Skagastrandarhöfn auglýsir eftir hafnarverði
Skagastrandarhöfn hefur auglýst starf hafnarvarðar laust til umsóknar. Samkvæmt starfslýsingu felst í starfinu vigtun og skráning í aflaskráningarkerfi Fiskistofu, gerð reikninga fyrir höfnina, almenn hafnarvarsla, viðhaldsvinna, og tilfallandi störf, segir á heimasíðu sveitarfélagsins Skagastrandar. Meira…
Ferðaglaðir nemendur Húnavallaskóla
Vorverkefnið nemenda Húnavallaskóla þetta árið fjallar um sauðkindina og hófst það formlega með vettvangsferð þeirra ásamt kennurum á sauðfjárbúið á Hjallalandi og aðstæður þar skoðaðar. Á heimasíðu skólans segir að Einar og Sigga hafi tekið höfðinglega á móti hópnum. Meira…
1. deild karla á SportTV í sumar
KSÍ og SportTV hafa komist að samkomulagi um að sýnt verði frá leikjum 1. deildar karla í sumar á SportTV á vefsvæðinu http://www.sporttv.is/. Sýndur verður a.m.k. einn leikur í hverri umferð og einnig er stefnt að því að teknar verði saman markasyrpur í hverri umferð sem einnig verða sýndar á SportTV. Útileikur Tindastóls gegn Haukum verður sýndur nk. laugardag. Meira…
Hagstætt tíðarfar í apríl
Tíðarfar í apríl var hagstætt um meginhluta landsins. Þó var frekar svalt við austurströndina. Mjög þurrt var víða um landið sunnanvert. Apríl var kaldari en mars á svæðinu frá norðanverðum Vestfjörðum austur um Norðurland og suður til Hornafjarðar samkvæmt vef Veðurstofu Íslands. Meira…
Hitaveitupípa í grenndarkynningu
Á fundi skipulags-, byggingar- og veitunefndar Blönduóssbæjar í gær var lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðabyggðar við Skúlabraut, Smárabraut og Sunnubraut sem felur í sér að ný hitaveitupípa frá Blönduósi að Skagaströnd liggur að litlu leyti undir götu og gangstétt innan deiliskipulagsmarkanna. Meira…
Vísindi og grautur á Hólum
Dr. Lára Magnúsardóttir heldur fyrirlestur á Hólum í Hjaltadal á morgun, miðvikudaginn 9. maí, en fyrirlesturinn er hluti af Vísindi og graut, árlegri fyrirlestraröð ferðamáladeildar Háskólans á Hólum. Meira…
12 stunda skyndihjálparnámskeið á Blönduósi
Skyndihjálparnámskeið verður haldið á Blönduósi 12. – 13. maí næstkomandi, ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp. Meira…
Ósverk fær verkið
Bæjarstjórn kemur saman á morgun
Bæjarstjórnarfundur Blönduósbæjar verður haldin að Hnjúkabyggð 33 á morgun, þriðjudaginn 8. maí kl. 17. Meira…
Tilboð í framkvæmdir lesin upp í dag
Þau tilboð sem hafa borist í framkvæmdir á lóð Kvennaskólans á Blönduósi verða lesin upp á bæjarskrifstofunni á Blönduósi kl. 13 í dag, mánudaginn 7. maí, að viðstöddum þeim sem þess óska. Stoð verkfræðistofa hefur umsjón með verkinu, fyrir hönd Byggðasamlags um atvinnu og menningarmál í A-Húnavatnssýslu, og auglýsti eftir tilboðum í jarðvegsskipti á lóð Kvennaskólans í síðustu viku. Meira…
Hvatardrengir selja Álfinn
Hópur drengja úr 6. flokki í knattspyrnu hjá Hvöt ætla að ganga í hús á Blönduósi og selja Álfinn. Það er gert til að styrkja starf SÁÁ og einnig til að fjármagna fyrirhugaða ferð flokksins til Vestmannaeyja á Pollamót í knattspyrnu. Sala á Álfinum stendur frá 7. – 13. maí og verður posi tiltækur ef eftir því er óskað, segir á heimasíðu Húna.is.
