Grönblom og Borgar Garðarsson í hlutverkum sínum í Græna landinu sem Stefán Sturla setti upp í Finnlandi.
-Græna landið var sýnt 25 sinnum fyrir fullu húsi i vor. En þrátt fyrir þennan góða gang ákvað leikhúsið að halda ekki áfram með sýninguna nú í haust. Ég og leikararnir stofnuðum því leikhóp sem við köllum Teater Loki og fórum í samstarf við leikhúsið með að halda áfram sýningum. Við höfðum samband við leikhúsfólk á höfuðborgarsvæðinu… alltso í Helsinki… og viðbrögðin voru ánægjuleg. Við fengum strax boð frá fjórum leikhúsum stórum og smáum, að koma með sýninguna í haust og vetur og sýna hjá þeim. Nú erum við búin að gera samning við Sænska leikhúsið í Helsinki að sýna þar 12 sýningar í október. Þetta er langstæsta sænskumælandi leikhúsið í Finnlandi og því gaman að því að þeir vildu fá okkur sem gestasýningu strax nú í haust. Það er því ekki öll von úti enn fyrir skagfirðinga og aðra íslendinga að koma og sjá þessa uppsetningu í Helsinki, segir Stefán Sturla kampakátur með viðbrögð ánægðra Finna.

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira
















