Ákvörðun ráðherra að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju er ólögmæt
Sú ákvörðun sjávarútvegsráðherra að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju á komandi fiskveiðiári er ólögleg samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið hefur verið fyrir Landssamband íslenskra útvegsmanna og ráðuneytinu hefur verið kynnt.
Í álitinu segir m.a. að ákvörðun ráðherra „ … stenst ekki lög um stjórn fiskveiða og er því ólögmæt og ógildanleg.”
Þegar fiskveiðiárinu 2009/2010 lauk hafði allur 7000 tonna rækjukvótinn veiðst. Rétt er að halda því til haga að ákvörðun ráðherra um að gefa ekki út aflamark byggðist á því að veiðar á rækju hefðu á undanförnum árum verið undir leyfilegum heildarafla.
Útvegsmenn hafa bent á að á þessu séu eðlilegar skýringar. Hrun í afla á sóknareiningu og lækkun á afurðaverði samfara hækkandi olíuverði, sem rúmlega tvöfaldaðist á árunum 2004-2008, varð til þess að veiðar báru sig ekki. Í lögfræðiálitinu segir um þetta: „Er minnt á bráðabirgðaákvæði laganna um fiskveiðistjórnun sem aftengt hafa veiðiskyldu á úthafsrækju vegna erfiðleika í greininni. Svo virðist sem, auk annars sé algjörlega horft framhjá þessum staðreyndum við ákvarðanatöku ráðherra.”
Í álitinu segir einnig að „ … veigamikil og málefnaleg rök þurfi til að ráðherra sé heimilt að líta framhjá tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar og á það sérstaklega við þar sem tillaga stofnunarinnar var algjörlega hunsuð í því tilviki sem hér er til skoðunar.”
/liu.is

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















