Réttir á Norðurlandi vestra
Göngur og réttir eru þjóðlegir og spennandi viðburðir ár hvert á Norðurlandi vestra en eins og fólk hefur orðið vart við er haustið á næsta leiti og senn líður að fyrstu réttum þann 4. september.
Helstu fjárréttir á Norðurlandi vestra má nefna Hamarsrétt á Vatnsnesi sem er einkar falleg og sérstök rétt við ströndina. Miðfjarðarrétt í Húnaþingi vestra, Auðkúlurétt og Undirfellsrétt í Austur-Húnavatnssýslu og Staðarrétt og Skarðarétt í Skagafirði.
Helstu stóðréttirnar eru Staðarrétt og Laufskálarétt í Skagafirði, Víðidalstungurétt í Húnaþingi vestra og Skrapatungurétt í Austur- Húnavatnssýslu. Hvergi á landinu koma eins mörg hross saman í stóðréttum eins og á Norðurlandi vestra.
HÉR getur þú séð hvar réttirnar eru staðsettar.
Réttir í Húnaþingi vestra
Fjárréttir
- 4. sept. Miðfjarðarrétt
- 4. sept. Hrútatungurétt
- 10. sept. Valdarásrétt í Fitjárdal
- 11. sept. Víðidalstungurétt
- 11. sept. Þverárrétt í Vesturhópi
- 11. sept. Hamarsrétt á Vatnsnesi
Stóðréttir
- 4. sept. Miðfjarðarrétt – snemma morguns
- 25. sept. Þverárrétt í Vesturhópi
- 1. okt. Víðidalur – stóðsmölun.
- Gestum boðið í smalamennsku.
- 2. okt. Víðidalstungurétt
- – hestasýningar og skemmtun
Réttir í Austur-Húnavatnssýslu
Blönduósbær:
- 11.-12. sept. Skrapatungurétt – fjárréttir
- 19. sept. Skrapatungurétt – stóðréttir.
- Gestum boðið í smalamennsku.
Húnavatnshreppur:
Fjárréttir
- 4. sept. Rugludalsrétt
- 4. sept. Auðkúlurétt
- 11. sept Stafnsrétt
- 12. sept. Hlíðarrétt
- 10.-11. sept. Undirfellsrétt
Stóðréttir
- 20. sept. Hlíðarrétt
- 25. sept. Auðkúlurétt
- 25. sept. Undirfellsrétt
Skagabyggð:
11. sept. Fossárrétt – fjárréttir
Réttir í Skagafirði
Fjárréttir
- 4. sept. Deildardalsrétt
- 4. sept. Árhólarétt – Unadalur
- 10. sept. Stíflurétt í Fljótum
- 11. sept. Stafnsrétt
- 11. sept. Sauðárkróksrétt
- 11. sept. Skarðarétt
- 11. sept. Holtsrétt í Fljótum
- 11. sept. Flókadalsrétt í Fljótum
- 11. Sept. Selárrétt á Skaga
- 12. sept. Laufskálarétt
- 12. sept. Staðarrétt
- 13. sept. Silfrastaðarétt
- 18. sept. Hofsrétt
- 19. sept. Hlíðarrétt
- 19. sept. Mælifellsrétt
Stóðréttir
- 12. sept. Silfrastaðarétt
- 18. sept. Staðarrétt
- 18. sept. Skarðarétt
- 24. sept. Árhólarétt – Unadalur
- 24. sept. Deildardalsrétt
- 25. sept. Laufskálarétt
- 2. okt. Flókadalsrétt í Fljótum

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira
















