Þórarinn Eymundsson í viðtali við Hestafréttir
Hestafréttir birti nýlega viðtal við Þórarinn Eymundsson tamningameistara og kennara við Hólaskóla. Viðtalið er hluti af í röð slíkra sem ganga fyrst og fremst út á að kalla eftir skoðunum kynbótaknapa á breytingunum á yfirlitssýningu Landsmóts. Meira…
Mikil stemning í Meistaradeild Norðurlands
Það var rífandi stemming og mikil spenna í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki í gærkveldi, þegar úrtaka fyrir KS-deildina fór fram. Fyrir hvert tímabil er keppt um sex laus sæti en nú voru þau átta, þar sem tveir keppendur höfðu afboðað þátttöku sína í deildinni í vetur. Meira…
Óvenju sterk úrtaka í Meistaradeild Norðurlands
Úrtökumót fyrir KS-deildina verður haldið í kvöld 1. febrúar í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og er búist við hörku keppni. –Þátttaka fór fram úr björtustu vonum aðstandenda og verður þetta óvenju sterk úrtaka bæði hvað varðar knapa og hross segir Guðmundur Sveinsson hjá MN. Meira…
Meistaradeild Norðurlands 2012 – KS-deildin
Úrtökumót fyrir KS-deildina verður haldið miðvikudagskvöldið 1. febrúar í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. samkvæmt tilkynningu frá stjórn MN stefnir í hörku keppni þar sem fimmtán knapar munu berjast um þau sex sæti sem laus eru. Meira…
Þjálfun í upphafi vetrar
Mánudagskvöldið 30. janúar mun Þórarinn Eymundsson reiðkennari fjalla um þjálfun hrossa í upphafi vetrar. Fundurinn hefst í Tjarnarbæ kl 20:00 þar sem Þórarinn rennir yfir undirstöðu atriði varðandi þjálfun hrossa sem eru ný komin á hús. Þar á eftir verður farið yfir í reiðhöllina Svaðastaði þar sem fram fer sýnikennsla á þeim atriðum sem um var rætt. Meira…
Hvernig býr maður til heimsmeistara?
FT norður verður með kennslusýningu í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki laugardaginn 28. janúar kl.20.00. Þar munu Jóhann R. Skúlason margfaldur heimsmeistari í tölti og Iben Andersen mæta frá Danmörku. Meira…
Meistaradeild Norðurlands frestar úrtöku
Meistaradeild Norðurlands 2012 – KS-deildin
Það stefnir í hörku úrtöku miðvikudagskvöldið 25. janúar í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Fjórtán knapar eru skráðir til leiks að keppa um þau sex sæti sem laus eru. Veislan hefst kl: 20:00 og er frítt inn! Meira…
Húnvetnska liðakeppnin
Nú fer að líða að stóru stundinni hjá hestamönnum í Húnavatnssýslum – Húnvetnsku liðakeppninni. Haldin verða fjögur mót, dagana 10. febrúar, 25. febrúar, 16. mars og 14. apríl. Meira…
Tjarnartölt á Gauksmýri
Hestamannafélagið Þytur og Sveitasetrið Gauksmýri heldur sameiginlega ísmót á Gauksmýrartjörn næstkomandi sunnudag, 22. janúar kl. 14. Ef færi leyfir ekki að halda mótið á Gauksmýrartjörn þá mun mótið verða flutt á völlinn á Gauksmýri. Meira…
Keppnisknapinn – námskeið fyrir keppendur í íþrótta- og gæðingamótum
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður upp á fimm helga námskeið fyrir keppendur í íþrótta- og gæðingamótum. Námskeiðið skiptist í fjórar markvissar kennsluhelgar, auk fimmtu helgarinnar þar sem undirbúin er sýning og tekið þátt í formlegu móti. Meira…
Meistaradeild Norðurlands 2012 af stað
Nú fer KS-deildin í hestaíþróttum að fara af stað enn eitt árið en úrtaka fer fram þann 25. janúar í Svaðastaðahöllinni og hefst kl: 20:00. Keppt verður í í fjór og fimmgangi en alls eru sex sæti laus í keppninni. Meira…
Funi kærir ekki ákvörðun LH
Stjórn Hestamannafélagsins Funa í Eyjafjarðarsveit hyggst ekki kæra til ÍSÍ þá ákvörðun stjórnar Landssambands hestamanna að setja landsmótin 2014 og 2016 niður á Hellu og Vindheimamelum í Skagafirði en Funi sótti um bæði mótin. Valur Ásmundsson formaður Funa segir hins vegar á Vikudegi.is að félagið muni óska eftir því að ÍSÍ hlutist til um að gætt sé jafnræðis við úthlutun landsmóta. Meira…
Gullhylur reiðubúinn að semja um landsmót hestamanna 2016
Mikil umræða hefur farið fram á hestamiðlum landsins um ákvörðun um staðarval fyrir landsmót hestamanna 2014 og 2016. Hefur hestamannafélagið Funi í Eyjafirði mótmælt ákvörðun LH opinberlega þar sem það sótti um mótið 2014 en eins og kunnugt er var ákveðið að ganga til samninga við Rangárbakka (Hella) fyrir 2014 og 2016 við Gullhyl (Vindheimamelar). Meira…
