feykir.is | Hestar, Skagafjörður | 25.8.10 | 13:31

Firmakeppni og félagsmót Léttfeta fór fram um helgina. Skapti maður mótsins

Sigurvegarar í A-flokki

Félagsmót Léttfeta fór fram laugardaginn 21.ágúst s.l.   Keppt var í A.- og B.-flokki, barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki og 100 m.skeiði.  Góð hross voru á mótinu, hæst dæmda hrossið var Hróaskelda frá Hafsteinsstöðum með 8,68 í einkunn enda valinn glæsilegasti hestur mótsins.  Skapti Steinbjörsson á Hafsteinsstöðum kom sterkur til leiks og vann bæði A.- og B. flokk auk þess að vera með tvö önnur hross í úrslitum í sömu flokkum.  

Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:

A.-Flokkur:

  1. Dofri f. Úlfsstöðum / Skapti Steinbjörnsson  8,50 / 8,39
  2. Vordís f. Sjávarborg / Pétur Örn Sveinsson    8,27 / 8,23
  3. Hrynjandi f. Sauðárkróki / Magnús Bragi Magnússon           8,23 / 8,21
  4. Kolbeinn f. Hafsteinsstöðum / Skapti Steinbjörnsson (Egill Bjarnason í úrlitum) 8,19 / 8,08
  5. Drangey f. Miðsitju / Guðmundur Sveinsson 8,14 / 8,00

B.-Flokkur:

  1. Hróaskelda f. Hafsteinsstöðum / Skapti Steinbjörnsson         8,68 / 8,47
  2. Kolbeinn f. Sauðárkróki / Julia Stefanie Ludwiczak  8,50 / 8,44
  3. Steingrímur f. Hafsteinsstöðum / Skapti Steinbjörnsson (Egill Bjarnason í úrlitum) 8,24 / 8,27
  4. Draumur f. Sauðárkróki / Árni Þór Friðriksson                      8,14 / 8,05
  5. Héla f. Sauðárkróki / Svala Guðmundsdóttir             8,13 / 8,10
  6. Sigurvegarar í B-flokki

Ungmennaflokkur:

  1. Hallfríður Óladóttir / Ræll f. Varmalæk                                  8,33 / 8,22
  2. Egill Bjarnason / Seiður f. Kollaleiru                          8,32 / 8,30
  3. Svala Guðmundsdóttir / Þyrill f. Hólakoti                  8,19 / 8,01
  4. Sigurlína Magnúsdóttir / Sunna f. Stóru-Ökrum                     8,03 / 8,02
  5. Sigurður Heiðar Birgisson / Stígur f. Íbishóli              7,87 / 7,34

Unglingaflokkur:

  1. Steindóra Haraldsdóttir / Gustur f. Nautabúi              8,45 / 8,22
  2. Elín Magnea Björnsdóttir / Gola f. Ytra-Vallholti       8,36 / 8,18
  3. Friðrik Andri Atlason / Hvella f. Syðri-Hofdölum     8,24 / 7,88
  4. Lýdía Ýr Gunnarsdóttir / Stígandi f. Hofsósi             8,22 / 8,04
  5. Bryndís Rún Baldursdóttir / Tenór f. Eyjarkoti                      8,04 / 8,10

Barnaflokkur:

  1. Guðmar Freyr Magnússon / Frami f. Íbishóli             8,44 / 7,88
  2. Magnús Eyþór Magnússon / Mánadís f. Íbishóli                    7,91 / 7,62
  3. Aníta Ýr Atladóttir / Demantur f. Syðri-Hofdölum    7,67 / 8,52

100 m. Skeið:

  1. Guðmar Freyr Magnússon / Fjölnir f. Sjávarborg       8,31 / 8,51
  2. Steindóra Haraldsdóttir / Glanni f. Syðra-Skörðugili  10,11 / 11,55
  3. Pétur Örn Sveinsson / Tópas f. Sjávarborg                 10,36 / —–
  4. Magnús Bragi Magnússon / Korri f. Sjávarborg                     11,39 / —–

 

