feykir.is | Austur-Húnavatnssýsla | 6.9.10 | 9:47

Grafa notuð við hvalskurð

Hvalur og grafa. Mynd. Skagaströnd.is

Á annan hátt er unnið að hvalreka nú á dögum en áður fyrr. Þá var hnífum og sveðjum beitt á hvalinn og hann skorinn niður í hæfilega hluta svo hægt væri að flytja hann heim á hestum eða gangandi. Þá var allt nýtt nema ef til vill beinin. Og þó … dæmi eru um að þau hafi verið notuð til húsbygginga.

Nú eru aðrir tímar, segir á Skagaströnd.is. Steypireyðurin á Skaga er unnin á annan máta. Í stað hnífa af öllum stærðum er brúkuð skurðgrafa af stórri gerð og vinnur hún hratt og vel á hræinu. Ekkert er lengur nýtt nema beinin því ætlunin er að hafa beinagrindina til sýnis fyrir fróðleiksfúsa námsmenn og aðra þá sem áhuga hafa. Og grafan mætti þess vegna kallast „hvalskurðgrafa“.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær. Ekki eru þeir öfundsverðir sem vinna við hvalinn. Þvílík ýldulykt var af honum að hún fannst upp í flugvélina … og trúi því hver sem vill.

/Skagaströnd.is


Feykir.is | 3.2.12 | 18:03

Hrossarekstur í Vatnsdal

Hrossarekstur á Þjóðvegi 1, í Vatnsdal.

Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .


Feykir.is | 3.2.12 | 15:07

33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina

Fjölmennt þorrablót var haldið á Hofsósi um síðustu helgi sem tókst afskaplega vel. Mynd: Bylgja Finnsdóttir

Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 13:32

Fundu kannabisplöntur á eyðibýli

kanabis

Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:50

Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima

Félagsheimilið Ljósheimar í Skagafirði.

Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 9:18

Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum

Maurice Miller í baráttunni í gærkvöldi. Mynd: Björn Ingvarsson

Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira


Feykir.is | 3.2.12 | 8:51

Skúli rektor á N4

n4-1

Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 16:01

Kvenfélagskonan á Feykir TV

feykirTV-200x147[1]

Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira


Feykir.is | 2.2.12 | 14:49

Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi

Munur á þróun hornsíla í ferskvatni og í sjó. Mynd: C. B. Kummel

Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira