feykir.is | Íþróttir, Skagafjörður | 27.1.12 | 23:05

Engin miskunn hjá Magnúsi

Tindastóll - Keflavík

Tindastólsmenn komu fjallbratt niður á jörðina í kvöld eftir frábært gengi í síðustu 10 leikjum. Keflvíkingar mættu í heimsókn í Síkið og það var bókstaflega engin miskunn hjá Magnúsi Gunnarssyni og félögum hans úr Reykjanesbænum. Eftir hressilegan fyrsta fjórðung tóku gestirnir öll völd á vellinum og heimamenn voru ráð- og dáðlausir nánast til leiksloka. Lokatölur 72-91.

Keflvíkingar náðu ágætri forystu í byrjun leiks en Stólarnir virkuðu fullir sjálfstrausts í fyrsta leikhluta og virtust ekki óttast gestina. Allen jafnaði leikinn 8-8 með smart troðslu og Rikki kom heimamönnum yfir, 13-11, með annarri 3ja stiga körfu sinni í leiknum. Skiptust liðin síðan á um forystuna en Keflvíkingar enduðu leikhlutann sterkt, gerðu 6 síðustu stigin og voru yfir 20-25 að honum loknum eftir að Maggi setti niður þrist. Hann byrjaði annan leikhluta á sömu nótum og gerði tvær 3ja stiga körfur án þess að Stólarnir svöruðu. Maggi var síðan tekinn útaf og annar snillingur, Valur Orri Valsson sem er nánast borinn og barnfæddur í Síkinu, kom inn og tók við af Magga við að pína Stólana. Þegar leikhlutinn var hálfnaður var staðan 25-40 og hvorki gekk né rak í sóknarleik Stólanna, varnarleikurinn var ekki skárri og það var ekki til að bæta neitt að Maggi og félagar settu niður nánast hvaðan sem var af vellinum. Það á auðvitað bara að banna svona djók! Staðan í hálfleik 34-50.

Stuðningsmenn Tindastóls vonuðust til að versti kaflinn væri nú afstaðinn og strákarnir næðu að bíta hressilega á jaxlinn. Sú varð ekki raunin. Cole gerði fyrstu körfuna fyrir Keflavík og síðan gerðu Maggi og Valur sitt hvora 3ja stiga körfuna og Maggi bætti við einni til viðbótar áður en Svabbi kom Stólunum á blað í síðari hálfleik, staðan 36-61, 25 stiga munur og leikur Stólanna ansi dapur. Nú fóru menn að hika í opnum færum og sóknirnar enduðu með slökum skotum ef þær náðu á annað borð að enda með skoti. Að þriðja leikhluta loknum var staðan 42-71. Stólarnir náðu aðeins að koma til baka í fjórða leikhluta enda gestirnir í raun búnir að landa öruggum sigri og þó heimamenn hafi náð frábærum lokaköflum upp á síðkastið þá var alveg ljóst að þeir voru ekki að fara að vinna upp 30 stiga forskot gegn Keflvíkingum. Bárður leyfði ungu strákunum að spretta úr spori og þeir komu hungraðir inn með góða baráttu og náðu aðeins að kveikja neistann í stuðningsmönnum Tindastóls á meðan kæruleysisbragur kom á leik gestanna. Lokatölur 72-91 eftir að fjórði leikhluti endaði 30-20.

Leikur Tindastóls var ágætur í fyrsta leikhluta en þegar Keflvíkingar náðu upp góðri vörn og skoruðu nánast þegar þeim sýndist í öðrum leikhluta þá hljóp örvænting í Tindastólsmenn sem gerðu hver sóknar- og varnarmistökin eftir önnur. Flestir leikmanna liðsins náðu sér engan veginn á strik en ljósu punktarnir voru innkoma ungu strákanna og það að níu leikmenn gerðu stig Stólanna í kvöld. Keflvíkingar voru með 41% nýtingu í 3ja stiga skotum (13/32) en Stólarnir 18% (4/22), gestirnir gerðu semsagt 39 stig gegn 12 stigum Stólanna úr 3ja stiga skotum, þar af var Maggi með 7/16, Valur Orri 3/4 og Halldór Örn 3/4. Að auki hirtu Keflvíkingar 16 fráköstum meira og þar fór stubburinn Maggi fremstur í flokki með 10 fráköst.

