Menn komu hauslausir, segir Helgi Rafn
Nei þetta var ekki erfiður leikur. Við spiluðum bara eins og fávitar, sagði Helgi Rafn Viggósson leikmaður Tindastóls eftir leik kvöldsins en þar biðu Tindastólsmenn lægri hlut fyrir liði Keflavíkur í Iceland Expressdeildinni á heimavelli 72 – 91. Illa gekk hjá heimamönnum að komast inn í leikinn, hittu illa og margar sendingar fóru forgörðum.
-Menn komu hauslausir, það er bara þannig. Ef menn mæta ekki með rétt hugarfar í leikinn þá fer þetta svona, sagði Helgi er hann var spurður hvað hefði gerst hjá liðinu. –Þetta er svosem bara einn leikur en við erum búnir að vera á ágætis „rönni“ og svo töpum við þessum leik núna en svo er bara að gíra sig upp fyrir næsta leik á fimmtudaginn næsta. Nú hendum við þessum leik aftur fyrir okkur og byrjum upp á nýtt og tökum leikinn á móti Fjölni í Grafarvoginum. Þessi leikur hjá okkur í kvöld var skelfilegur og ég ætla að vona að menn gyrði sig í brók og mæti almennilegir í næsta leik, sagði Helgi svekktur með frammistöðu liðsins.

Öskudagsverur á Hvammstanga
Það er alltaf jafn gaman á öskudeginum, klæða sig upp og syngja fyrir þá sem hugsanlega gefa góðgæti í staðinn. Á Hvammstanga voru ýmsar kynjaverur á ferli sem Anna Scheving náði á rafræna filmu og sendi á Feyki.
Íþróttadagurinn á FeykiTV
Mikið líf og fjör var í íþróttahúsinu á þriðjudaginn þar sem hinn árlegi Íþróttadagur var haldinn. Börnin ásamt starfsfólki tóku þátt og kepptu sín á milli í hinum ýmsu leikjum og íþróttum. FeykirTV mætti á staðinn og tók þessar myndir.
Hellingur af öskudagsmyndum
Öskudagurinn var í dag og krakkar á ferðinni með haldgóða poka til að geyma nammi í. Ágætar aðstæður voru til að ganga á milli fyrirtækja og stofnana, það snjóaði í logni og ekki annað að sjá en allir væru í … lesa meira
KS og Meistaradeildin skrifa undir samning
Eyþór Jónasson f.h. Meistaradeildar Norðurlands og Bjarni Maronsson stjórnarformaður Kaupfélags Skagfirðinga skrifuðu í dag undir samning þess efnis að Kaupfélagið styrkir keppni vetrarins sem ber heiti þess þ.e. KS-Deildin líkt og undanfarin ár. Styrkurinn er forsenda þess að hægt er … lesa meira
Laglega sungu þeir um hestinn á öskudegi
Það var gaman á öskudegi í höfuðstöðvum Feykis í morgun þegar margt málað og glaðlegt andlitið skaut upp kollinum og lét í sér heyra. Þessir snillingar úr Varmahlíðarskóla spiluðu og sungu lagið Ég sé um hestinn sem Skriðjöklar, með hinn … lesa meira
Rúnar Már í U21
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert breytingu á landsliðshópnum fyrir leik Íslands og Aserbaídsjan. Leikurinn fer fram ytra þann 29. febrúar í undankeppni EM. Rúnar Már Sigurjónsson úr Val kemur inn í hópinn í stað Eiðs Arons Sigurbjörnssonar sem … lesa meira
Sækja innblástur frá umhverfinu
Opið hús var í Nes listamiðstöð í gærkvöldi og gafst fólki tækifæri til þess að berja augum afrekstur vinnu þeirra tólf listamanna sem þar dvelja um þessar mundir. Listamennirnir notast við margvíslegar aðferðir en þar mátti sjá málverk, myndbönd, innsetningar, … lesa meira
Bein útsending frá KS-deildinni
Meistaradeild Norðurlands hefur ákveðið að vera með beina útsendingu frá KS-keppninni sem hefst í kvöld. Hægt er að horfa á með þessum link : http://wms.vodafone.is/tindastoll. Eftir talin hrossaræktarbú styrkja þessa útsendingu: -Enni Viðvíkursveit. -Hof Höfðaströnd. -Þúfur. -Hafsteinsstaðir. -Vatnsleysa. -Efri-Rauðilækur. -Grafarkot. … lesa meira















