Erla Björk Örnólfsdóttir nýr rektor Hólaskóla
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni tilnefningu háskólaráðs Hólaskóla- Háskólans á Hólum skipað Erlu Björk Örnólfsdóttur í embætti rektors Hólaskóla- Háskólans á Hólum til fimm ára frá 1. apríl nk. að telja.
Alls bárust sex umsóknir um stöðu Hólarektors og var Erla Björk eina konan í þeim hópi. Erla Björk hefur starfað sem forstöðumaður Varar – Sjávarrannsóknarseturs í Ólafsvík þar sem aðallega er rannsakað lífríki Breiðafjarðar.

Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
Skagfirðingurinn Axel Kárason hefur verið að leika í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik við mjög góðan orðstýr en hann var kjörinn bosman leikmaður ársins á dögunum af hinum þekkta körfuboltamiðli Eurobasket.com. Þá er átt við besta erlenda leikmanninn, að frátöldum bandarískum leikmönnum … lesa meira
Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
Allir frambjóðendur til embættis forseta Íslands, nema Hannes Bjarnason, skiluðu undirskriftalistum til yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi í gær en Rúv greinir frá því að kjörstjórnir þar og í Suðurkjördæmi höfðu auglýst að frestur var gefinn til klukkan 15. Hannes sagði í … lesa meira
FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
Veðrið hefur ekki verið að leika við Skagfirðinga upp á síðkastið. En þó að veðrið hafi verið leiðinlegt fylgir því oft mikil fegurð. FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók og tók nokkrar myndir af ,,vetrinum”.
Kormákshlaup á uppstigningardag
Á morgun, uppstigningardag 17. maí, fer fram fjórða og síðasta Kormákshlaupið og verður verðlaunaafhending að því loknu. „Mætið tímanlega til skráningar, allir með ungir sem aldnir,“ segir í auglýsingu sem birt var í nýjasta Sjónaukanum. Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku … lesa meira
Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
Á síðasta fundi félags og tómstundanefndar Svf. Skagafjarðar var lagður fram samningur um rekstur skíðasvæðis í Tindastóli milli sveitarfélagsins og skíðadeildar UMF. Tindastóls. Þar skuldbindur sveitarfélagið sig til að greiða skíðadeild 8.000.000.- króna til uppbyggingar á skíðasvæðinu í ár, auk … lesa meira
Vorsýning nemenda Blönduskóla
Í dag, miðvikudaginn 16. maí, verður haldin sýning á munum sem nemendur Blönduskóla hafa búið til í textíl- og myndmennt, listasmiðju og fatasaumi. Einnig verður sýnishorn af verkum nemenda í heimilisfræði, „en þau gætu horfið fljótlega eftir að sýning hefst … lesa meira
Þátttökuskráning á Íþróttamóti Þyts lýkur nk. þriðjudag
Íþróttamót Þyts verður haldið laugardaginn 26. maí nk. Skráning til þátttöku stendur yfir til miðnættis þriðjudaginn 22. maí. Á heimasíðu hestamannafélagsins segir að mótanefnd áskilur sér rétt til þess að fella niður greinar ef þátttaka er ekki næg, þær eru … lesa meira
Fellur ríkisstjórnin vegna málþófs?
-Stjórnarandstaðan stefnir að því að kjafta nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í kaf á næstu dögum og endurtaka leikinn frá páskum. Komist stjórnarskráin ekki í þjóðaratkvæði í haust er ljóst að lítið stendur eftir langan feril sem byrjaði með þjóðfundinum 2010, segir … lesa meira















![erla3840[1] Erla Björk Örnólfsdóttir](http://www.feykir.is/kualubbi/wp-content/uploads/2012/02/erla38401-200x152.jpg)

