Tókst að spæla egg á heitu höfðinu – læknir telur að brögð séu í tafli
Elvar Kárason lagðist í rúmið á dögunum sem ekki er nú í frásögur færandi, nema fyrir það að hann fékk óvenju háan hita og prófaði við það tækifæri að spæla egg á hárlausu höfði sínu. Meira…
Tekur þátt í heimsmeistaramótinu í brauðsmurningi
Jóna Sigfríður Hall mun taka þátt í heimsmeistaramótinu í brauðsmurningi í byrjun desember en mótið verður haldið í Austurríki. Þátttakendur koma víðsvegar að úr heiminum. Jóna sagði í samtali við Dreifarann að hún væri fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í heimsmeistaramótinu í brauðsmurningi en undankeppnin fór fram í Reykjavík í ágúst sl. þar sem Jóna fór með sigur af hólmi, enda eini keppandinn. Meira…
Bylting í fiskeldi?
Fiskeldisfræðingar í Skagafirði hafa nú hafið eldi á afar sérstökum fiski, sem talinn er geta valdið byltingu í fiskeldi í heiminum og gefið Íslendingum forskot á mörkuðum út um allan heim. Meira…
Námskeið í vitleysisgangi
Aðalbjörn Kristbjörn Ásbjörnsson mun nú á næstunni bjóða íbúðum á Norðurlandi vestra upp á námskeið í vitleysisgangi. Verða námskeiðin haldin beggja vegna Þverárfjalls ef næg þátttaka fæst. Meira…
Flytur inn skotheld vesti fyrir rjúpnaveiðimenn
Gunnlaugur Scheving á Sauðárkróki hefur hafið innflutning á skotheldum vestum, sem hann ætlar að selja rjúpnaveiðimönnum nú þegar hið stutta og snarpa veiðitímabil þeirra hefst. Meira…
Ekki gott að missa nokkur kíló
Klængur Ásbjarnarson vill koma því á framfæri við lesendur Feykis.is að það sé ekki gott að missa kíló, hvort sem þau eru eitt eða fleiri. Hann segir að sér ofbjóði sú síbylja sem dynur á landanum að allir þurfi að missa kíló og öllu skipti að þau séu sem flest. Hann hefur sjálfur raunasögu að segja sem tengist því að missa nokkur kíló. Meira…
Bakklórsbíllinn tekur til starfa
Elías Magnús Magnúss hafði verið atvinnulaus um margar mánaða skeið þegar hann sótti námskeið fyrir frumkvöðla með snjallar viðskiptahugmyndir. Þar vann Elías með hugmynd sína sem nú er orðin að veruleika. Meira…
Með lausa skrúfu
Gunther Hermannsson hafði um árabil verið með lausa skrúfu og verið inn og út af geðveikrahælum hér á landi. Skrúfan losnaði fyrir um tuttugu árum og hefur verið laus æ síðan. Meira…
Maður handtekinn fyrir stórfelldan hækjustuld
Líkur eru á því að búið sé að komast að því hvers vegna skóinn kreppi í heilbrigðiskerfinu, en maður var handtekinn í Húnavatnssýslu fyrir stórfelldan þjófnað á hækjum. Meira…
Alræmdur svindlari á ferð í Skagafirði
Fréttir hafa undanfarið borist af alræmdum svindlara á ferð í Skagafirði. Mun hann vera íslenskur, en hefur búið erlendis undanfarin ár. Maður þessi kom m.a. við í Varmahlíðarskóla beint úr rútinni að sunnan, þar sem hann svindlaði í Ólsen Ólsen við nemendur þar og fór svo inn á kennarastofu og svindlaði þar í Rommí. Meira…
Fékk 300 göngugrindur fyrir misskilning
Kristjón Ebeneserson auglýsti í sakleysi sínu eftir göngugrind fyrir son sinn á Barnalandi á dögunum. Eins og siður er á þeim bænum voru fjölmargir tilbúnir að útvega Kristjóni göngugrind og fyrr en varði hafði hann gert samkomulag við manneskju á Barnalandi um kaup á slíkum grip. Meira…
Erlendur hælisleitandi fann hæli í Skagafirði
Það kom Wimpong Pingpong í opna skjöldu þegar hann fann loksins hælið sem hann hafði leitað að í áratug. Hann kom hingað til lands sem hælisleitandi árið 2001 og hefur æ síðan leitað að hæli án árangurs. En loksins hljóp á snærið hjá honum á ferð sinni um Skagafjörð um daginn, þegar hann að eigin sögn, fann loksins hælið sem hann hefur leitað að. Meira…
Kínverji sást í Skagafirði
Sá fáheyrði atburður átti sér stað á dögunum að Kínverji sást í Skagafirði. Vakti hann athygli gesta og gangandi. Mun tilgangur ferðar hans hafa verið sá að fjárfesta í Skagafirði. Meira…
Írena gengur á land
Sveinn Herbjörnsson eiginmaður Írenu Sveinbjörnsdóttur, sem eru bændur á fremri Sólvöllum i Hvammey kveðst orðinn all þreyttur á landgöngu Írenu konu sinnar. Meira…
Villtum ferðamönnum fjölgar
Það hefur færst mikið í aukana að hér á landi finnist villtir ferðamenn. Hafa þeir skotið upp kollinum í flestum landsfjórðungum, hafa mest haldið sig á fjöllum og uppi á hálendinu, en þó hefur einn og einn fundist á láglendi. Meira…
Heim-sendirinn nálgast
Út um allan heim er nú varað við heim-sendi, sem vera mun á ferðinni á morgun 21. maí.