Landsmót ekki á Vindheimamelum 2014
Á stjórnarfundi Landssambands hestamannafélaga í gær 19. desember var tekin ákvörðun um staðarval fyrir Landsmót 2014 og 2016. Ákvað stjórn LH að ganga að samningsborði fyrir Landsmót 2014 við Rangárbakka (Hella) og fyrir Landsmót 2016 við Gullhyl (Vindheimamelar) Meira…
Veglegir vinningar í leik Hrímnis og HM
Í tilefni af samkomulagi Hrímnis og heimsmeistaramóts íslenska hestsins í Berlín 2013, var stofnað til leiks á Facebook þar sem einn heppinn þáttakandi mun vinna Hrímnis hnakk að eigin vali og vikupassa á heimsmeistaramótið. Verðmæti vinningsins nemur því nærri hálfri milljón króna og verður sá heppni verður dreginn út á Þorláksmessu. Meira…
Feðgin urðu knapar ársins
Í gærkvöldi var haldin uppskeruhátíð skagfirskra hestamanna í Tjarnabæ á Sauðárkróki þar sem veitt voru verðlaun fyrir ýmis afrek í heimi hestamennskunnar. Feðginin Elvar E. Einarsson og Ásdís Ósk Elvarsdóttir á Skörðugili hrepptu titilinn Knapi ársins hvort í sínum flokknum. Meira…
Maður er manns gaman
Í kvöld föstudaginn, 9. des. eru hestamenn boðaðir til gleðifundar í Tjarnarbæ við Sauðárkrók og hefst samkoman kl. 20:30. Í boði verða veitingar framreiddar af Bíbí og Auði . Afhent verða afreksverðlaun ársins til hrossaræktenda og knapa. Meira…
Hólabak ræktunarbú ársins í A-Hún
Uppskeruhátíð Búgreinafélags í Austur-Húnavatnssýslu og Hestamannafélagsins Neista var haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi 19. nóvember sl. Meira…
Fundur um norrænt hestakyn á Hólum
Fyrsti vinnufundur um verkefnisins „Riding Native Nordic Breeds“ var haldinn við Háskólann á Hólum dagana 24.-25. október sl. Þar voru til umræðu staðbundin norræn hestakyn í sínu upprunalega umhverfi og hvernig hægt er að efla ferðaþjónustu byggða á þeim hestakynjum í Vestur-Noregi, Íslandi og Færeyjum. Meira…
Erlendur fer ótroðnar slóðir í kjörþyngdarátaki
Erlendur Guðjónsson hefur lengi glímt við baðvigtina en konu hans, Sigríði Guðfinnu Hjálmarsdóttur, finnst Lendi ekki vera brúklegur til meiri- eða minniháttar ævintýra eins og að ganga með sér Laugaveginn svo dæmi sé tekið. Nú er svo komið að Lendi … lesa meira
- Jóhanna og Steingrímur – Svariði!
- Betur má ef duga skal – Ályktun frá Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
- Engar bollur á mánudaginn
- 112 dagurinn í Húnaþingi –vestra
- Lífsins blómasystur komin út
- Alexandra í Súkkulaðilandi
- Ásbjörn og Einar á opnum stjórnmálafundum
- Þjóðaratkvæði um ESB samhliða forsetakosningum
- Bolir á stuðningsmenn Tindastóls
- Leikur Tindastóls gegn Grindavík fer fram annað kvöld
- Fjórir Íslandmeistaratitlar á MÍ 15-22 ára
- Tindastóll í höllina. Feykir-TV
- Á fæðingardeildina eftir leik
- Breyttur opnunartími sundlauga í Skagafirði
- Helga Margrét bætti Íslandsmetið á móti í Tallin
- Stóll-inn, Stóll-inn, Stóll-inn – TINDASTÓLL!
- Þjóðaratkvæði um ESB samhliða forsetakosningum
- Fáum unga fólkið í Skagafjörð
- Jafnréttismál eru byggðamál!
- Útrýming Vestfirðinga gengur vel og stenst áætlun stjórnvalda
- Sjálfstæðisflokkurinn og eignarhald á kvóta
- 23 útgerðarmenn – loðnir um lófana
- Falsspámenn
- Drög að nýjum vopnalögum er fjalla um búnað til að stunda bogfimi hverskonar
Skröltandi drykkjadósir í nóttinni
Herra Hundfúll er ekki að fíla rokið. Sérstaklega ekki þegar tómar dósir stíga stríðsdans í nóttinni og lemjast utan í veggi með tilheyrandi hávaða og látum þannig að Hundfúlum kemur ekki dúr á auga. Þetta hefur þau áhrif á Hundfúlann að hann verður eiginlega alveg… hundfúll!?
Ýmislegt sem kemur í ljós í hlákunni
Frú Frábær er alveg í skýjunum eftir hlákuna sem ríkt hefur undanfarið því eftir að snjórinn fór kom snjóskóflan hennar í ljós sem sennilega hafði fennt í kaf í nóvember. Ekki nóg með það því iðnaðarsaltið sem hún tók úr kryddhillunni og saltaði bílastæðið og tröppurnar með í byrjun janúar fannst líka. –Ef þetta heldur svona áfram á ég kannski von á af finna manninn minn í einhverjum skaflinum en hann hefur ekki sést síðan þorrinn hófst. Alveg frábært ef það gerðist.













