Góð staða Tindastóls eftir sigur á Selfossi
Tindastóll gerði góða ferð á Selfoss í dag þar sem liðið lék við Árborg sem hefur farið mikinn í 3. deildinni í sumar. Þetta var fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum 3. deildarinnar og fer síðari leikurinn fram á Sauðárkróksvelli næstkomandi miðvikudag kl. 17:15. Og úrslitin? Jú, 3-0 fyrir Tindastól.
Að sögn Sigga Donna, þjálfara Stólanna, var hann mjög ánægður með liðsheildina í dag sem skóp sigurinn. Liðið lék skipulagðan og agaðan leik, menn voru samstíga í varnarleiknum og sóttu hratt á heimamenn þegar færi gafst eins og lagt var upp með. Lið Árborgar á sterkan heimavöll en leikið er á gervigrasi sem þykir nú ekki alltaf góðs viti fyrir gestaliðin.
Árni Ödda skoraði fyrsta mark leiksins með góðum skalla eftir sendingu frá Pálma Valgeirs en Árni hafði reyndar rotast fyrr í leiknum en lét það ekki aftra sér. Staðan 1-0 í hálfleik. Arnar Sigurðs kom Stólunum síðan í 2-0 eftir laglegt einstaklingsframtak og það var síðan Kiddi Aron sem innsiglaði sigurinn með sínu þriðja marki í þremur leikjum. Ekki slæmt að detta í stuð í úrslitakeppninni. Lokatölur 3-0.
Sem fyrr segir er seinni leikur liðanna á Sauðárkróksvelli nú á miðvikudaginn og rétt að benda stuðningsmönnum Stólanna á leiktímann – korter yfir 5. Stólarnir eru nú í góðum séns með að endurheimta sætið í 2. deild en þjálfarinn er með það á hreinu að það er aðeins fyrri hálfleikur búinn í einvíginu og sætið í 2. deildinni ekki gulltryggt enn. Það er því ekki úr vegi að stuðningsmenn Tindastóls fjölmenni á völlinn og styðji strákana til góðra verka. Áfram Tindastóll!

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