Mun hann senda heim mat og drykki og fleira sem fólk pantar sér. Eru allir beðnir um að hafa varann á sér og hleypa ekki inn ókunnugum heim-sendi enda getur það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Svo segir alla vega í tilkynningu frá Guðbjarna Viktorssyni, sem sökkt hefur sér niður í allskyns spádóma um heim-senda og fleiri stórtíðindi veraldarsögunnar.
Það er skylda Dreifarans að koma þessu á framfæri!!
Rannsakar þorra Hollendinga
Elías Benjamínsson hefur komist að því að Hollendingar halda sinn þorra. Hann hefur stundað rannsóknir á þeirra högum undanfarin ár og sagðist hafa endanlega sannfærst um þetta eftir mikla fjölmiðlaumfjöllun á síðasta ári.
-Þetta hefur verið mitt rannsóknarverkefni í 15 ár að finna út úr því hvort að fleiri þjóðir en Íslendingar haldi þorrann hátíðlegan. Ég hef fengið styrki víða og náð að ferðast um heiminn í þessum rannsóknum mínum. Ég sannfærðist síðan um þetta með Hollendingana, eftir mikla fjölmiðlaumræðu á síðasta ári. Þar var nefnilega alltaf talað um “Þorra Hollendinga”. Það er því alveg deginum ljósara í mínum huga að við erum ekki eina þjóðin sem heldur upp á Þorrann, sagði Elías við Dreifarann.
Hann sagðist líka hafa heyrt um Þorra múslima og hefur mikinn áhuga á að næla sér í fleiri styrki til að geta rannsakað þeirra siði og venjur í tengslum við þorrann.
Bíður enn eftir útspili
Kristmann Ísleifsson á Blönduósi sá sig knúinn til að koma því á framfæri við Dreifarann að Guðmann félagi hans Nikulásson, ætti ennþá eftir að koma með útspil í Ólsen-Ólsen þeirra félaga sem dregist hefur á langinn.
Forsagan er sú að þeir félagar settust að Ólsen-Ólsen borði á útmánuðum í fyrra eins og þeir gerðu nær daglega félagarnir. Hins vegar þurfti Guðmann skyndilega frá að hverfa vegna iðrakvefs og skildi hann Kristmann eftir með sárt ennið. Guðmann hefur ekki ennþá snúið að spilaborðinu og segist Kristmann vera orðinn þreyttur á langri setu við Ólsen-Ólsen borðið. „Það er auðvitað ekkert gaman að vera skilinn svona eftir í lausu lofti. Guðmann ætlaði rétt að bregða sér af bæ vegna magakveisu og ég bjóst alltaf við honum aftur. Hér hef ég beðið síðan eftir útspili hans og ekkert gerist,“ sagði afar óhress Kristmann í spjallið við Dreifarann.
Framleiðir lyftistangir til útleigu og sölu
Áslákur Ólafíuson hefur hannað og framleitt lyftistöng sem hann hyggst leiga eða selja til sveitarfélaga, fyrirtækja og einstaklinga sem þurfa á slíkri lyftistöng að halda. Hugmyndina fékk Áslákur eftir fréttaflutning í RUV þar sem rætt var um aðgerðir ríkisstjórnarinnar á Vestfjörðum og að þær yrðu mikil lyftistöng fyrir svæðið.
-Já ég fór að velta þessu fyrir mér, hvað þessi lyftistöng væri eiginlega. Maður hefur svo sem heyrt það í gegn um tíðina að hitt og þetta sé lyftistöng, en ég hef aldrei séð þessa stöng og ákvað því að hanna og framleiða stangir sem fólk og heilu samfélögin gætu nýtt sér, sagði Áslákur við Dreifarann. –Ég leigi þetta á mjög sanngjörnum kjörum, þannig að það eiga allir að geta fengið sér svona lyftistöng.
