Hrun í kjölfar skjálfta

Við sjávarmálið má sjá brot úr stórum kletti sem hefur klofnað frá neðst í bergstálinu í Illastapagjá í Drangey. Ljósm.: Þorsteinn Sæmundsson
Ekki hefur mikið hrunið úr Drangey eftir jarðhræringar síðustu daga, að sögn Þorsteins Sæmundssonar forstöðumanni Náttúrustofu Norðurlands vestra, sem gerði sér ferð út í eyna sl. mánudag ásamt nokkrum meðlimum Drangeyjarfélagsins.
„Ekki var að sjá að mikið hafði hrunið úr eynni, nema í sunnaverðri Uppgönguvík í norðanverðum Lundhöfða, þar sem nefnist Illastapagjá. Þar hafði stór klettur klofnað frá neðst í bergstálinu, en önnur ummerki grjóthruns voru ekki sýnileg,“ segir Þorsteinn í nýjasta tölublaði Feykis og fer þar stuttlega yfir áhrif jarðskjálfta á eyna hér áður fyrr.

Hér má sjá mynd af Illstapagjá sem Þorsteinn tók árið 2005, til samanburðar. Ljósm.: Þorsteinn Sæmundsson.
Þá bárust fregnir af hruni úr Þórðarhöfða og sagði Símon Gestsson ráðsmaður á Bæ á Höfðaströnd í samtali við Feyki að u.þ.b. 5-10 m breið sneið hafði hrunið úr berginu vestan í höfðanum, syðst. „Þetta vakti ekki athygli okkar hér á Bæ í fyrstu en þetta sést vel héðan af bænum. Bergið er ljósgrátt þar sem fyllan hefur hrunið úr og undir má sjá skriðu,“ útskýrði Símon.
Feykir.is | 20.5.13 | 10:18
Firmakeppni Léttfeta var haldin á Fluguskeiði, félagssvæði félagsins, á Sauðárkróki laugardaginn 18. maí sl. Keppt var í barnaflokki (13 ára á árinu og yngri), unglingaflokki (14-17 ára á árinu), ungmennaflokki (18-21 ára á árinu), kvennaflokki og karlaflokki. Verðlaunaafhending og kaffiveitingar … lesa meira →
Feykir.is | 19.5.13 | 15:05
Í ársreikningi fyrir sveitarsjóð og stofnanir Sveitarfélagsins Skagastrandar kemur fram að rekstrarniðurstaða samstæðunnar var neikvæð um 134,7 m.kr. en árið 2011 var hún jákvæð um 17,6 m.kr. Tapið er til komið vegna framlags til hitaveituframkvæmda sem gjaldfært er í ársreikningnum. … lesa meira →
Feykir.is | 19.5.13 | 14:47
Góðir gestir heimsóttu Sauðárkróksvöll í gær en þá mættu fulltrúar frá KSÍ og sérfræðingar um knattspyrnuvelli til að skoða völlinn sem svo sannarlega hefur munað sinn fífil fegurri. Gestirnir tóku sýni og veltu hlutunum fyrir sér ásamt starfsmönnum sveitarfélagsins og … lesa meira →
Feykir.is | 19.5.13 | 14:42
Lið Tindastóls mátti sætta sig við jafntefli í fyrsta heimaleiknum í 1. deildinni sem fór fram í Boganum á Akureyri í gær. Andstæðingurinn var Völsungur frá Húsavík og varð niðurstaðan 1-1 jafntefli. Húsvíkingar byrjuðu leikinn betur og fengu vítaspyrnu eftir … lesa meira →
Feykir.is | 19.5.13 | 12:53
Hátíðarmessur og fermingar einkenna helgihald á Norðurlandi vestra um Hvítasunnuna, líkt og venja er. Samkvæmt upplýsingum úr Sjónhorninu og Glugganum eru neðantaldar guðsþjónustur í Austur-Húnavatnssýslu og Skagafirði í dag. Í Þingeyrarklausturkirkju var fermingarmessa í morgun þar sem eitt barn var … lesa meira →
Feykir.is | 19.5.13 | 12:26
Meistaraflokkur Tindastóls kvenna í knattspyrnu beið lægri hlut fyrir Fylkisstúlkum í fyrsta leik sínum í 1. deildinni þetta tímabilið. Leikið var á Fylkisvellinum í strekkingsvindi sem þær norðlensku léku á móti í fyrri hálfleik. Fyrirfram var búist við mjög erfiðum … lesa meira →
Feykir.is | 18.5.13 | 16:20
Þeir miklu erfiðleikar sem margir bændur á Norður- og Austurlandi eiga við að glíma vegna mikilla snjóa sem enn hylja tún þeirra hafa vakið athygli og bændur annarsstaðar á landinu hugsað hlýlega til þeirra. Hvort það hjálpi til við hlákuna … lesa meira →
Feykir.is | 17.5.13 | 15:49
Framundan er viðhald á tveimur sundlaugum í Skagafirði, sundlauginni á Sauðárkróki og sundlauginni á Hofsósi. Þær verða því báðar lokaðar vegna viðhalds dagana frá mánudeginum 27. til miðvikudagsins 29. maí og opna síðan samkvæmt áður auglýstum opnunartíma fimmtudaginn 30. maí.