Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í Hofi
Hátíðartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verða í Hofi þann 29. ágúst. Þetta er upphaf 18. starfsárs hljómsveitarinnar og stór tímamót í sögu hennar þar sem hún er nú að fá fastan samastað í Hofi hinu nýja menningarhúsi á Akureyri. Einleikari á tónleikunum er hinn frábæri píanóleikari Víkingur Heiðar Ólafsson og flytur hann píanókonsert eftir Edvard Grieg. Víkingur lauk námi frá Juilliard skólann í New York vorið 2008 hefur síðan þá fengist við margvísleg verkefni í tónlist, ferðast sem einleikari og kammermúsíkant, umritað íslensk sönglög fyrir einleikspíanó, haldið meistaranámskeið og komið víða fram. Meðal hljómsveita sem Víkingur hefur leikið einleik með eru Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Juilliard skólans og Fílharmóníusveitin í Turku. Víkingur hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir leik sinn, m.a. tvívegis Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins (2006) og bjartasta vonin (2004). Það er Sinfóníuhljómsveitinni því mikið ánægjuefni að fá Víking sem einleikara með hljómsveitinni á þessum merku tímamótum, fyrstu tónleikum hljómsveitarinnar í Hofi.
Á tónleikunum verður einnig frumflutt tónverk eftir Hafliða Hallgrímsson tónskáld sem samið er sérstaklega í tilefni opnunarinnar Hofs. Þetta er hátíðarforleikur sem hann nefnir HYMNOS op. 45. Hafliði Hallgrímsson er fæddur á Akureyri og hóf þar sitt tónlistarnám. Hann er búsettur í Skotlandi og hefur helgað sig tónsmíðum og hlotið fyrir þær margvíslegar viðurkenningar, meðal annar hlaut hann Tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1986 fyrir Poemi, konsert fyrir fiðlu og strengjasveit. Hafliði er staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands árin 2008-2011.
Tónleikunum lýkur síðan á Sinfóníu nr. 9 „Frá Nýja heiminum “ eftir tékkneska tónskáldið A. Dvorák. Dvorák bjó um skeið í New York og var Nýja-heims sinfónían var samin og frumflutt þar. Hún er sögð vera tjáninghans á því hvernig Ameríka orkaði á hann en um leið tjáir sinfónían söknuð hans eftir föðurlandinu.
Stjórnandi á tónleikunum er Guðmundur Óli Gunnarsson. Uppselt er á tónleikana.

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