Nú þegar hefur Áslákur samið við eitt sveitarfélag um kaup á nokkrum lyftistöngum. –Það var sveitarfélag sem hefur átt í basli vegna fólksfækkunar og atvinnu, sem verið hefur af skornum skammti. Þá hefur félagslíf íbúa farið niður á við í kreppunni og þeir ákváðu því að kaupa fjórar lyftistangir, sem þeir hyggjast nota til að rífa sig upp á þessum erfiðu tímum.
Það er því óhætt að segja að þessi framleiðsla Ásláks sé mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf svæðisins og vonandi fá sem flestir að njóta þess í framtíðinni.
Úrkomutilboð í sumar
Á komandi sumri verður hrint úr vör tilraunaverkefni á vegum Landbúnaðarfélags Norðurlands vestra og afurðastöðva á svæðinu er miðar að því að fá bændur til að vera meira heima við á meðan á slætti stendur og rífandi þurrkur er. Að sögn Sverris Oddssonar formanns Búnaðarfélagsins er talið að auka megi næringargildi heyja um allt að 20 % ef fljótt er unnið í þurrki. Hann segir að það sé nokkuð algengt að bændur bregði sér í kaupstaðarferð þegar þurrkur er og það komi niður á slætti og vinnslu heyja. Því hefur verið leitað samstarfs við kaupmenn á svæðinu og þess farið á leit við þá að þeir bjóði upp á úrkomutilboð þegar vott er í veðri eða þegar spáð er rigningu. Með þessu móti ætti að vera hægt að koma á móts við bændur sem þyrstir í kaupstaðarferð. Þó er ekki reiknað tilboðin verði í gildi í skúraleiðingum.
Framkvæmdin verður í höndum Búnaðarfélagsins, sem tímabundið hefur ráðið tvo starfsmenn til undirbúnings og framkvæmdar verkefnisins. Þegar hefur verið hafist handa við að safna saman tölvupóstföngum bænda og kaupmanna og eru báðir aðilar ánægðir með framtakið, – þó sérstaklega kaupmenn. Þessar upplýsingar verða síðan samkeyrðar, þannig að þegar spáð er úrkomu til lengri eða skemmri tíma munu tölvupóstar fara í loftið til þátttakenda. Vegna síharðnandi samkeppni í útgáfu veðurspáa hefur þó ekki enn verið gengið frá samningum við spáaðila, en Sverrir segir að niðurstaða muni liggja fyrir á næstu vikum.
Í framhaldinu munu rannsóknastofnanir kanna árangur verkefnisins með sýnatöku úr heyjum á svæðinu. Einnig verða tekin sýni úr afurðum frá mjólkurstöðvum og kjötframleiðendum.
Haft er eftir aðilum innan Landbúnaðarráðuneytisins, að verði niðurstöður jákvæðar muni vera vilji fyrir því innan ráðuneytisins að gefa út reglugerð um skylduaðild allra bænda og kaupmanna á landinu að veðurtengdum kaupstaðarferðum og úrkomutilboðum.
Helgi Pís fær (stundum góðar) hugmyndir
Helgi Fannar Antonsson, oft kallaður Helgi Pís, er friðarins maður. Í kjölfarið á umræðu um að lögreglan fengi skammbyssur og stuðbyssur sér til varnar þá hafði Helgi samband við Dreifarann og kvaðst hafa áhyggjur af ofbeldinu í þjóðfélaginu en þóttist … lesa meira
- FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Nýtt myndband við lag af Barnaplötunni USS... USS.. lítur dagsins ljós.
- Til þeirra er málið varðar
- Varð við áskorun um breyttan opnunartíma
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
- Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum
- Nýtt myndband við lag af Barnaplötunni USS… USS.. lítur dagsins ljós.
- FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Vorsýning nemenda Blönduskóla
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Síðasti leikur 8. flokks stúlkna í körfu
- Skíðamenn slútta
- Tap í fyrsta leik í 1. deildinni
- Tindastóll auglýsir eftir fólki í öryggisgæslu
- Pétur Rúnar á Norðurlandamótið
Það er ekki einu sinni ljós í myrkrinu
Herra Hundfúll er máttfarinn og miður sín í miðju maíhreti. Ekki nóg með að veðrið sé eins og það er heldur þurfti hann nánast að draga vatnsdropana út um sturtuhausinn í morgun. Þá fyllist hann depurð við að sjá ljósastaurana á Króknum teygja sig ljóslausa til himins. Það er eins og þeir séu risastórar vegastikur nema það hefur gleymst að setja á þá endurskinsmerkin. Sem er reyndar hugmynd…
Frú frábær hefur miklar mætur á Sæluviku
Nú er Frú Frábær í sínu stóra ESSI, enda Sæluvikustemningin yfir og allt um kring. Menning og læti, eins og hún orðar það. –Ég ætla sko að drekka í mig allt það sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða þessa frábæru viku. Alveg FRÁBÆRT!

















