feykir.is | Íþróttir, Ljósmyndavefur, Skagafjörður | 4.9.10 | 9:50

Myndir frá golfmóti burtfluttra Skagfirðinga

Púttin æfð á Hamri og Hafnarfjallið í baksýn.

Í vikunni sögðum við frá árlegu golfmóti burtfluttra Skagfirðinga sem fram fór á Hamarsvelli í Borgarnesi laugardaginn 28. ágúst s.l. Er þetta án efa orðið eitt stærsta og glæsilegasta átthagagolfmót sem haldið er hér á landi. Nú hafa bæst við fjölmargar myndir sem Björn Jóhann Björnsson tók og sendi Feyki.

Sigurður Jóhann Hallbjörnsson, Siggi Jói, og Örn Sölvi Halldórsson voru kampakátir að morgni og enn kátari er líða tók á daginn og sól hækkaði á lofti.

 

Létt yfir mannskapnum í byrjun, hér má m.a. sjá Soffíu Daníels hans Bigga Guðjóns, Sigurgeir Þórarinsson, Mallý Har, Ingu Jónu Stefánsdóttur og Reyni Pálsson úr Fljótunum og Hjördísi Sigurjóns hans Kidda Blöndal, allt meira og minna miklir briddsarar auk hæfileika á golfvellinum.

 

Kári Valgarðsson fjölmennir jafnan á Skagfirðingamótið með sitt lið og hér er hann ásamt hluta af fjölskyldunni; börnum og tengdabörnum.

 

Hjónakornin Ingileif Oddsdóttir og Sævar Steingríms á tali við Villa Agnars sem kom og heilsaði upp á gamla sveitunga.

 

Mótsformaðurinn Gunni bakari ber sig vel með pútterinn góða.

 

Atli Freyr Sveinsson og Vigfús Vigfússon vígalegir og klárir í slaginn við 5. brautina.

 

Atli Freyr fór hamförum í einni glompunni á 6. braut og vildi helst láta moka yfir hana og tyrfa!

 

Hofsósingar klárir á 2. braut, Broddi Þorsteins, Þorsteinn Þorsteins og kona hans Jónína Helga Jónsdóttir, og Guðni S. Óskars hennar Rósu Þorsteins.

 

Kári Valla og fjölskylda slaka á að móti loknu.

 

Broddi Þorsteins, Guðbjörg Hólm, Þorsteinn Þórsson og kona hans, Elísabet Böðvarsdóttir, Guðni Óskars, Jónína Helga og Þorsteinn Þorsteins.

 

Birgir S. Bjarnason í fríðum kvennahópi, fv Kristbjörg Kemp, Ragnheiður Matthíasdóttir, Edda Traustadóttir, Gunnlaug Hartmanns og Herdís Sæm.

 

Börn Guðjóns Ingimundar og tengdabörn hafa sjaldan verið fleiri á Skagfirðingamóti, f.v. Soffía Daníelsdóttir, Birgir, Ingibjörg, Björn Sigurðsson, Sigurður og Svanborg. Dóttir Bigga og Soffíu mætti einnig og sigraði i kvennaflokknum.

 

Bræðurnir Sigurður og Ragnar Marteinssynir ásamt konum sínum, Guðrúnu Árnadóttur og Sigríði Önnu Guðjónsdóttur, sem var í símanum að ræða við son þeirra Ragga sem komst ekki á mótið að þessu sinni.

 

Ólafur Árni Þorbergsson lýsir einu höggi sínu fyrir Guðmundi Ragnars og Halldóri dómara Halldórssyni.

 

Frímann Guðbrands bíður pollrólegur eftir úrslitunum ásamt fleirum góðum Skagfirðingum.

 

Kylfingar nutu sólarinnar suður undir húsvegg á Hamri á meðan verið var að undirbúa verðlaunaafhendingu.

 

Sigurfinnur Sigurjóns og Haffi Begga í heitum samræðum um golfið og Jóney Kristjánsd hans Fúsa Agnars fylgist sposk með.

 

Að þessu sinni voru veitt vegleg verðlaun fyrir fæstu punktana og þessa vafasama heiðurs nutu tengdabörn Möggu í Blómabúðinni, þau Vigfús Vigfússon og Edda Traustadóttir, hér með golfenglamyndir eftir Sjöfn Sigfúsdóttur, systur Fúsa Agnars.

 

Stefán Örn Guðmundsson Skagfirðingamótsmeistari 2010 tekur við bikarnum úr hendi Sólrúnar Steindórs.

 

Sólrún Steindórs, Gunni bakari og Fúsi Agnars stóðu í ströngu í verðlaunaafhendingu og nutu aðstoðar frá Auði hans Frímanns Guðbrands við úrdráttinn góða.

 

Gunnar Þ. Guðjónsson, Gunni bakari, mótsformaður ásamt tveimur gömlum iðnjöfrum á Króknum, Þórði Hilmarssyni í Steinullinni og Birgi Bjarnasyni í Loðskinni.


Feykir.is | 3.2.12 | 18:03

Hrossarekstur í Vatnsdal

Hrossarekstur á Þjóðvegi 1, í Vatnsdal.

Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .


Feykir.is | 3.2.12 | 15:07

33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina

Fjölmennt þorrablót var haldið á Hofsósi um síðustu helgi sem tókst afskaplega vel. Mynd: Bylgja Finnsdóttir

Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 13:32

Fundu kannabisplöntur á eyðibýli

kanabis

Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:50

Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima

Félagsheimilið Ljósheimar í Skagafirði.

Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:18

Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum

Maurice Miller í baráttunni í gærkvöldi. Mynd: Björn Ingvarsson

Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 8:51

Skúli rektor á N4

n4-1

Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 16:01

Kvenfélagskonan á Feykir TV

feykirTV-200x147[1]

Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 14:49

Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi

Munur á þróun hornsíla í ferskvatni og í sjó. Mynd: C. B. Kummel

Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira