Áströlsk bomba með heitri sósu
Margrét Sigurðardóttir dýralæknir og Vésteinn Vésteinsson rafeinda- og mjólkurróbótavirki Varmahlíð buðu lesendum Feykis upp á dýrindis uppskriftir í janúar 2009. Þau skoruðu á Sigfríði Halldórsdóttur og Kára Gunnarsson í Varmahlíð að koma með næstu uppskriftir.
Forréttur eða létt máltíð
Kjúklingasalat
- Rifinn kjúklingur-kaldur
- gúrka
- tómatar
- jarðaber
- vínber
- blaðlaukur
- paprika
- klettasalat
- ristaðar hnetur
- Góður kostur Salat
- Dressing
- 3msk olivuolía-extra virgin
- 1-2 rifnir hvítlauksgeirar
- Balsamik edik-lítið
- síróp –Steeves Maples
- feta ostur
- 1 tsk Dion sinnep
- salt, pipar
Hlutföllin í salatið fer eftir smekk hvers og eins. Efni í dressingu blandað í skál og hellt yfir rétt áður en salatið er borið fram.
Aðalréttur
Sjávarréttarpanna með banönum og mangó. (Fyrir 4)
- 200 gr hörpudiskur
- smjör til steikingar
- salt og pipar
- 1 sellerístöngull
- 1 stór gulrót
- 1 laukur
- matarolía
- 1 tsk karrý
- 2 tsk Mangó-mauk
- 3 dl kjúklingasoð
- 2 vel þroskaðir bananar
- 1 tsk fersk, rifin engiferrót eða engiferkrydd
- 2 dl rjómi
- 250 gr rækjur
Snöggsteikið hörpudiskinn í smjöri og kryddið með salti og pipar. Takið af pönnunni. Skerið sellerí og gulrót í bita og saxið laukinn. Hitið matarolíuna á pönnu og stráið karríi út á og léttsteikið grænmetið í olíunni. Bætið mangó-maukinu, kjúklingasoðinu, sneiddum banönum og engiferi út í og látið krauma í 15-20 mínútum. Bætið rjómanum saman við og bragðbætið með salti og pipar. Setjið steikta hörpudiskinn og rækjurnar út í rétt áður en rétturinn er borinn fram, hitið en sjóðið ekki. Berið fram með hrísgrjónum, mangó-mauki og sellerí. Hægt er að setja epli í stað sellerís, bragðast mjög vel. Og svo er hægt að bæta í uppskrifina öðru fiskmeti ef fólk vill.
Eftirréttur
Áströlsk bomba með heitri sósu
- 250 gr döðlur
- 1 ½ tsk natron
- 180 gr mjúkt smjör
- 7 ½ msk sykur
- 3 egg
- 4 ½ dl hveiti
- 1 tsk vanilludropar
- 2 tsk lyftiduft
Döðlurnar settar í pott og vatni bætt út í, látið rétt fljóta yfir. Látið suðuna koma upp, slökkvið undir og látið standa í 3 mínútur. Stráið natroni yfir, látið kólna. Smjör og sykur hrært saman og eggjunum síðan bætt út í einu og einu í senn. Síðan er þurrefnunum blandað saman við ásamt vanilludropum. Og að lokum er döðlunum bætt saman við deigið ásamt hluta af soðinu(það á að vera frekar þunnt). Sett í hringlaga form og bakað við 180° í 40-60 mínútur.
Karamellusósa
- 120 gr smjör
- 115 gr púðursykur
- ½ tsk vanillusykur
- 2 ½ dl rjómi
Soðið í 3 mínútur. Kakan er borin fram með þeyttum rjóma og heitri karamellusósunni .
Verði ykkur að góðu!

Íþróttadagurinn á FeykiTV
Mikið líf og fjör var í íþróttahúsinu á þriðjudaginn þar sem hinn árlegi Íþróttadagur var haldinn. Börnin ásamt starfsfólki tóku þátt og kepptu sín á milli í hinum ýmsu leikjum og íþróttum. FeykirTV mætti á staðinn og tók þessar myndir.
Hellingur af öskudagsmyndum
Öskudagurinn var í dag og krakkar á ferðinni með haldgóða poka til að geyma nammi í. Ágætar aðstæður voru til að ganga á milli fyrirtækja og stofnana, það snjóaði í logni og ekki annað að sjá en allir væru í … lesa meira
KS og Meistaradeildin skrifa undir samning
Eyþór Jónasson f.h. Meistaradeildar Norðurlands og Bjarni Maronsson stjórnarformaður Kaupfélags Skagfirðinga skrifuðu í dag undir samning þess efnis að Kaupfélagið styrkir keppni vetrarins sem ber heiti þess þ.e. KS-Deildin líkt og undanfarin ár. Styrkurinn er forsenda þess að hægt er … lesa meira
Laglega sungu þeir um hestinn á öskudegi
Það var gaman á öskudegi í höfuðstöðvum Feykis í morgun þegar margt málað og glaðlegt andlitið skaut upp kollinum og lét í sér heyra. Þessir snillingar úr Varmahlíðarskóla spiluðu og sungu lagið Ég sé um hestinn sem Skriðjöklar, með hinn … lesa meira
Rúnar Már í U21
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert breytingu á landsliðshópnum fyrir leik Íslands og Aserbaídsjan. Leikurinn fer fram ytra þann 29. febrúar í undankeppni EM. Rúnar Már Sigurjónsson úr Val kemur inn í hópinn í stað Eiðs Arons Sigurbjörnssonar sem … lesa meira
Sækja innblástur frá umhverfinu
Opið hús var í Nes listamiðstöð í gærkvöldi og gafst fólki tækifæri til þess að berja augum afrekstur vinnu þeirra tólf listamanna sem þar dvelja um þessar mundir. Listamennirnir notast við margvíslegar aðferðir en þar mátti sjá málverk, myndbönd, innsetningar, … lesa meira
Bein útsending frá KS-deildinni
Meistaradeild Norðurlands hefur ákveðið að vera með beina útsendingu frá KS-keppninni sem hefst í kvöld. Hægt er að horfa á með þessum link : http://wms.vodafone.is/tindastoll. Eftir talin hrossaræktarbú styrkja þessa útsendingu: -Enni Viðvíkursveit. -Hof Höfðaströnd. -Þúfur. -Hafsteinsstaðir. -Vatnsleysa. -Efri-Rauðilækur. -Grafarkot. … lesa meira
Ný heimasíða Heimilisiðnaðarsafnsins
Nú í ársbyrjun var opnuð ný heimasíða Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, enda sú gamla fyrir nokkru orðin barn síns tíma. Þar er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um starfsemi safnsins, en auk almennrar umfjöllunar munu birtast tilkynningar um viðburði í safninu … lesa meira














