Gengum úteftir til Búbba og keyptum Lindubuff
Hver er maðurinn? Sigurlaug Margrét Bragadóttir ( Magga Braga )- Hverra manna ertu? Dóttir Laugu Sveins og Braga Sig
Árgangur? Er svo heppin að tilheyra “59 árgangnum, þessum eina sanna
Hvar elur þú manninn í dag? Ég bý á Borgarfirði eystri í húsi sem heitir Vörðubrún og er í þorpinu Bakkagerði.
Fjölskylduhagir? Er í sambúð með Karli einum Sveinssyni og á með honum tvær dætur Kolbrúnu og Hallveigu
Helstu áhugamál? Öll útivist svo sem fjallgöngur, reiðmennska, hundatúrar og gönguskíði, smíðar, garðvinna, ömmuhlutverkið og áfram mætti telja
Við hvað starfar þú? Ég er grunnskólakennari og kenni hér við skólann og rek Álfacafé á sumrin
Hraðaspurningar, þær virka þannig að þú botnar upphaf setninga með því fyrsta sem þér dettur í hug.
Heima er ..notarlegt
Það er gaman… þegar Árni Egils mætir með hattinn á Bræðsluna
Ég man þá daga er … við Maja Bödda gengum úteftir til Búbba og keyptum Lindubuff
Ein gömul og góð sönn saga………….
Það er nú það ég glími við óskaplega mikið minnisleysi frá þessum árum, nema hvað ég man hrekkina hennar Helgu nokkuð vel. Einhvern tímann hafði ég sagt krökkunum að ég ætlaði hvorki að gifta mig né eiga börn heldur búa út í Noregi með norskum greifa og hafa það gott og ég gæti alveg passað krakkana sem þau ætluðu að eiga. Ívar póstur var í sérlegu uppáhaldi hjá mér enda var maðurinn iðinn við að færa mér bréf. Þetta voru hin skrautlegustu umslög frá hinum ýmsu löndum því það var mjög vinsælt að eiga útlenska pennavini. Einn daginn kom hann með bréf sem prentað var utan á, ákaflega dularfullt og inn í því var ljóð um mig og norska greifann sem átti að syngjast við lagið Játning eftir Sigfús Halldórsson. Strax grunaði mig nú að þarna væri Helga á ferð en hún vildi nú ekki kannast við það blessunin en játaði síðar að hún og Maja hefðu verið í skáldastuði. Vísurnar á ég ennþá vel geymdar heima á Krók og hef nú hugsað mér að sýna þeim stöllum þær við gott tækifæri.
Spurning Helgu Stefaníu……..
Spurning: Af hverju gaf Yngvi Geirmunds þér nafnið ,,Magga persóna,,?
Það er nú það. Ég held að það hafi verið vegna þess að það fór ferlega í taugarnar á mér þegar verið var að segja að þessir og hinir væru ljótir. Og ég benti kurteisislega á að það ætti að dæma fólk eftir persónu þess en ekki útliti, það var náttúrlega alveg eftir Yngva að kalla mig svo ,,Möggu persónu,, eftir það
Hvern vilt þú sjá svara þessum spurningum og hvaða spurningu mundir þú leggja fyrir viðkomandi?
Nafn…. Sigríði Sigmundsdóttur (Siggu Simma)
Hvað gerir þú til að viðhalda þínu góða minni ?
(og endilega leiðréttu mig ef persónusagan er vitlaus þú mannst þetta betur en ég)

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