Potluck í Nes listamiðstöð
Nes Listamiðstöð á Skagaströnd mun halda „potluck“, eða pálínuboð, þriðjudaginn 8. maí kl. 19. Nú hafa nýir listamenn bæst í hópinn á Nes listamiðstöð og gefst því gullið tækifæri til þess að hitta þá. Meira…
Frambjóðendur til vígslubiskupsembættisins orðnir þrír
Frambjóðendur til vígslubiskupsembættisins að Hólum eru orðnir þrír en í dag tók kjörstjórn á móti framboðstilkynningu sr. Gunnlaugs Garðarssonar sóknarprests í Glerárprestakalli á Akureyri. Meira…
Staða slökkviliðs A-Hún veldur áhyggjum
Mannvirkjastofnun, sem hefur eftirlit með slökkviliðum landsins, hefur samkvæmt Ruv.is, sent harðort bréf til Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu, þar sem lýst er áhyggjum af stöðu slökkviliðsins, tækjabúnaði og mannafla. Meira…
Kormákur/Hvöt áfram í bikarkeppni KSÍ
Sameiginlegt lið Kormáks/Hvatar komst í gegnum forkeppni bikarkeppni KSÍ sl. þriðjudag en þá lék liðið fyrsta leik sumarsins gegn Hömrunum á Hvammstangavelli. Meira…
Alvarlegar athugasemdir gerðar við ákvörðun og embættisfærslu fráfarandi slökkviliðsstjóra
Á fundi Brunavarna Austur Húnavatnssýslu sl. mánudag var leitað eftir skýringum á þeirri ákvörðun fráfarandi slökkviliðsstjóra Hilmari Frímannssyni að hafa skilað klippum sem hafa verið í láni og eru í eigu Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins (SHS). Segir í fundargerð að ljóst megi vera að með þeirri ákvörðun var verið að veikja viðbúnað á starfssvæði Brunavarna A-Hún. án samþykkis stjórnar Brunavarna A-Hún og án þess að tryggja nauðsynlegan viðbúnað. Meira…
Samtök meðlagsgreiðenda stofnuð
Í gær, 3. maí voru formlega stofnuð Samtök meðlagsgreiðenda. Stofnfundur samtakanna fór fram á Café Milanó í Faxafeni. Á fundinum voru samankominn hópur fólks sem lætur sér réttindi meðlagsgreiðenda varða, og vill knýja fram réttarbætur til handa þeim. Gunnar Kristinn Þórðarson var kosinn formaður stjórnar samtakanna og Jón Hannes Stefánsson varaformaður. Meðstjórnendur eru Arnar Þór Einarsson, Gunnar Ásgeirsson og Svandís Edda Halldórsdóttir. Meira…
Vegið að afkomuöryggi sjávarbyggða
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) hefur sent frá sér ályktun þar sem þungum áhyggjum er lýst vegna frumvarpa til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjald. Fram kemur í ályktuninni að samkvæmt útreikningum endurskoðunarfyrirtækisins KPMG mun veiðigjald útgerða á Norðurlandi vestra nema 933 milljónum króna auk þess sem varanlegar aflaheimildir á svæðinu munu dragast saman um 567 þorskígildistonn. Meira…
Skyndihjálparnámskeið á Blönduósi
Skyndihjálparnámskeið verður haldið á Blönduósi 12. – 13. maí nk., ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp. Meira…
Stiginn vals við nemendur og starfsfólk Barnabóls
Stuttmynd um Leikskólann Barnaból á Skagaströnd var frumsýnd þegar Nes listamiðstöð var með opið hús þann 26. apríl sl. Myndin kallast Barnaból 35, A Village Waltz, eða Bæjar-Vals, og er eftir hollensku listakonuna AnneMarie van Splunter. Meira…
Helgi Pís fær (stundum góðar) hugmyndir
Helgi Fannar Antonsson, oft kallaður Helgi Pís, er friðarins maður. Í kjölfarið á umræðu um að lögreglan fengi skammbyssur og stuðbyssur sér til varnar þá hafði Helgi samband við Dreifarann og kvaðst hafa áhyggjur af ofbeldinu í þjóðfélaginu en þóttist … lesa meira
- FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Nýtt myndband við lag af Barnaplötunni USS... USS.. lítur dagsins ljós.
- Til þeirra er málið varðar
- Varð við áskorun um breyttan opnunartíma
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
- Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum
- Nýtt myndband við lag af Barnaplötunni USS… USS.. lítur dagsins ljós.
- FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Vorsýning nemenda Blönduskóla
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Síðasti leikur 8. flokks stúlkna í körfu
- Skíðamenn slútta
- Tap í fyrsta leik í 1. deildinni
- Tindastóll auglýsir eftir fólki í öryggisgæslu
- Pétur Rúnar á Norðurlandamótið
Það er ekki einu sinni ljós í myrkrinu
Herra Hundfúll er máttfarinn og miður sín í miðju maíhreti. Ekki nóg með að veðrið sé eins og það er heldur þurfti hann nánast að draga vatnsdropana út um sturtuhausinn í morgun. Þá fyllist hann depurð við að sjá ljósastaurana á Króknum teygja sig ljóslausa til himins. Það er eins og þeir séu risastórar vegastikur nema það hefur gleymst að setja á þá endurskinsmerkin. Sem er reyndar hugmynd…
Frú frábær hefur miklar mætur á Sæluviku
Nú er Frú Frábær í sínu stóra ESSI, enda Sæluvikustemningin yfir og allt um kring. Menning og læti, eins og hún orðar það. –Ég ætla sko að drekka í mig allt það sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða þessa frábæru viku. Alveg FRÁBÆRT!















