Hvað er að gerast með pulsurnar? Gömlu góðu sjoppupulsurnar við þjóðveginn, með ýmist öllu eða sumu, eru ekki lengur eins og þær voru. Reykingabragðið er orðið yfirþyrmandi og minnir pulsubitinn alltof mikið á hangikjöt. Sem er ekki nógu gott því hver borðar tómat, steiktan og remúlaði með hangikjöti?
Meira »
Toppgírsmenn frá breska sjónvarpinu léku listir á eða við nýlagt hraun á Fimmvörðuhálsi á dögunum. Það þótti ekki til eftirbreytni hjá þeim sem vit hafa á hrauni. Nú gæti því verið komin upp sú staða að þeir sem hætta sér of nálægt hrauninu, að mati lögreglu, endi á Hrauninu.
Meira »
Í Morgunútvarpi Ríkisútvarpsins voru Þorsteinn Pálsson og Kolbrún Halldórsdóttir í ágætu spjalli nú í morgun. Eitt atriði sló mann þó í viðtalinu. Kolbrún sagði að haustið 2008 hefðu möguleikar á myndun þjóðstjórnar verið eyðilagðir því þá hefði Davíð Oddsson komið fram og þóst hafa átt þessa hugmynd. -Sem er auðvitað svo hræðileg tilhugsun að tekur [...]
Meira »
Helga Vala var í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun en þar var verið að ræða um Icesave. Helga var ekki sérlega ánægð með þjóðaratkvæðagreiðsluna og fannst vitlaust að vera að kjósa þegar þó nokkur fjöldi kjósenda héldi enn að með því að segja nei þá þyrftu Íslendingar ekki að borga krónu vegna Icesave. -Ef þetta [...]
Meira »
Geyspinn hefur upp á síðkastið skoðað fréttir á DV.is og Eyjunni.is en þar gefst fólki kostur á að skrifa athugasemdir við fréttirnar. Mikið er sorglegt að sjá hvað fólk getur verið andstyggilegt í skrifum sínum hvort um annað og í garð þeirra sem fréttirnar fjalla um.
Meira »
“Nú tíðkast þær smjörklípurnar,” sagði Atli Ásmundsson nánast, en þó ekki, þegar Þorbjörn öxnamegin rak hann í gegn með fjaðraspjótinu í Grettis sögu.
Meira »
Íslenska handboltalandsliðið hefur enn á ný rifið upp þjóðarrembinginn í Íslendingum með ágætri frammistöðu á EM á Íslandi. Þannig háttar þó til að allir leikir liðsins í milliriðli hefjast kl. 15 og eru því sýndir á vinnutíma. Það eru kannski einhverjir nógu útspekuleraðir til að fylgjast með leikjum liðsins í vinnutíma sínum á netinu eða [...]
Meira »
Geyspi desember-mánuðar telst vera Loftslagsráðstefnan sem haldin var í Kaupmannahöfn um miðjan mánuðinn. Ráðstefnan sem slík var auðvitað góðra gjalda verð en fljótlega varð ljóst að ekki voru allir á eitt sáttir. Fór svo að stóra málið varð hvort forseti Bandaríkjanna gæti lent á Kastrup vegna snjókomu og kæmist burt heill á húfi. Niðurstaða ráðstefnunnar [...]
Meira »
Einhver mistök virðast hafa orðið hjá þeim sem segja fréttir úr enska boltanum en nú um helgina var greint frá því að Tottenham Hotspur hafi sigrað Wigan Athletics með 9 mörkum gegn 1. Þetta getur ómögulega staðist. Ég meina, við erum að tala um að Tottenham hafi skorað 9 mörk í sama leiknum. Klárlega mistök [...]
Meira »
Það styttist í jólin. Sumir geta vart beðið eftir að fá leyfi starfsfélaganna til að spila jólalögin og sumir starfsfélagarnir vilja helst ekki vita af jólalögunum fyrr en á Þorláksmessu. Til að jólalögin verði ekki leiðinlega hversdags þá er kveðið á um það í óskráðu lögunum að leyfilegt er að hefja spilun jólalaga strax í [...]
Meira »
Það eru óskráð lög í landinu sem segja að það er bannað öllu skynsamlegu fólki að kaupa sér innbundnar nýjar skáldsögur til einkabrúks. Innbundnar skáldsögur eru eingöngu ætlaðar til gjafa og þá alls ekki til að gefa sjálfum sér. Það er óheilbrigt. Öðru máli gegnir um kiljur, en þær koma vanalega út nokkrum mánuðum eftir [...]
Meira »
Stundum dettur þjóðin í frasafyllerí. Það er varla að fólk geti talað saman öðruvísi en það löðrungi hvort annað með þreyttum frasa sem oftar en ekki er hirtur upp úr sjónvarpinu. Sumir endast árum saman og eru alltaf jafn flottir eða skemmtilega þreyttir. Eins og til dæmis – já sæll – sem er enn í [...]
Meira »
Það er nú kannski ekki hugmyndin að vera með vikulega gagnrýni á Spaugstofuna í þessum dálki. Í síðustu viku þótti Geyspanum lítil ástæða til að fagna fyrsta þætti þeirra grínara en það er ekki sanngjarnt að vera síknt og heilagt að berja allt niður – það er um að gera að hæla þegar vel er [...]
Meira »
Margir biðu með öndina í hálsinum eftir fyrsta þætti Spaugstofunnar síðastliðinn laugardag. Enda ekki annað að sjá en að Íslendingar hafi upplifað nægan skammt af harm- og spaugrænum uppákomum í sumar og haust til að fylla einn 25 mínútna Spaugstofuþátt af þéttu spaugi. Margir urðu fyrir sárum vonbrigðum og heyrst hefur að sumir hafi setið [...]
Meira »
Stuðningsmenn Tindastóls hafa að líkindum yfirgefið Sauðárkróksvöll talsvert frústreraðir á laugardaginn eftir að hafa horft upp á liðið sitt kasta frá sér sigri – og þar með sæti sínu í 2. deild – með undarlega slökum leik. Þegar leikmenn hófu leik í síðari hálfleik með vænlegt 2-0 forskot virtist flestum ljóst hvað Stólarnir þyrftu að [...]
Meira »
Hinn ágæti Hrafn Gunnlaugsson sat í Kilju Egils Helgasonar á dögunum og hélt því blákalt fram með stríðnisglampa í augum að Húnvetningurinn Grettir Ásmundsson, síðast með póstadressu í Drangey á Skagafirði, hafi augljóslega verið hommi. Hrafn hefur margsinnis lesið Grettissögu og hefur með tímanum styrkst í þessari skoðun sinni. Hvort fræði- og áhugamenn hér á [...]
Meira »
Útlit er fyrir að Vuvuzela-trompetinn muni ógna geðheilsu fótboltaáhugamanna næsta sumar. Þeir sem fylgst hafa með útsendingum frá Álfukeppninni í knattspyrnu ættu að vera farnir að átta sig á þessu skelfilega vopni Afríkumanna. Höddi Magg hitti naglann á höfuðið þegar hann lýsti þessu skelfilega hljóði sem trompetarnir mynda við suðið í býflugum í þúsundasta veldi. [...]
Meira »