Sannleiksnefnd um kvótakerfið
Áður en Alþingi fer að fjalla í alvöru um væntanlega skýrslu nefndar Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um endurskoðun kvótakerfisins er nauðsynlegt að sett verði á laggirnar „SANNLEIKSNEFND“ sem fái heimild til að kalla til sín fyrrum og núverandi sjómenn, fiskverkafólk og útgerðarmenn.
Eftir því sem frést hefur þá virðist svo vera sem störf endurskoðunarnefndarinnar hafi öll miðast við að keyrt verði áfram á „AFLAMARKSKERFI“ við stjórn fiskveiða með öllum þeim stórfeldu göllum sem því fylgja.
Allir sem til þekkja og hafa unnið í sjávarútvegi á Íslandi frá upptöku kvótakerfisins vita og þekkja að eigin raun um þá gríðarlegu spillingu og sóun sem aflamarksleiðin þvingar einstaklinga og fyrirtæki í.
Brottkast og kvótasvindl er landlæg plága í kvótakerfinu sem ekki hefur tekist að vinna á enda hvatinn til lögbrota innbyggður í kerfið.
Eins og oft og iðurlega hefur komið fram í fjölmiðlum þá hafa allir þeir sem tjáð hafa sig opinberlega um galla kvótakerfisins verið hund eltir og hrópaðir niður sem illgjarnir ósannindamenn.
Það er algjört skilyrði að mínu mati að Alþingi skipi sannleiksnefnd sem yfirheyri hlutaðeigandi aðila um allt er lýtur að lögbrotum í kvótakerfinu og þeim aðilum sem koma fyrir nefndina verði veitt algjör friðhelgi.
Eftir að sannleiksnefndin lýkur störfum sem ekki ætti að taka nema örfáar vikur þá fyrst er hægt að ræða í fullri alvöru um hvaða aðferð við notum við stjórn fiskveiða í framtíðinni.
Tálknafirði 6. September 2010.
Níels A. Ársælsson.

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira
