Úrslit í Firmakeppni Lettfeta

Firmakeppni Léttfeta fór fram föstudagskvöldið 20.ágúst s.l.  og var þáttaka góð.   Keppt var í fimm flokkum, barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, kvennaflokki og karlaflokki.  Mótanefnd Léttfeta vill koma þökkum til styrktaraðila keppninnar fyrir þeirra stuðning.  Annars voru úrslitin urðu eftirfarandi:

Kvennaflokkur:

  1. Camilla Sörensen á Blæng f. Húsavík / Fluga
  2. Arndís Brynjólfsdóttir á Hlyn f. Vatnsleysu / Vörumiðlun
  3. Guðrún Hanna Kristjánsdóttir á Töffara f. Hlíð / Verslun Haraldar Júlíussonar
  4. Anna Lóa Guðmundsdóttir á Þyrli f. Hólkoti / Topphestar
  5. Þórhildur Jakobsdóttir á Kolgerði f. V.-Leirárgörðum / Deloitte

Karlaflokkur:

  1. Sigurbjörn Þorleifsson á Elvu f. Langhúsum / Trésmiðjan Ýr
  2. Brynjólfur Jónsson á Koníaks-Rauð f. Reykjum / Sjóvá
  3. Guðmundur Sveinsson á Spegli f. Sauðárkróki / Dýralæknaþjónusta Stefáns Friðrikssonar
  4. Gunnar Eysteinsson á Stíganda f. Hofsósi / Snyrtistofan Táin
  5. Árni Friðriksson á Draum f. Sauðárkróki / Króksverk

Ungmennaflokkur:

  1. Hallfríður Óladóttir á Ræl f. Varmalæk / K-Tak
  2. Svala Guðmundsdóttir á Hélu f. Sauðárkróki / Landsbankinn
  3. Karitas Guðmundsdóttir á Gneista f. Miðhúsum / Efnalaug Sauðárkróks
  4. Egill Bjarnason á Hugleik f. Hafragili / Leiðbeiningamiðstöðin
  5. Sigurlína Magnúsdóttir á Sunnu f. Stóru-Ökrum / Byggðastofnun

Unglingaflokkur:

  1. Steindóra Haraldsdóttir á Takt f. Varmalæk / Hádrangi
  2. Friðrik Andri Atlason á Létti f. Kvistum / Fasteignasala Sauðárkróks
  3. Bryndís Baldursdóttir á Tenór f. Eyjarkoti / Sauðárkrókshestar
  4. Lydía Gunnarsdóttir á Geysi f. Hofsósi / Ólafshús
  5. Ragnheiður Petra Óladóttir á Rán f. Skefilsstöðum / Hótel Tindastóll

Barnaflokkur:

  1. Guðmar Freyr Magnússon á Blæ frá Íbishóli / K.S. Birfreiðaverkstæði
  2. Hafdís Lára Halldórsdóttir á Gustur frá Hlíð / K.S. Vélaverkstæði
  3. Aníta Ýr Atladóttir á Demant f. S.-Hofdölum / Tannlæknastofa Ingimundar
  4. Magnús Eyþór Magnússon á Mánadís f. Íbishóli / Nýprent.

Feykir.is | 3.2.12 | 18:03

Hrossarekstur í Vatnsdal

Hrossarekstur á Þjóðvegi 1, í Vatnsdal.

Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .


Feykir.is | 3.2.12 | 15:07

33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina

Fjölmennt þorrablót var haldið á Hofsósi um síðustu helgi sem tókst afskaplega vel. Mynd: Bylgja Finnsdóttir

Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 13:32

Fundu kannabisplöntur á eyðibýli

kanabis

Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:50

Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima

Félagsheimilið Ljósheimar í Skagafirði.

Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:18

Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum

Maurice Miller í baráttunni í gærkvöldi. Mynd: Björn Ingvarsson

Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 8:51

Skúli rektor á N4

n4-1

Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 16:01

Kvenfélagskonan á Feykir TV

feykirTV-200x147[1]

Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 14:49

Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi

Munur á þróun hornsíla í ferskvatni og í sjó. Mynd: C. B. Kummel

Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira