Fórum á ÖLL böllin hvort sem þau voru í Bifröst, Miðgarði, Húnaveri, Blönduósi eða Siglufirði
Hver er maðurinn? Kristjana Jónasdóttir.
Hverra manna ertu? Dóttir Jónasar Snæbjörnssonar verkfræðings og Þórdísar Magnúsdóttur dönskukennara. Litla systir Snæbjörns og stóra systir Níníar og Bryndísar. Meira…
Annað liðið spilaði bert að ofan en hitt í sundbolum
Hver er maðurinn (Konur eru líka menn)? Valgerður Erlingsdóttir, af mörgum talin lifandi sönnun þess að konur eru líka menn.
Hverra manna ertu? Erlings Péturssonar heitins fyrrum verslunnareiganda Tindastóls og Sigrúnar Skúladóttur frá Framnesi, Borgarfirði eystra. Meira…
Ég segist oft vera strippari
Hver er maðurinn? Guðbjartur Haraldsson eða bara Bjartur
Hverra manna ertu? Sonur Haraldar Guðbergssonar heitins, rennismiðs og skrifstofustúlkunnar Ingibjargar Guðbjartsdóttur Meira…
Hinir brottflognu…á netabol og í G-strengjum….
Hver er maðurinn? Sverrir Sverrisson
Hverra manna ertu? Foreldra minna, Sverris Björnssonar og Guðnýjar Eyjólfsdóttir
Árgangur? Saugvinion ´69
Hvar elur þú manninn í dag? Í Árbænum í Reykjavík
Fjölskylduhagir? Giftur Fríðu Ólöf Gunnarsdóttir
Afkomendur? Elísa Marey 16 ára, Eyjólfur Andri 6 ára, Erna Sólveig 5 ára og svo eitt í ofninum.
Helstu áhugamál? Að klæðast ekki netabol og vera ekki með permanent.
Við hvað starfar þú? Sölustjóri hjá flutningafyrirtækinu Icetransport.
Hraðaspurningar, þær virka þannig að þú botnar upphaf setninga með því fyrsta sem þér dettur í hug.
Heima er ………………… hættulega gott
Það er gaman……………………. að vera til.
Ég man þá daga er…………………… ég klæddist appelsínum íþróttagalla á Sauðárkrók…
Ein gömul og góð sönn saga……………… ógleymanlegt þegar ég var í partý á Króknum þar sem skylda var að mæta eingöngu í netabol og G-streng… svo vildi til að foreldrar hans sem hélt partýið komu óvænt heim degi áður en ákveðið hafði verið og sáu þar 12 stráka saman komna á netabol og í G-strengjum…. varðandi viðbrögð foreldra verður ekki upp gefið. Einn var reyndar með hvíta slaufu einnig um hálsinn og því ekki eins asnalegur og við hinir og náði því að róa niður foreldrana….
Spurt frá síðasta viðmælanda……………….. Af hverju ertu ekki löngu farinn að þjálfa og hafa mig sem aðstoðarmann?
Svar………… Ertu þá að tala um í körfu eða fótbolta Bjarki minn? þegar ég mun þjálfa Tindastól í körfu, þá mun ég ráða þig sem aðstoðarmann, það er alveg öruggt, en ef þú ert að tala um fótbolta, þá verð ég að ráða einhvern sem veit eitthvað um fótboltaJ
Hvern vilt þú sjá svara þessum spurningum og hvaða spurningu myndir þú leggja fyrir viðkomandi?
Nafn…………. Guðbjartur Haraldsson
Spurningin er……………… Hefur þú eitthvað stækkað frá því þú varst á Króknum?
Það varð að gera smá hlé meðan menn voru að jafna sig á þessu
Hver er maðurinn?
Baldvin Bjarki Baldvinsson
Hverra manna ertu? Sonur Baldvins Jónssonar frá Molastöðum í Fljótum og Guðfinnu G. frá Barði í Fljótum Meira…
Við hormónaboltarnir tókum stefnuna beint á Istegade.
Hver er maðurinn? Ágúst Ingi Ágústsson
Hverra manna ertu? Sonur Önnu Hjartardóttur, dóttir Hjartar Vilhjálmssonar frá Vallholti og Rannveigar Jóhannesardóttur frá Þverá í Öxnadal, og Ágústs Guðmundssonar, sonur Munda í Tungu og Ernu Ingólfs bíla. Meira…
Punghlíf af hentugri stærð. – Þráinn Freyr í Hinum brottflognu
Hver er maðurinn? Þráinn Freyr Vigfússon
Hverra manna ertu? Lollu(Lovísa Birna Björsdóttir) Bubba Guðna og Möggu í blómabúðinni og Fúsa(Vigfús Vigfússon) sem sá um Hótel Áningu í mörg mörg ár ásamt mörgu öðru. Meira…
Hinir brottflognu í loftið á ný
Tapað fundið. Davíð týndur
Þátturinn Hinir brottflognu hér á Feyki.is hefur legið niðri um nokkurt skeið þar sem heimtur á svörum eru alveg í núlli. Davíð Þór Rúnarsson sem ætlaði að svara spurningu frá Arnari Kárasyni í Hinum brottflognu virðist vera týndur og tröllum gefinn.
Einhverjir höfðu reddað blárri mynd til að stytta okkur stundirnar
Margar góðar sögur sem koma upp í hugann
Hver er maðurinn?
Ómar Örn Sigmarsson
Hverra manna ertu? Sonur Elísabetar Arnardóttur og Sigmars Benediktssonar heitins. Meira…
Ekkert helvítis pláss fyrir neina Maríu Carey hérna í bílnum
Hver er maðurinn
? Óli Sigurjón Barðdal Reynisson
Hverra manna ertu? Sonur Reynis Barðdal og Helenu Svavarsdóttir
Árgangur? 1977 Meira…
“Ég var nú eiginlega ekkert drukkinn sko”
Lárus Dagur Pálsson
Hverra manna ertu ?
Sonur Þeirra Páls Dagbjartssonar og Helgu Friðbjörnsdóttir í Varmahlíð Meira…
Ég gaf Tryggva litla í Dæli 5 fyrir skeið
Hver er maðurinn?
Haraldur Páll Bjarkason (Halli hennar Gunnu) fyrrverandi bóndi í Sólheimum Blönduhlíð.
Hverra manna ertu? Sonur Bjarka Sigurðssonar og Elínar H Haraldsdóttir sem bæði eru ættuð frá Ólafsfirði.
Árgangur? 1968 árið sem allir snillingarnir fæddust eða hvað ?
Hvar elur þú manninn í dag? Í Reykjavík þar sem sólin sest aldrei og rignir sjaldan.
Fjölskylduhagir? Í sambúð með Guðrúnu Elínu Hilmarsdóttur.
Afkomendur? Hulda Björk f.1993 og Hlynur Óli f.1998.
Helstu áhugamál? Hestamennska með fjölskyldunni, ferðast um landið í góðra vina hóp, og horfa á fótbolta með Tryggva Litla í Dæli.
Við hvað starfar þú? Sendibílstjóri og heimavinnandi húskarl.
Hraðaspurningar, þær virka þannig að þú botnar upphaf setninga með því fyrsta sem þér dettur í hug.
Heima er …………………Gott að vera
Það er gaman…………. að reyna að rækta góð hross.
Ég man þá daga er…………………… ég gaf Tryggva litla í Dæli 5 fyrir skeið á félagsmóti á Sauðárkróki og hann er ekki ennþá búinn að fyrirgefa mér.
Ein gömul og góð sönn saga………………Okkur var boðið mat hjá Valgerði og Tryggva ásamt Frigga Pálma, Rósu og Gísla frá Kýrholti í frábæra pönnusteik að hætti Valgerðar. Húsbóndinn bauð upp á drykk og sögustund sem ekki verða hafðar eftir hér, einnig voru sagðar sögur af afa. Þegar líða tók á kvöldið barst talið að heilsu Frigga sem var ekki eins og hún átti að vera og upplýsti Friðrik okkur um að læknar teldu að hann hefði unnið yfir sig, lítur hann svo á Tryggva grafalvarlegur og segir “ ja þú hefur aldrei unnið yfir þig” (það sér ekki á mér).
Spurt frá síðasta viðmælanda……………….. Af hverju hringir síminn hjá þér alltaf þegar þú átt að vera að tjalda?
Svar………… Því Tryggvi hringir alltaf í mig þegar við eigum að hjálpa konunum að tjalda.
Hvern vilt þú sjá svara þessum spurningum og hvaða spurningu myndir þú leggja fyrir viðkomandi?
Nafn…………Lárus Dagur Pálsson.
Spurningin er………………Hvernig mundir þú lýsa sjálfum þér sem hestamanni?
Þegar þakið ætlaði að rifna af húsinu…….
Hvað er þetta maður, helduru að þetta sé einhver spíttkerra?
Hver er maðurinn? Sighvatur Daníel Sighvatz.
Hverra manna ertu ? Sonur Hvata á stöðinni.
Árgangur eða árangur? Að hafa viðhaldið fjölskyldu hefðinni sem er að vinna við símavinnu. Meira…
Hreykin áhöfn, á mótorbátnum „Alka“, lagði að landi með sérstæðan afla
Hver er maðurinn? Þorsteinn Steinsson.
Hverra manna ertu? Er sonur Steins Steinssonar, sem var héraðdýralæknir í Skagafirði í 30 ár og konu hans Þorgerðar Friðriksdóttur. Meira…
Ég sá stax að ég yrði að hafa skjótar hendur að ná þeim útaf vellinum

Þorsteinn Andrésson fæddur á Kleif á Skaga, þá Svanur Jóhannsson bifreiðarstjóri hjá Þórði Sighvats símaverkstjóra um langa hríð, Björn Jóhannes Sighvatz nú kennari við FNV og loks Stefán Ólafsson sjálfur. Mynd:Ágúst Guðm.
Hver er maðurinn? Stefán Ólafur Ólafsson
Eina skiptið á æfinni sem ég var kallaður helvítis villimaður
Hver er maðurinn? Þórhallur Ásmundsson.
Hverra manna ertu? Þegar ég kom á Krókinn vorið 1974 og fór veturinn eftir í lokabekk Iðnskóla Sauðárkróks, sagði Árni Þorbjörnsson dönskukennari, þarna er nýtt andlit, ert þú Skagfirðingur? Nei svaraði ég, ég er Fljótamaður. Frá Austari-Hóli í Flókadal, foreldrar Ásmundur Frímannsson og Ólöf S. Örnólfsdóttur nýlega látin. Meira…
Við Geitarskarð ætlaði allt uppúr að sjóða
Stefán Vagn Stefánsson
Hverra manna ertu ?
Sonur Stebba Dýllu og Sigríðar Hrafnhildar Stefánsdóttur (Vagnssonar frá Hjaltastöðum) Meira…
Helgi Pís fær (stundum góðar) hugmyndir
Helgi Fannar Antonsson, oft kallaður Helgi Pís, er friðarins maður. Í kjölfarið á umræðu um að lögreglan fengi skammbyssur og stuðbyssur sér til varnar þá hafði Helgi samband við Dreifarann og kvaðst hafa áhyggjur af ofbeldinu í þjóðfélaginu en þóttist … lesa meira
- FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Nýtt myndband við lag af Barnaplötunni USS... USS.. lítur dagsins ljós.
- Til þeirra er málið varðar
- Varð við áskorun um breyttan opnunartíma
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Hyggst klára undirskriftasöfnun um helgina
- Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum
- Nýtt myndband við lag af Barnaplötunni USS… USS.. lítur dagsins ljós.
- FeykirTv tók röltið um Sauðárkrók
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Vorsýning nemenda Blönduskóla
- Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
- Kormákshlaup á uppstigningardag
- Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
- Síðasti leikur 8. flokks stúlkna í körfu
- Skíðamenn slútta
- Tap í fyrsta leik í 1. deildinni
- Tindastóll auglýsir eftir fólki í öryggisgæslu
- Pétur Rúnar á Norðurlandamótið
Það er ekki einu sinni ljós í myrkrinu
Herra Hundfúll er máttfarinn og miður sín í miðju maíhreti. Ekki nóg með að veðrið sé eins og það er heldur þurfti hann nánast að draga vatnsdropana út um sturtuhausinn í morgun. Þá fyllist hann depurð við að sjá ljósastaurana á Króknum teygja sig ljóslausa til himins. Það er eins og þeir séu risastórar vegastikur nema það hefur gleymst að setja á þá endurskinsmerkin. Sem er reyndar hugmynd…
Frú frábær hefur miklar mætur á Sæluviku
Nú er Frú Frábær í sínu stóra ESSI, enda Sæluvikustemningin yfir og allt um kring. Menning og læti, eins og hún orðar það. –Ég ætla sko að drekka í mig allt það sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða þessa frábæru viku. Alveg FRÁBÆRT!




