Tindastólsmenn þurfa þó ekki að örvænta þrátt fyrir tapið, sem betur fer er ólíklegt að mörg önnur lið en Keflavíkurliðið eigi eftir að detta í annað eins stuð og þeir gerðu í Síkinu í kvöld. Þannig að nú er bara að gleyma þessum leik og mæta grimmir í þann næsta. Áfram Tindastóll!

Stig Tindastóls: Miller 15, Rikki 15, Svabbi 14, Allen 8, Loftur Páll 6, Helgi Rafn 6, Þröstur Leó 5, Ingvi Rafn 2 og Helgi Margeirs 1.


Feykir.is | 23.2.12 | 8:19

Íþróttadagurinn á FeykiTV

feykirTV-200x147[1]

Mikið líf og fjör var í íþróttahúsinu á þriðjudaginn þar sem hinn árlegi Íþróttadagur var haldinn. Börnin ásamt starfsfólki tóku þátt og kepptu sín á milli í hinum ýmsu leikjum og íþróttum. FeykirTV mætti á staðinn og tók þessar myndir.


Feykir.is | 22.2.12 | 18:33

Hellingur af öskudagsmyndum

_MG_8692

Öskudagurinn var í dag og krakkar á ferðinni með haldgóða poka til að geyma nammi í. Ágætar aðstæður voru til að ganga á milli fyrirtækja og stofnana, það snjóaði í logni og ekki annað að sjá en allir væru í … lesa meira


Feykir.is | 22.2.12 | 17:35

KS og Meistaradeildin skrifa undir samning

KS-deildin

Eyþór Jónasson f.h. Meistaradeildar Norðurlands og Bjarni Maronsson stjórnarformaður Kaupfélags Skagfirðinga skrifuðu í dag undir samning þess efnis að Kaupfélagið styrkir keppni vetrarins sem ber heiti þess þ.e. KS-Deildin líkt og undanfarin ár. Styrkurinn er forsenda þess að hægt er … lesa meira


Feykir.is | 22.2.12 | 16:54

Laglega sungu þeir um hestinn á öskudegi

öskudagur 2012

Það var gaman á öskudegi í höfuðstöðvum Feykis í morgun þegar margt málað og glaðlegt andlitið skaut upp kollinum og lét í sér heyra. Þessir snillingar úr Varmahlíðarskóla spiluðu og sungu lagið Ég sé um hestinn sem Skriðjöklar, með hinn … lesa meira


Feykir.is | 22.2.12 | 13:13

Rúnar Már í U21

Rúnar Már Sigurjónsson. Mynd: Valur.is

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert breytingu á landsliðshópnum fyrir leik Íslands og Aserbaídsjan. Leikurinn fer fram ytra þann 29. febrúar í undankeppni EM.  Rúnar Már Sigurjónsson úr Val kemur inn í hópinn í stað Eiðs Arons Sigurbjörnssonar sem … lesa meira


Feykir.is | 22.2.12 | 12:06

Sækja innblástur frá umhverfinu

Opið hús í Nes Listamiðstöð á Skagaströnd, 21. febrúar 2012.

Opið hús var í Nes listamiðstöð í gærkvöldi og gafst fólki tækifæri til þess að berja augum afrekstur vinnu þeirra tólf listamanna sem þar dvelja um þessar mundir. Listamennirnir notast við margvíslegar aðferðir en þar mátti sjá málverk, myndbönd, innsetningar, … lesa meira


Feykir.is | 22.2.12 | 10:46

Bein útsending frá KS-deildinni

ks_deildin_logo

Meistaradeild Norðurlands hefur ákveðið að vera með beina útsendingu frá KS-keppninni sem hefst í kvöld. Hægt er að horfa á með þessum link : http://wms.vodafone.is/tindastoll. Eftir talin hrossaræktarbú styrkja þessa útsendingu: -Enni Viðvíkursveit. -Hof Höfðaströnd. -Þúfur. -Hafsteinsstaðir. -Vatnsleysa. -Efri-Rauðilækur. -Grafarkot. … lesa meira


Feykir.is | 22.2.12 | 9:55

Ný heimasíða Heimilisiðnaðarsafnsins

Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi

Nú í ársbyrjun var opnuð ný heimasíða Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, enda sú gamla fyrir nokkru orðin barn síns tíma. Þar er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um starfsemi safnsins, en auk almennrar umfjöllunar munu birtast tilkynningar um viðburði í safninu … lesa meira