Mótmæla harðlega skipulagsbreytingum og niðurskurði í heilbrigðisþjónustu
Vinstri græn í Skagafirði lýsa miklum vonbrigðum með þær einhliða skipulagsbreytingar sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag. Samráð við sveitarfélög, starfsfólk og íbúa er ekkert og vinnubrögðin við skipulagsbreytingarnar forkastanlegar.
Ekkert liggur fyrir um að hagræðing náist með því að sameina stjórnun heilbrigðismála Norðurlands undir Sjúkrahúsið á Akureyri sem nú þegar verður að bera út fólk vegna fjársveltis. Sameining sem þessi setur þjónustustig heilbrigðismála í Skagafirði í algert uppnám og sérfræðiþekking í héraði er gerð að engu. Minna má á að Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki , sem nú á að svifta sjálfstæði sínu ,hefur fengið sérstaka viðurkenningu fyrir góðan rekstur og þjónustu.
Með yfirlýsingum heilbrigðisráðherra í dag gerir hann lítið úr starfsfólki, sérfræðingum og íbúum þeirra svæða sem nú missa sjálfræðið yfir staðbundinni heilbrigðisþjónustu. Vandséð er að skipulagsbreytingarnar skili hagræðingu og hætta er á að fjármagn og sérfræðiþekking færist úr héraði og kippi þar með grundvelli undan heilbrigðisþjónustu við íbúa heilla héraða.

Hrossarekstur í Vatnsdal
Stutt töf varð á umferð á meðan á hrossarekstri stóð á þjóðvegi 1, í Vatnsdal í dag. Blaðamaður Feykis smellti nokkrum myndum af hrossunum, á ferð sinni um Húnavatnssýslurnar. .
33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum … lesa meira
Fundu kannabisplöntur á eyðibýli
Húni.is greinir frá því að lögreglan á Blönduósi, ásamt lögreglunni á Akureyri hafi fundið 34 kannabisplöntur á eyðibýli á Skaga síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi barst henni upplýsingar sem bentu til þess að þar færi fram ræktun … lesa meira
Óska eftir rökstuðningi um útleigu Ljósheima
Þröstur I. Jónsson og Kolbrún Jónsdóttir á Sauðárkróki óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður rökstyðji ákvörðun menningar- og kynningarnefndar sem hafnaði tilboði þeirra til að reka Félagsheimilið Ljósheima en það mál var afgreitt í nefndinni 12. janúar sl. og í … lesa meira
Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum
Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn … lesa meira
Skúli rektor á N4
Karl Eskill Pálsson tók hús á Skagfirðingum á dögunum sem sjá má á sjónvarpsstöðinni N4 en þar er að finna þá ljómandi góðu þætti Að norðan. Hér fyrir neðan er hægt að nálgast viðtal sem Karl átti við Skúla Skúlason … lesa meira
Kvenfélagskonan á Feykir TV
Dagur kvenfélagskonunnar er 1. febrúar ár hvert. Kvenfélag Sauðárkróks ákvað í tilefni dagsins að vera með opið hús í Skátaheimilinu. Þar gátu komið konur og karlar og fengið tilsögn í að festa rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla … lesa meira
Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla … lesa meira















